Morgunblaðið - 14.03.2019, Síða 6
Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is
w Togvindur
w Kapalvindur
w Netavindur
w Grandaravindur
w Aukavindur
Scantrol iSYM skekkjustjórnun
Autotroll með áherslu á trollið
Fyrir allar togvindur
A
T
-.B
an
k-
-2
0-
1-
1-
V
ID
D
-s
ib
ba
- C
M
Y
K
6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. MAÍ 2001
Allt útlit er fyrir að í hönd fari mögur
ár hvað loðnuna varðar. Það veldur
ekki einvörðungu áhyggjum af af-
komu þeirra byggðarlaga sem reiða
sig að einhverju leyti á loðnuveiðar,
heldur af þjóðarbúinu í heild sinni, þar
sem ekki er víst að þorskstofninn fái
þá næga fæðu til að vaxa og dafna.
Þetta segir Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands smá-
bátaeigenda, og bendir á að loðnan sé
ein mikilvægasta fæða þorsksins.
Helmingur útflutningsverðmæta sjáv-
arafurða sé frá þorskinum kominn.
„Ef horft er til mælinga Hafrann-
sóknastofnunar þá þarf þessi staða
ekki að koma á óvart,“ segir hann og
vísar til skýrslu stofnunarinnar um
ráðgjöf fyrir loðnu sem kom út í októ-
ber á síðasta ári. Segir þar eftirfar-
andi:
„Samkvæmt bergmálsmælingunni
haustið 2018 er hrygningarstofn loðnu
metinn 238.000 tonn. Ráðgjöf um afla-
mark byggist á því að 95% líkur séu á
að hrygningarstofninn í mars verði yf-
ir 150.000 tonnum. Samkvæmt fram-
reikningum munu markmið aflareglu
ekki nást, jafnvel þótt engar veiðar
verði stundaðar á vertíðinni 2018/
2019. Vísitala ungfisks var mjög lág,
líkt og verið hefur undanfarin ár.“
Örn leggur áherslu á að þarna segi
að markmið aflareglu muni ekki nást,
þrátt fyrir að engar veiðar yrðu stund-
aðar á vertíðinni. „Myndin af vísitölu
ungfisks er sláandi. Það eru aðeins
þrjú ár á þessu sautján ára tímabili frá
2002 til 2018 þar sem vísitalan er við-
unandi,“ segir hann.
Breytingar rétt fyrir aldamót
Áhugavert sé þá að minna á hvaða
breytingar hafi orðið á loðnuveiðum
árið 2000, þegar sjávarútvegsráðu-
neytið ákvað að heimila tilraunaveiðar
á loðnu í flottroll að fengnu áliti Haf-
rannsóknastofnunar.
„Ákvörðunin var umdeild. Menn
sögðu það ekki fara saman að stunda
nótaveiðar og veiðar með flottrolli. Við
flottrollsveiðar væri torfum splundr-
að, auk þess að togað væri á móti
göngunni og henni gert erfiðara fyrir
að fylgja hefðbundinni göngu,“ segir
Örn.
„Fljótt fór að bera á breyttu hegð-
unarmynstri loðnunnar og menn lýstu
áhyggjum yfir því að nægilegt magn
skilaði sér ekki inn á hrygningar- og
uppeldisstöðvar þorsksins. Þá sýndu
rannsóknir að verulegur umframafli
var vegna möskvasmugs, sem ekki
var gert ráð fyrir í skráðri heildar-
veiði. Því var haldið fram að flotvörp-
urnar tækju aðeins stærsta fiskinn en
sá smærri slyppi í gegnum möskvana
og dræpist.“
Örn bendir á að aðeins þremur ár-
um eftir að tilraunaveiðarnar voru
leyfðar hafi Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur og þá helsti sérfræð-
ingur Hafrannsóknastofnunar um
loðnu verið farinn að hafa efasemdir,
eins og sjá megi í þriðja tölublaði Æg-
is í mars 2003.
„Í Fréttablaðinu 31. janúar 2004
sagðist Hjálmar hafa efasemdir um
veiðar á uppsjávarfiski í flotvörpu.
Hann sagði ljóst að flotvarpan klyfi
loðnutorfur og ylli usla,“ segir Örn og
vísar einnig til umfjöllunar í Morg-
unblaðinu þann 4. janúar 2007. Þar
segir eftirfarandi:
„Loks bendir Hjálmar á að notkun
trollsins við veiðarnar hafi getað vald-
ið einhverjum skaða og til dæmis
komið í veg fyrir að loðnan gengi vest-
ur með landinu. Sá siður manna að
leita með trollið úti sé til dæmis ein-
kennilegur og geti ábyggilega valdið
töluverðum truflunum á göngurnar.“
Reyndi ekki að forða sér út
„Svo fór að Einar K. Guðfinnsson,
þáverandi sjávarútvegsráðherra,
greip inn í árið 2006 og bannaði notk-
un flottrolls við veiðar útlendinga, en
heimilaði íslenskum skipum veiðar
eftir 21. janúar á afmörkuðu svæði úti
fyrir Austfjörðum,“ segir Örn.
Þann 2. nóvember 2007 hafi svo
birst tímamótafrétt í Fiskifréttum.
„Þar var greint frá niðurstöðum úr
rannsóknum á flottrollsveiðum og
rætt við Harald Arnar Einarsson
veiðarfærasérfræðing á Hafró, sem
ásamt fleirum stóð að rannsókninni,“
segir hann og vísar í viðtalið:
„Nýlegar rannsóknir Hafrann-
sóknastofnunar á loðnuveiðum í flot-
vörpu benda til þess að 60-80% til
áttatíu prósent af loðnunni sem kemur
í vörpuna leiti út úr henni í gegnum
möskvana og aðeins 20-40% endi sem
afli. [...] Neðansjávarmyndir úr loðnu-
trolli sýndu að loðnan reyndi ekki að
forða sér til baka út úr trollinu heldur
synti með togstefnu inni í því þar til
stór hluti hennar réði ekki við hraðann
sem trollið væri dregið á og síaðist út
um möskvana.“
Örn tekur fram að af 287 þúsund
tonna loðnuafla á síðasta ári hafi ís-
lensk skip veitt 186 þúsund tonn, þar
sem hlutur flottrolls hafi verið 103
þúsund tonn, eða 56% aflans.
Allt bendi því til þess að næstu ár
verði loðnustofninn með lélegra móti,
sem hafi ekki síst áhrif á þorskstofn-
inn sem reiðir sig að miklu leyti á
loðnuna sem fæðu.
„Í einkar áhugaverðum fyrirlestri
dr. Björns Björnssonar á málstofu
Hafrannsóknastofnunar á föstudag
var komið inn á þætti sem stjórna
vaxtarhraða þorsksins og hvernig
hann bregst við þegar umhverfisskil-
yrði eru honum óhagstæð,“ segir Örn
og bendir á að fram hafi komið að
þorskurinn geti flutt sig í kaldari sjó
til að hægja á vexti sínum, sem sé eina
leiðin sem þorskurinn hafi til að
bregðast við fæðuskorti.
Ekki áhætta við auknar veiðar
„Auk þess er hætt við að þorskur
sem kominn er yfir miðjan aldur leggi
sér til munns meðbræður sína sem
yngri eru til að seðja hungrið. Nú þeg-
ar hafa sjómenn orðið varir við það
þegar skoðað er í maga golþorsksins.
Þá skal einnig litið til þess að sam-
kvæmt því sem fram kemur í áfanga-
skýrslu nefndar um líffræðilega fisk-
veiðistjórnun sjávarútvegsráðherra
frá árinu 2004 þá vex hlutfall loðnu af
heildarfæðu þorsks eftir því sem hann
eldist og stækkar,“ segir Örn.
Hafrannsóknastofnun þurfi að
bregðast við þessari þróun með því að
leggja nú þegar til að þorskveiði verði
aukin.
„Breyta þarf viðmiðunarmörkum
sem gilda um skyndilokanir, í stað 55
sentimetra verði miðað við 50 senti-
metra og mörk fyrir undirmál skil-
greind sem 45 sentimetrar. Einnig er
brýnt að endurskoða reglur um friðun
hrygningarþorsks á vetrarvertíð,“
segir hann.
„Þorskstofninn er sterkur og ekki
er verið að taka neina áhættu með
auknum veiðum. Aðeins er verið að
rýma til vegna minnkandi fæðu auk
þess sem dregið er úr álagi á þann
loðnustofn sem enn mælist.“
Auka þurfi
þorskveiði
vegna brests
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Slæm staða loðnustofnsins getur haft áhrif á þorskveiðar.
Þegar hafa fundist merki um að eldri þorskar séu farnir
að éta þá yngri í auknum mæli.
Vísitala ungfi sks 1980 til 2018
1980 2018
Nýliðun loðnu
150
Milljarðar
100
Hrygningarstofn og aldursskipting þorskafl a
45%
40%
35%
30%
25%
20%
10%
600
500
400
300
200
100
0
Þús. tonn
Hlutf.
8+ ára
Hrygningastofn þorsks, þús. tonn Hlutfall 8 ára og eldri þorsks í afl a
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
254
295
365
410
445
418
537
480
633 652
Meðaltal
2009-2018
449 þús. tonn
44%
25%
35%
37%
Hrygningarstofn
þorsks hefur ekki
mælst stærri
síðan 1960
Morgunblaðið/Eggert
„Þorskstofninn er sterkur og ekki er verið að taka neina áhættu með auknum veiðum,“ segir Örn Pálsson.