Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 Djúpavogsskóli auglýsir eftir menntuðum kennurum fyrir skólaárið 2019-2020 í eftirfarandi stöður: • Skólastjóri grunn- og tónskóla (umsóknarfrestur framlengdur til 20.apríl) • Umsjónarkennari 1. bekkjar • Umsjónarkennari 2.-3. bekkjar • Umsjónarkennari 4.-5. bekkjar • Umsjónarkennari 6. bekkjar • Umsjónarkennari 7.-8. bekkjar • Dönskukennari á mið- og unglingastigi • Enskukennari á öllum aldursstigum • Upplýsinga- og tæknimennt á öllum aldursstigum • Textílmennt og heimilisfræði á öllum aldursstigum • Íþróttir og sund á öllum aldursstigum Auk þess vantar þroskaþjálfa við skólann og stuðningsfulltrúa til að vinna með fötluðum nemanda á miðstigi. Umsóknir sendist á skolastjori@djupivogur.is fyrir 1. apríl 2019 Skólastjóri, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, veitir nánari upplýsingar sé þess óskað. Deildastjóri Leikskólinn Bjarkatún, Djúpavogi auglýsir eftir deildarstjóra inn á Krummadeild í 100% starf frá 20. ágúst 2019. Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli þar sem eru 37 börn. Krummadeild er yngri barna deild með 1-2 ára börnum. Hæfniskröfur eru eftirfarandi: • Leikskólakennaramenntun • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Góð íslenskukunnátta Áhugasömum er bent á að skoða heimasíðu leikskólans www.bjarkatun.leikskolinn.is Upplýsingar er hægt að nálgast hjá Guðrúnu S. Sigurðardóttur leikskólastjóra í síma 470 8720 eða í tölvupósti, bjarkatun@djupivogur.is. Umsóknum ber að skila fyrir 1. maí 2019 í tölvupósti eða til leikskólastjóra Hammersminni 15B. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Djúpavogshreppur auglýsir eftir umsóknum í stöðu framkvæmdastjóra Ungmennafélags Neista og íþrótta þjálfara. Einnig er laus til umsóknar staða forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Zion á Djúpavogi. Ekki er um full störf að ræða en ýmsir möguleikar eru í boði og starfshlutfall sveigjanlegt. Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri sveitarstjori@djupivogur.is Er ekki kominn tími til að hægja á og njóta? Djúpavogshreppur iðar af lífi og gleði án þess að tapa sér í hraðaáráttu nútímans. Hæglætið ræður ríkjum og lögð er áhersla á lífsgæði í leik og starfi. Leitum að faglærðum matreiðslumanni Viðkomandi þarf að geta hafið störf í maí 2019. Við erum að leita eftir matreiðslumanni í fullt starf með brennandi ástríðu fyrir íslenskri matargerð. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og undir álagi. Kaffivagninn leggur mikinn metnað í að veita góða þjónustu og framúrskarandi mat. Vaktafyrirkomulag er 2-2-3. Staðurinn er opin frá kl. 07:30-21. Kaffivagninn hefur verið í rekstri síðan 1935 og nú er hann viðkomustaður fólks á öllum aldri sem leitar eftir góðum mat og frábæru andrúmslofti. Hæfniskröfur: · Snyrtimennska · Stundvísi og reglusemi · Reynsla sem kokkur · Dugnaður · Hæfni í mannlegum samskiptum · Góð enskukunnátta · Reyklaus Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferlisskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2019. Áhugasamir geta sótt um starfið á heimasíðu Foodco https://umsokn.foodco.is/storf/ViewJobOnWeb.aspx?- jobid=KAF03 Nánari upplýsingar um starfið veitir María Rún Hafliðadóttir, maria@foodco.is. Bókavörður Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða bókavörð í 100% starf á bókasafn skólans. Um er að ræða tímabundið starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starf bókavarðar felur í sér afgreiðslu við nemendur og starfsfólk skólans, innheimtu gagna, viðgerðir og þrif á bókum og öðrum gögnum safnsins. Hæfnikröfur:  Stúdentspróf.  Hæfni í mannlegum samskiptum.  Góð íslenskukunnátta.  Almenn tölvukunnátta. Við bjóðum:  Góða vinnuaðstöðu.  Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen starfsmanna- og þróunarstjóri gunninga@verslo.is eða í síma 5 900 600. Umsóknarfrestur er til 2. apríl og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið verslo@verslo.is Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 930 nemendur. Á bókasafni skólans starfa tveir bókasafns- og upplýsingafræðingar. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið. Byggðarráð Borgarbyggð- ar hvetur Alþingi í ályktun til að gera nauðsynlegar endurbætur á frumvarpi um breytingar á lögum um fisk- eldi svo tryggt verði að af- komu íbúa á þeim svæðum landsins, þar sem virði lax- veiðiáa skiptir verulegu máli í fyrir búsetu og afkomu al- mennings, verði ekki ógnað. Á Vesturlandi nái starfsemi veiðifélaga til 620 lögbýla og þar séu tekjur veiðifélaga og veiðiréttarhafa um þriðjung- ur af þeim tekjum á landinu. Þar fyrir utan sé marg- vísleg afleidd þjónusta í tengslum við laxveiði sem skapar tekjur og viðurværi fjölmargra. Í Borgarbyggð séu nokkrar af verðmætustu laxveiðiám landsins. Því sé mikið hagsmunamál Vest- lendinga að tekið sé mið af þýðingu villtra laxastofna fyrir afkomu og byggð. „Sjókvíaeldi á frjóum norskum laxi er ógn við verðmæti sem hafa verið varðveitt í margar kynslóðir á lögbýlum landsins,“ segir ályktuninni. „Ef þessi tekju- stofn laskast eða hverfur mun það hafa ófyrirsjáan- legar afleiðingar í búsetu í dreifðum byggðum sveitar- félagsins. Útsvars- og fast- eignaskattar margra sveitar- félaga í laxveiðihéruðum Íslands geta skerst verulega ef svo skyldi fara, með alvar- legum afleiðingum fyrir þessi samfélög.“ Skaði sé ekki óafturkræfur Í ályktun segir að efni þess frumvarps til laga um fiskeldi, sem nú liggur fyrir Alþingi, samræmist ekki þeirri markmiðsyfirlýsingu í núgildandi fiskeldislögum sem felur í sér að vöxtur og viðgangur fiskeldis megi ekki gerast á kostnað við- gangs og nýtingar villtra fiskstofna. „Byggðarráð Borgarbyggðar ítrekar mikilvægi þess að gætt sé fyllstu varfærni í því að auka fiskeldi í sjó þannig að ekki verði unninn óafturkræfur skaði á þeirri sérstöðu sem Ísland hefur í okkar heims- hluta vegna hinna einstöku villtu laxastofna sem styrkja búsetu og veita atvinnu í gegnum verðmætar laxveiði- ár.“ Morgunblaðið/Einar Falur Borgarfjörður Rennt fyrir lax á fallegum sumardegi í Norðurá. Auðvitað tók fiskurinn enda var agnið einkar gott. Varfærni sé gætt  Villtur lax dafni  Hagsmuna- mál  Alþingi bregðist við Gætt skal að matvælaöryggi og lýðheilsu verði innflutn- ingur á fersku kjöti og fleiru slíku heimilaður, eins og lagt er til í nýju frumvarpi sjávar- útvegs- og landbúnaðarráð- herra. Þetta segir efnislega í umsögn sveitarstjórnar Blá- skógabyggðar um frumvarpið sem Alþingi mun fjalla um. Þar er hvatt til þess að farið verði að láta reyna á endur- skoðun þeirra ákvæða innan EES-samningsins sem fjalla um innflutning á ófrystu kjöti. Ísland hefur ótvíræða sérstöðu sem eyja þar sem lítil notkun er á sýklalyfjum við eldi sláturgripa og í landbúnaði al- mennt. „Sveitarstjórn Bláskóga- byggðar leggst gegn breyt- ingum á reglum um innflutn- ing og telur að hafa beri í for- gangi að standa vörð um þá sérstöðu íslensks landbúnaðar sem fólgin er í lítilli lyfja- notkun. Það sé gert með því að farið sé að ráðleggingum lækna og annarra sérfræðinga sem lagst hafa gegn breyt- ingum á reglum um innflutn- ing, enda er útilokað að snúa til baka, verði reyndin sú að sýkingum af völdum fjöló- næmra baktería fjölgi í fram- tíðinni. Þá er aukinn innflutn- ingur matvæla sem hægt er að framleiða innanlands úr takti við þá áherslu sem lögð er á aukna sjálfbærni á heimsvísu í anda Heimsmarkmiða Sam- einuðu þjóðanna, segir í um- sögninni. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kýr Landbúnaður er undirstaða í atvinnulífi í Bláskógabyggð. Lýðheilsan ráði  Gegn innflutningi á kjöti  Úr takti við heimsmarkmiðin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.