Morgunblaðið - 14.03.2019, Síða 16
dk iPos snjalltækjalausn
fyrir verslun og þjónustu
Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi
Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri
510 5800, dk@dk.is, www.dk.is
dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar.
Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum
sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu.
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Icelandair kyrrsetur Max-þotur
Auður býður upp á 4% innlánsvexti
Hafa ekkert að segja um WOW
Indigo hyggst setja meira í WOW
Hyggjast ekki greiða vextina
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Tveir sjóðir í stýringu Eaton Vance
eru eigendur að skuldabréfinu
HEIMA 18.1 sem gefið var út af
fasteignafélaginu Heimavöllum í
apríl 2018. Í skilmálum skulda-
bréfsins er kveðið á um að ekki
megi afskrá bréf Heimavalla úr
Kauphöll án samþykkis kröfuhaf-
ans sem í hlut á á hverjum tíma.
Vegna yfirvofandi afskráningar fé-
lagsins af markaði, en ákvörðun þar
um verður tekin á aðalfundi félags-
ins síðar í dag, leitaði stjórn Heima-
valla samkomulags við Eaton
Vance um að sjóðurinn gangi ekki á
gjaldfellingarheimild sína. Náðist
slíkt samkomulag þann 8. mars síð-
astliðinn gegn greiðslu gjalds sem
nemur u.þ.b. 1% af eftirstöðvum
höfuðstóls bréfsins. Samsvarar sú
fjárhæð um 30 milljónum króna
samkvæmt greinargerð stjórn-
arinnar.
Stjórn félagsins taldi mikilvægt
að koma stöðu skuldabréfsins í fast-
ar skorður þar sem gjaldfelling
þess hefði virkjað gjaldfelling-
arheimildir á öllum skráðum
skuldabréfum Heimavalla, HEIMA
071225, 071248 og 100646.
„Það væri óábyrgt af stjórn
Heimavalla, ef tillaga um afskrán-
ingu er samþykkt af tilskildum
meirihluta félagsins, að koma ekki í
veg fyrir mögulega gjaldfellingu á
tæplega 1/3 hluta af núverandi
lánsfjármögnun Heimavalla. Sam-
þykki kauphöllin ekki að afskrá
hlutabréf félagsins þá verður gjald-
ið ekki greitt.“
Við lokun markaða í gær nam
markaðsvirði Heimavalla 14,3 millj-
örðum króna og stóð gengi félags-
ins í 1,27. Það er nokkru lægra en
útboðsgengi félagsins í fyrra var en
það var 1,33.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Flest bendir til þess að Heimavellir verði teknir af markaði innan skamms.
Greiða 30 milljón-
ir við afskráningu
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Sjóðir í stýringu Eaton
Vance fá 30 milljónir króna
greiddar frá Heimavöllum,
verði afskráning félagsins
samþykkt í dag.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Fyrr í vetur var bent á það, á þess-um vettvangi, að rót vandans í
deilu launþega og vinnuveitenda væri
hve dýrt það er að lifa í landinu. Jafn-
vel lægstu launataxtar á Íslandi
þættu háir í flestum öðrum löndum,
en bóla hefur blásið út á fast-
eignamarkaði og veldur því að lítið er
eftir af launaseðlinum þegar búið er
að borga leiguna.
En það þarf ekki bara að laga hús-næðisvanda almennings (með
því að byggja eins og 10.000 öríbúðir í
hvelli), heldur glímir atvinnulífið líka
við alvarlegan fasteignavanda. Fast-
eignamat atvinnuhúsnæðis hefur
nefnilega rokið upp, og með því fast-
eignaskattar og lóðaleiga sem eru
margfalt hærri fyrir atvinnuhúsnæði
en íbúðarhúsnæði. Einn viðmælandi
sagði að byrði fyrirtækja af þessum
sköttum hefði áður verið eins og að
borga leigu einn auka mánuð á ári, en
sé núna á við þriggja mánaða leigu.
Eins og það sé ekki nóg þá skikkareglugerðir fyrirtækin til að inn-
rétta húsnæði sitt á hinn og þennan
veginn. Sem dæmi þurfti eigandi lít-
illar verslunar að hafa mikið fyrir því
að fá undanþágu frá því að hafa 9 fer-
metra salerni með hjólastólaaðgengi í
glænýju verslunarrými, og breytti
litlu þótt hann benti á að mjög góð
salernisaðstaða fyrir fatlaða væri
steinsnar frá búðinni.
Kannski væri meira svigrúm fyrirlaunahækkanir ef tækist að
minnka skattpíninguna og draga úr
endalausum afskiptunum.
Fasteigna-
vandi
fyrirtækja
Það er ekki aðeins í SeðlabankaÍslands sem undirbúningur er
hafinn að brotthvarfi bankastjórans.
Skömmu eftir að skipt verður um
mann í brúnni í Svörtuloftum mun
ítalinn knái, Mario Draghi, hverfa úr
stóli seðlabankastjóra Evrópu.
Segja kunnugir að báðir hlakki
stjórarnir mikið til. Már vegna þess
að brotthvarfið sé eina leiðin sem
hann hafi til að komast hjá brott-
rekstri. Þannig geti hann sagt auð-
mjúkur við forsætisráðherrann hug-
umprúða að það taki því ekki að
reka hann – hann sé hvort eð er að
hætta.
Draghi hefur aðrar ástæður til aðláta sig dreyma um fyrsta dag
nóvembermánaðar. Ástæðan er sú
að þá þarf hann ekki lengur að
standa við það loforð sitt að gera
„hvaðeina sem í hans valdi stendur
til þess að bjarga evrunni“. Hann
hefur á síðustu misserum fengið
fjölmörg tækifæri til að horfast í
augu við að evran er ekki aðeins
meingölluð mynt, heldur ein mesta
ógnin við fjárhagslegan og pólitísk-
an stöðugleika í allri álfunni. Þegar
svo er komið er betra að taka hatt
sinn og staf en að þurfa að éta ofan í
sig stórkarlalega yfirlýsinguna frá
árinu 2012, sem fékk flesta til þess
að varpa öndinni léttar þegar henni
var varpað fram.
En Draghi hefur setið of lengi ogum leið reynt að efna loforðið
sem hann ekki gat staðið við. Þegar
hann taldi sig vera kominn fyrir
vind, í kjölfar þess að hafa dælt jafn-
virði yfir 300 þúsund milljarða króna
út á markaðinn í Evrópu í veikri von
um að hagkerfi svæðisins myndi
taka við sér, sagði hann holum
hljómi að ætlunarverkið hefði tekist.
En óðara en hann greindi frá því var
hafist handa að nýju við að dæla
fjármagni út á markaðina. Afleiðing-
arnar geta aðeins orðið á einn veg.
Og á sama tíma og álfan engistog Draghi horfir dreyminn til
loka októbermánaðar hamast Evr-
ópusambandið á Bretum – með
ágætri aðstoð sjálfs forsætisráð-
herrans sem ekki veit sitt rjúkandi
ráð. En hefur Evrópa efni á þessum
strákskap? Árið 2017 fluttu Bretar
út vörur til annarra ESB-ríkja fyrir
jafnvirði 42.500 milljarða króna.
ESB-ríkin seldu Bretum vörur og
þjónustu fyrir 53.000 milljarða á
sama tíma. Ætla menn að skaða
þetta flæði til frambúðar?
Einn kemur þá annar fer
Boeing hefur hætt við
að kynna nýtt flagg-
skip fyrirtækisins, far-
þegaþotuna Boeing
777X, vegna slysa.
Hætta við kynn-
ingu vegna slysa
1
2
3
4
5