Morgunblaðið - 05.03.2019, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019
ÍÞRÓTTIR
Körfuknattleikur Ægir Þór Steinarsson og samherjar í bikarmeistaraliði Stjörnunnar tylltu sér á topp
Dominos-deildarinnar í gærkvöldi með því að leggja lið Njarðvíkur með sex stiga mun. 3
Íþróttir
mbl.is
Alisson Becker,
markvörður Liv-
erpool, þykir lík-
legastur til að
hreppa gull-
hanskann í ensku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu en
það eru verðlaun
sem sá mark-
vörður fær sem
heldur marki
sínu oftast hreinu á tímabilinu.
Becker hélt markinu hreinu í 17.
leiknum í fyrradag gegn Everton.
Hann hefur aðeins fengið á sig 15
mörk í 29 leikjum.
Fær Becker
gullhanskann?
Alisson
Becker
irbúningi íslenska landsliðsins fyrir umspils-
leikina í sumarbyrjun við Spánverja um sæti í
lokakeppni HM í Japan síðar á þessu ári.
Mariam, sem er tvítug, hefur verið í her-
búðum Toulon undanfarin fjögur ár samhliða
námi í Frakklandi. Hlutverk hennar hefur vax-
ið mjög hjá liðinu á þessu keppnistímabili.
„Mariam hefur spilað frá 15 og upp í 40 mín-
útur í leik fyrir Toulon og staðið sig vel. Það
hefur verið gaman að sjá framfarirnar hjá
henni,“ sagði Axel við Morgunblaðið í gær en
hann valdi Mariam í æfingahóp landsliðsins
vorið 2017.
Framararnir Karen Knútsdóttir og Steinunn
Björnsdóttir koma inn í landsliðið að þessu
sinni. Karen var frá keppni vegna meiðsla þeg-
ar landsliðið tók þátt í forkeppni HM í Make-
dóníu í lok nóvember og Steinunn gaf þá ekki
kost á sér af persónulegum ástæðum.
Birna Berg Haraladsdóttir, stórskytta hjá
Neckarsulm, var einnig valin að þessu sinni en
vegna meiðsla hefur hún ekki leikið með lands-
liðinu síðan í mars í fyrra. Lovísa Thompson úr
Val er einnig í hópnum en hún meiddist
skömmu fyrir forkeppni HM í lok nóvember.
Hópinn í heild er að finna á mbl.is/sport.
Einn nýliði fer til Póllands
Nítján konur fara á Baltic-mótið Birna, Karen, Lovísa og Steinunn í hópnum
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Mariam Eradze, handknattleikskona hjá Tou-
lon í Frakklandi, er eini nýliðinn í íslenska
landsliðshópnum í handknattleik sem Axel
Stefánsson valdi í gær. Alls valdi Axel 19 leik-
menn í hóp sinn sem tekur þátt í Baltic-mótinu
í Póllandi 22.-24. mars. Þar verður leikið við
landslið Póllands, Slóvakíu og Afríkumeistara
Angóla. Þátttaka í mótinu er fyrsti liður í und-
tímabilið hefur spilast þá ætti Davidson-liðið að
eiga ágæta möguleika á að komast upp úr riðl-
inum.
Ætti að ná landsleikjum
Davidson-liðið er sett saman á frekar óvenju-
legan hátt þetta tímabilið. Ekki er algengt að
sama háskólaliðið sé með marga Evrópubúa en
Jón segir að liðsfélagar sínir séu frá Svíþjóð,
Austurríki, Englandi og Serbíu auk Bandaríkj-
anna.
Körfuboltafólk fær sjaldnast frí frá banda-
rískum háskólum til að spila fyrir sín landslið
yfir veturinn. Jón á 7 A-landsleiki að baki en
hann kom við sögu í tveimur leikjum í und-
ankeppni HM í júní á síðasta ári en þreytti
frumraun sína með A-landsliðinu á Smáþjóða-
leikunum í San Marínó 2017. Faðir hans Guð-
mundur Bragason er leikjahæsti leikmaður
landsliðsins frá upphafi með 169 leiki.
Ísland leikur í forkeppni fyrir EM 2021
snemma í ágúst og Jón býst við því að geta
verið með ef kallið kemur. Hann á að mæta til
Bandaríkjanna í lok ágúst.
Jón Axel er í leiðtoga-
hlutverki hjá Davidson
Styttist í að úrslitakeppnin hefjist í bandaríska háskólakörfuboltanum
AFP
Í Charlotte Jón Axel í leik á móti North Carolina, liðinu sem Michael Jordan lék með á sínum tíma.
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Jón Axel Guðmundsson hefur verið í miklu
stuði með Davidson-skólanum í bandaríska há-
skólakörfuboltanum NCAA að undanförnu. Jón
skoraði til að mynda 17 stig um síðustu helgi í
öruggum sigri á Fordham 77:52 og tók auk
þess 11 fráköst og gaf átta stoðsendingar. Jón
Axel er með flottar tölur á tímabilinu öllu en
hann er einmitt með 17 stig að meðaltali eftir
29 leiki, 7 fráköst og 5 stoðsendingar.
Jón sagðist vera ánægður með sína frammi-
stöðu í vetur þegar Morgunblaðið heyrði í hon-
um hljóðið en segist enn geta bætt sig á næsta
tímabili sem verður hans síðasti vetur í NCAA.
„Við erum með breiðan hóp og margir geta
skorað stig. En við erum hins vegar með ungt
lið og því þarf að treysta á okkur sem spiluðum
mikið í fyrra til að leiða liðið,“ sagði Jón sem
þykir vera í góðum höndum hjá hinum reynda
þjálfara liðsins, Bob McKillop. Sá var orðinn
þjálfari Davidson þegar NBA-stjarnan Stephen
Curry lék með liðinu. „Ég hef fengið mjög góð
viðbrögð frá honum við minni frammistöðu.
Hann lætur mann auðvitað vita þegar hann vill
að maður geri betur og svo fær maður hrós inn
á milli.“
Dregur til tíðinda
Ekki er mikið eftir af hinu hefðbundna
keppnistímabili í NCAA en Davidson á tvo leiki
eftir. Er liðið í 2.sæti í Atlantic 10 riðlinum og
framundan er úrslitakeppni í riðlinum um að
komast í 64-liða úrslitakeppni NCAA sem
Bandaríkjamenn kalla iðulega March Madness.
Þangað komst Davidson í fyrra en tapaði fyrir
gömlu stórveldi, Kentucky, þrátt fyrir 21 stig
frá Jóni.
„Að sjálfsögðu eru miklar væntingar gerðar
til okkar í skólanum og fólk vill sjá okkur kom-
ast langt í keppninni. Við gerum sjálfir kröfur
til okkar. Þegar menn hafa upplifað March
Madness þá vilja menn vera áfram í þeim
gæðaflokki,“ sagði Jón en miðað við hvernig
Rúnar Kárason
skoraði 4 mörk
og átti 3 stoð-
sendingar þegar
lið hans Ribe
Esbjerg vann
mikilvægan sig-
ur á Nordsjæll-
and, 29:25, á úti-
velli í dönsku
úrvalsdeildinni í
handknattleik í
gærkvöldi. Gunnar Steinn Jónsson
skoraði 1 mark og átti 5 stoðsend-
ingar fyrir Ribe-liðið sem er nú í 8.
sæti. Átta efstu liðin komast í úr-
slitakeppnina. Þrjár umferðir eru
eftir af deildinni. iben@mbl.is
Mikilvægt hjá
Ribe Esbjerg
Rúnar
Kárason
Einari Jónssyni,
þjálfara karlaliðs
Gróttu í hand-
knattleik, stend-
ur til boða að
þjálfa í Fær-
eyjum á næsta
keppnistímabili
samkvæmt heim-
ildum Morg-
unblaðsins. Um
karlalið er að
ræða en blaðinu er ekki kunnugt
um hvaða lið það er sem hefur fal-
ast eftir starfskröftum Einars.
Einar sagðist ekki geta greint frá
því í hvaða farvegi málið væri þeg-
ar Morgunblaðið innti hann eftir
þessu í gær. Einar samdi við Gróttu
til tveggja ára síðasta sumar en alla
jafna eru uppsagnarákvæði í samn-
ingum þjálfara hérlendis að keppn-
istímabili loknu.
Einar hefur áður þjálfað utan Ís-
lands en hann stýrði kvennaliði
Molde í Noregi um skeið. Einar hef-
ur gert karlalið Fram að Íslands-
meisturum og kvennalið Fram að
bikarmeisturum á þjálfaraferli sín-
um. kris@mbl.is
Einar er með
tilboð frá
Færeyjum
Einar
Jónsson