Morgunblaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019
Tálknafjarðarhreppur auglýsir stöðu
skólastjóra Tálknafjarðarskóla
lausa til umsóknar. Skólinn er
samrekinn leik-, grunn- og
tónlistarskóli undir einu þaki.
Í skólanum eru um 50 nemendur.
Laus til umsóknar
staða
skólastjóra
Tálknafjarðarskóla
Tálknafjörður er afar fallegur fjörður sem
þekktur er fyrir einstaka veðurblíðu. Íbúarnir
eru miklir íþróttaálfar og státar þorpið af
glæsilegri íþróttamiðstöð með tækjasal, 25m
sundlaug og fjöldann allan af skipulögðum
íþróttatímum. Atvinnulíf er með miklum blóma
og uppbygging fiskeldis og ferðaþjónustu á
svæðinu býður upp á mikil tækifæri.
Starfssvið:
• Að veita skólanum faglega forystu á sviði
kennslu og þróunar í skólastarfi
• Að leiða samstarf nemenda, starfsmanna,
heimila og skólasamfélagsins í heild
• Að stýra og bera ábyrgð á rekstri skólans og
daglegri starfsemi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf leik- og/eða grunnskólakennara
• Kennslureynsla í grunnskóla er skilyrði
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar
og uppeldis- og menntunarfræða eða
umtalsverð og farsæl reynsla á sviði
stjórnunar, rekstrar og þróunarstarfi er
skilyrði.
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni
og leiðtogahæfileikar
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra
framtíðarsýn í skólamálum, er skapandi og
metnaðarfullur. Staðan er laus frá 1. maí 2019.
Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands
Íslands.
Umsókn skal fylgja greinargott yfirlit um
nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu,
kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Við hvetjum bæði konur og
karla til að sækja um starfið.
Upplýsingar um starfið veitir
Bryndís Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Tálknafjarðarhrepps, í síma 450-2500 eða í
gegnum netfangið
sveitarstjori@talknafjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2019.
Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra
Tálknafjarðarhrepps á netfangið
sveitarstjori@talknafjordur.is
Við finnum rétta
einstaklinginn
í starfið
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.