Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019FÓLK
SPROTAR
Advania Hrafnhild-
ur Sif Sverrisdóttir
hefur verið ráðin
forstöðumaður vef-
lausna Advania.
Hrafnhildur hefur
starfað hjá Advania og forverum
fyrirtækisins í tæp 13 ár og gegndi
síðast starfi deildarstjóra viðmóts-
lausna og hönnunar á veflausna-
sviði. Áður starfaði Hrafnhildur
sem verkefnastjóri hjá Árvakri, D3
og þar á undan sem kortagerða-
sérfræðingur hjá Landmati og
verkfræðistofunni Hnit.
Hrafnhildur hefur lokið meistara-
námi í verkefnastjórnun frá Háskól-
anum í Reykjavík og í landakorta-
gerð frá þýska tækniháskólanum í
Karlsruhe.
Nýr forstöðumaður
veflausna
Nýr norrænn fjárfestingarsjóður
hefur íslenska sprota í sigtinu.
Nordic Web Ventures setti sinn
fyrsta sjóð á laggirnar fyrir að-
eins ári síðan og hefur síðan þá
fjárfest í 14 verkefnum í Dan-
mörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð
og Íslandi.
Neil Murray stýrir Nordic Web
Ventures (www.thenordicweb.vc)
og segir hann að í næstu hrinu
fjárfestinga sé stefnan sett á að
leggja um og yfir 20 verkefnum til
50-75.000 dali að jafnaði, eða jafn-
virði 6-9 milljóna króna. Sjóðurinn
einblínir á norræna sprota á byrj-
unarstigi sem eru að stíga sín
fyrstu skref í leit að fjármögnun.
„Við einskorðum okkur ekki við
tiltekinn geira og gildir t.d. einu
hvort ætlunin er að þróa fjár-
tæknilausn, heilbrigðisvöru, hug-
búnað eða vélbúnað. Meiru skiptir
að teymið á bak við hugmyndina
hæfi vörunni og þeim markaði
sem sprotinn er með augastað á,“
útskýrir Neil. „Leitum við að fólki
sem hefur ástríðu fyrir því sem
það er að gera og býr yfir góðum
skilningi á þeim vanda sem á að
leysa með nýrri vöru eða þjón-
ustu.“
Gallinn við norræna
styrkjakerfið
Neil er Breti en settist að í
Kaupmannahöfn fyrir fimm árum
og varð fljótlega virkur í frum-
kvöðlasamfélaginu þar. Á endanum
tókst honum að leiða saman vel
tengda og fjársterka aðila úr ýms-
um kimum hins alþjóðlega nýsköp-
unarheims til að stofna sjóðinn, og
þannig fjölga þeim valkostum sem
norrænum frumkvöðlum standa til
boða.
Hann segir það kerfi ríkis-
styrkja sem flest ríki Norðurlanda
bjóða upp á hafa ákveðna galla og
sé það mögulega að gera sprota-
fyrirtækjum bjarnargreiða.
„Stjórnvöld krefjast þess iðulega
af frumkvöðlum að þeir jafni opin-
bera styrki með jafnháu framlagi
frá fjárfestum. Fyrir vikið eru
frumkvöðlarnir ólmir að finna
þetta viðbótarfjármagn, sama
hvaðan það kemur, og fá inn fjár-
festa sem passa ekki endilega við
verkefnið. Raunin er að þegar
kemur að því að byggja upp rekst-
ur þá verður að gera greinarmun á
„snjöllum“ peningum og „misvitr-
um“ peningum. Í reynd ætti að líta
á fjármagnið sem hálfgert auka-
atriði þegar sprotafyrirtæki fær
fjárfesti til liðs við sig, því sú
þekking og sambönd sem fylgja
rétta fjárfestinum eru mun verð-
mætari en peningarnir. Að taka
inn hvaða fjárfesti sem er bara til
þess að jafna framlag úr opinber-
um sjóði er því til marks um
ákveðna skammsýni.“
Að mati Neils þarf að vanda til
verka til að finna rétta jafnvægið í
opinberum stuðningi við sprota-
geirann. Finna má mörg góð dæmi
um vel heppnuð stuðningsverkefni
á Norðurlöndunum en ef t.d. frum-
kvöðlar byrja að einblína um of á
umsóknarfresti opinberra sjóða, og
hreyfa sig ekki úr stað fyrr en
þeir hafa fengið styrk, þá dragi
það úr kappsemi þeirra.
Spár sem allir vita
að munu ekki standast
En hvernig eiga sprotar þá að
bera sig að við leitina að rétta
fjárfestinum? Neil segir það vissu-
lega rétt að sumir fjárfestar slái
um sig með alls kyns loforðum og
yfirlýsingum sem síðan reynist
ekki mikil innistæða fyrir. „Það
sem ég myndi gera, sem frum-
kvöðull, er að biðja áhugasaman
fjárfesti að gera eitthvað fyrir fé-
lagið áður en hann leggur því til
pening, s.s. koma á fundi með til-
vonandi viðskiptavini. Bestu fjár-
festarnir eru meira en viljugir til
að verða þannig að liði, og sýna
getu sína í verki.“
Þá segir Neil mikilvægt að það
liggi skýrt fyrir í upphafi hversu
náið sambandið á að vera milli
fjárfestis og sprota. „Mín regla er
að frumkvöðullinn sé alltaf sá hæf-
asti til að vita hvað er sprotanum
fyrir bestu. Hann á að fá að ráða
ferðinni og fjárfestirinn á ekki að
vera með puttana í stóru og smáu.
Kannski hentar best að hittast
mánaðarlega eða á nokkurra vikna
fresti – og fer eftir því hvernig
málin þróast hjá sprotanum. Inn á
milli gætu komið tímabil sem kalla
á dagleg samskipti, en þá bara ef
það er til þess gert að hjálpa
frumkvöðlinum. Fjárfestirinn á að
vera til staðar, reiðubúinn að
hjálpa, en frumkvöðullinn á ekki
að þurfa að vera með hann á bak-
inu.“
Aðspurður hvernig eigi að ganga
í augun á fjárfestum segir Neil að
honum þyki t.d. ekki mjög sann-
færandi þegar frumkvöðlar koma
til hans og segjast hafa vilyrði fyr-
ir opinberum styrk ef þeir bara fá
mótframlag. „Önnur algeng villa
er að reyna að heilla fjárfesta með
ævintýralegum hagnaðarspám.
Raunin er að allir vita að þannig
spár eru í besta falli ágiskun og
hafa í raun ekkert gildi. Er betra
ef frumkvöðlar eru opinskáir þeg-
ar kemur að þeim áskorunum og
óvissu sem þeir standa frammi fyr-
ir, frekar en að þeir fari í sölu-
mannsgírinn. Í stað þess að lofa
risahagnaði á skömmum tíma ættu
þeir að sýna fram á að sterkur
hópur fólks standi að verkefninu
og að þau hafi rétta drifkraftinn.
Reynslumiklir fjárfestar vita að
sprotar þróast sjaldan samkvæmt
áætlun, og ekki ósennilegt að við-
skiptaáætlunin breyti alveg um
stefnu, en með rétta fólkinu verður
það ekki vandamál.“
Neil segir frumkvöðla ekki blekkja neinn með tali um skjótfenginn auð. Að koma sprota á laggirnar er þrautaganga.
Ekki sama
hvaðan pen-
ingarnir koma
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Sú þekking og sambönd
sem fjárfestar búa yfir
skipta oft meira máli fyrir
velgengni sprotafyrirtæki
en það fjármagn sem þeir
setja í reksturinn.
VISTASKIPTI
Icelandair Group Gísli S. Brynjólfsson hefur verið ráðinn
forstöðumaður markaðsmála hjá Icelandair (e. Director of
Global Marketing). Í tilkynningu segir að Gísli hafi starfað
hjá Hvíta húsinu auglýsingastofu í 15 ár, þar af síðastliðin
átta ár sem framkvæmdastjóri. Áður starfaði hann sem
sölu- og kynningarstjóri hjá Skýrr hf., eða á árunum 1999 til
2002. Gísli sat í stjórn Ímark frá 2011 til 2014. Hann er með BSc. gráðu í al-
þjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands og MSc. gráðu í alþjóða-
viðskiptum frá Grenoble Ecole de Management í Frakklandi.
Ráðinn forstöðumaður markaðsmála
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
fyrir heim
Stærð 232 cm | Verð 299.000 kr.
Stærð 202 cm | Verð 275.000 kr.
Stærð 172 cm | Verð 235.000 kr.
ili
Sendum
um
land allt