Morgunblaðið - 05.03.2019, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2019
Algarve-bikarinn
A-RIÐILL:
Skotland – Ísland..................................... 4:1
Lizzy Arnott 14., 67., Erin Cuthbert 34.,
Kim Little 56. – Sara B. Gunnarsdóttir 58.
Lokastaðan:
Kanada 2 1 1 0 1:0 4
Skotland 2 1 0 1 4:2 3
Ísland 2 0 1 1 1:4 1
B-RIÐILL:
Holland – Pólland .................................... 0:1
Agnieszka Winczo 42. Rautt spjald: Dani-
que Kerkdijk (Hollandi) 39.
Lokastaðan:
Pólland 2 2 0 0 4:0 6
Spánn 2 1 0 1 2:3 3
Holland 2 0 0 2 0:3 0
C-RIÐILL:
Danmörk – Kína ...................................... 1:0
Pernille Harder 60.(víti)
Lokastaðan:
Noregur 2 2 0 0 5:2 6
Danmörk 2 1 0 1 2:2 3
Kína 2 0 0 2 1:4 0
D-RIÐILL:
Sviss – Portúgal ....................................... 3:1
Ana Crnogorcevic 60., Rahel Kiwic 66.,
Melanie Müller 86. – Andreia Norton 27.
Lokastaðan:
Svíþjóð 2 1 0 1 5:3 3
Sviss 2 1 0 1 4:5 3
Portúgal 2 1 0 1 3:4 3
Kýpurmót kvenna
Tékkland – Suður-Afríka......................... 2:1
Ítalía – Taíland.......................................... 4:1
Slóvakía – Austurríki ............................... 0:1
Finnland – Norður-Kórea ....................... 0:1
Mexíkó – Ungverjaland ........................... 3:3
Nígería – Belgía........................................ 0:1
Ítalía og Norður-Kórea mætast í úrslita-
leik mótsins.
Vináttulandsleikur kvenna
Frakkland – Úrúgvæ .............................. 6:0
Viviane Asseyi 21., Charlotte Bilbault 36.,
Valérie Gauvin 45., 67., Oneema Geyoro 48.,
Maéva Clemaron 83.
England
B-deild:
Sheffield Wed. – Sheffield Utd ............... 0:0
Staða efstu liða:
Norwich 35 20 9 6 71:45 69
Leeds 35 20 7 8 59:38 67
Sheffield Utd 35 19 8 8 59:34 65
WBA 35 17 9 9 67:47 60
Middlesbro 34 15 13 6 38:24 58
Spánn
Leganés – Levante................................... 1:0
KNATTSPYRNA
Danmörk
Nordsjælland – Ribe-Esbjerg ............ 25:29
Rúnar Kárason skoraði 4 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson 1.
Svíþjóð
Sävehof – Alingsås ...............................30:32
Ágúst Elí Björgvinsson varði 3 skot í
marki Sävehof, þar af 2 vítaköst.
HANDBOLTI
Dominos-deild karla
Stjarnan – Njarðvík ............................. 82:76
Keflavík – Haukar ................................ 80:65
Staðan:
Stjarnan 19 15 4 1749:1518 30
Njarðvík 19 15 4 1657:1558 30
Tindastóll 19 13 6 1637:1485 26
Keflavík 19 13 6 1664:1525 26
KR 19 12 7 1646:1610 24
Þór Þ. 19 11 8 1736:1667 22
Grindavík 19 8 11 1671:1737 16
ÍR 19 8 11 1620:1694 16
Haukar 19 8 11 1578:1658 16
Valur 19 6 13 1715:1796 12
Skallagrímur 19 4 15 1601:1753 8
Breiðablik 19 1 18 1665:1938 2
NBA-deildin
Charlotte – Portland ........................ 108:118
Boston – Houston ............................. 104:115
Chicago – Atlanta ............................. 118:123
LA Clippers – NewYork.................. 128:107
Cleveland – Orlando........................... 107:93
Detroit – Toronto..................... (frl.) 112:107
Washington – Minnesota ................. 135:121
Oklahoma City – Memphis .................. 99:95
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Origo-höllin: Valur – Haukar ................... 20
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66 deildin:
Laugardalshöll: Þróttur – HK ............ 19.30
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Laugardalur: SR – SA ......................... 19.45
Í KVÖLD!
Enn á ný beinast sjónir að gömlu,
slæmu Laugardalshöllinni í þessari
viku þegar úrslitin ráðast í bikarkeppn-
unum í handbolta. Ég ræddi við mann
um daginn sem hefur búið lengi er-
lendis og hann átti vart orð yfir það
hve dapurleg aðstaðan væri fyrir
áhorfendur í Höllinni; hljóð skilaði sér
illa, sjónvarpsvél skyggði á útsýni og
svo hefði mátt áfram telja. Hann var
áhorfandi á kveðjulandsleik Jóns Arn-
órs og Hlyns Bæringssonar, sem hófst
seinna en áætlað var vegna bilunar í
stigatöflu. „Lítum við ekki á okkur sem
íþróttaþjóð lengur?“ spurði hann mig.
Ég hef sjálfur aðallega verið í Höll-
inni sem fjölmiðlamaður síðustu ár, og
sem slíkur hefur maður yfir ýmsu að
kvarta. Ég horfði þar síðast á undan-
úrslitaleiki í bikarkeppninni í körfu-
bolta og fékk Elvar Má Friðriksson nán-
ast ofan á lyklaborðið í einni sókninni.
Engin aðstaða er fyrir fjölmiðla og því
var borðum og stólum raðað upp við
annan enda vallarins. Útsýnið þaðan
var gott í annarri hverri sókn í leiknum
en það er þó gaman að geta verið
svona nálægt vellinum.
En já, sé litið til íþróttamannvirkja
okkar þá er ljóst að Ísland er ekki mikil
íþróttaþjóð í samanburði við aðrar
þjóðir. Því miður.
Fólk getur þó skemmt sér vel þessa
miklu bikarviku handboltans. Hrósa
ber sérstaklega Val fyrir að eiga lið í
undanúrslitum bæði karla og kvenna,
rétt eftir að hafa eignast bikarmeist-
ara í körfu kvenna (og ekki eru knatt-
spyrnulið félagsins slæm heldur).
Fyrir fram býst maður við meiri
spennu í undanúrslitum kvenna á
fimmtudaginn, þar sem ÍBV mætir Val
en Fram mætir Stjörnunni.
Búandi í Grafarvogi veit ég að Fjöln-
ismenn reyna sitt til að fá stuðning
gegn Val í karlakeppninni á föstudag,
þegar eina 1. deildar liðið sem enn er
með spilar. Það virkar reyndar hálf-
ósanngjarnt að Valur fái að mæta 1.
deildar liði í fyrri leik föstudagskvölds,
áður en FH og ÍR mætast, því Vals-
menn ættu að eiga greiða leið í úrslita-
leikinn og hafa meiri orku á tankinum
en sigurliðið úr leik FH og ÍR, sem lýk-
ur 18 klukkutímum fyrir úrslitaleikinn.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
ustu 20 mínúturnar og tíminn mun
leiða í ljós hverju endurkoma hennar
mun mögulega skila liðinu. Dagný
Brynjarsdóttir spilaði aftur í 10 mín-
útur og á eftir að styrkjast eftir því
sem líður á árið. Jón Þór Hauksson
ákvað að skilja Fanndísi Friðriks-
dóttur eftir heima, sem var frekar
skrýtin ákvörðun miðað við reynslu
hennar og styrk en liðið hefur greini-
lega saknað Fanndísar í sóknarleik
sínum í þessum tveimur leikjum í
Portúgal. Sif Atladóttir var ekki með í
gær og munaði um minna í varn-
arleiknum.
Ljósmynd/KSÍ
Endurkoma Margrét Lára Viðarsdóttir á leið inn á völlinn gegn Skotum, í sín-
um fyrsta landsleik frá apríl 2017 en þetta var hennar 118. landsleikur.
Viðvörunar-
bjöllurnar
hringja
Slök frammistaða Íslands gegn
Skotlandi og stórt tap í Portúgal
Parchal, Portúgal, Algarve-bikarinn,
mánudag 4. mars 2019.
Skilyrði: Rigning á köflum, gola og
blautur völlur.
Skot: Skotland 12 (9) – Ísland 6 (3).
Horn: Skotland 4 – Ísland 2.
Skotland: (4-4-2) Mark: Shannon
Lynn. Vörn: Kirsty Smith, Rachel Cor-
sie, Jennifer Beattie, Nicola Docherty
(Hayley Lauder 88). Miðja: Caroline
Weir, Leanne Crichton (Joanne Love
71), Kim Little, Claire Emslie (Fiona
Brown 62). Sókn: Erin Cuthbert (Zoe
Ness 62), Lizzy Arnott (Abigail Harr-
ison 88).
Skotland – Ísland 4:1
Ísland: (4-5-1) Mark: Sonný Lára Þrá-
insdóttir. Vörn: Guðrún Arnardóttir
(Ásta Eir Árnadóttir 59), Glódís Perla
Viggósdóttir, Anna Björk Kristjáns-
dóttir, Hallbera Gísladóttir. Miðja: Rak-
el Hönnudóttir (Elín Metta Jensen 59),
Andrea Hauksdóttir (Sigríður Garð-
arsdóttir 46), Sara B. Gunnarsdóttir,
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Margrét
Lára Viðarsdóttir 73), Agla María Al-
bertsdóttir (Selma Sól Magnúsdóttir
46). Sókn: Svava Rós Guðmundsdóttir
(Dagný Brynjarsdóttir 82).
Dómari: Laura Fortunato, Argentínu.
Áhorfendur: Um 100.
1:0 Lizzy Arnott 14. meðskoti rétt innan vítateigs
eftir að íslenska vörnin skallaði frá
markinu í kjölfar hornspyrnu.
2:0 Erin Cuthbert 34. renndiboltanum frá vítapunkti í
hægra hornið eftir að íslenska liðið
hafði misst hann klaufalega rétt ut-
an vítateigs.
3:0 Kim Little 56. með skotirétt innan vítateigs upp í
vinstra hornið eftir að Cuthbert
skaut í varnarmann.
3:1 Sara Björk Gunnarsdóttir58. með skoti rétt innan
vítateigs í hægra hornið niðri eftir
fyrirgjöf Svövu Rósar frá hægri og
misheppnaða hreinsun varn-
armanns.
4:1 Lizzy Arnott 67. fékklanga sendingu innfyrir
vörn Íslands og skoraði í annarri til-
raun eftir að Sonný varði frá henni.
I Gul spjöld:Weir (Skotlandi) 3. (brot).
Sara Björk Gunnarsdóttir skor-
aði sitt 20. mark fyrir íslenska
landsliðið og er sjötti leikmaðurinn
sem nær þeim markafjölda frá upp-
hafi.
Margrét Lára Viðarsdóttir lék
sinn fyrsta landsleik í tvö ár þegar
hún kom inn á 20 mínútum fyrir
leikslok.
Ísland mætir Portúgal í leik um 9.
sæti Algarve-bikarsins á morgun.
Portúgal og Ísland voru með bestan
árangur liðanna í þriðja sæti riðl-
anna, Portúgal fékk 3 stig og Ísland
1, á meðan Evrópumeistarar Hol-
lands og Kínverjar voru stigalausir á
botni sinna riðla og leika um 11. sæt-
ið á mótinu. Portúgal virtist lengi vel
á leið í úrslitaleik mótsins, vann Svía
og var yfir í hálfleik gegn Sviss, en
tapaði að lokum 1:3 og varð neðst í
riðlinum á markatölu. Pólland hefur
komið mest allra á óvart, vann bæði
Holland og Spán og mætir Noregi í
úrslitaleik mótsins. Kanada og Sví-
þjóð leika um bronsið. Allir leikir um
sæti fara fram á morgun. vs@mbl.is
Leika um 9. sætið við Portúgal
Ljósmynd/KSÍ
Algarve Byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Skotum í Parchal í gær.
ALGARVE-BIKAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Óhætt er að segja án þess að taka
stórt upp í sig að frammistaða ís-
lenska kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu gegn Skotum í Algarve-
bikarnum í Portúgal í gær hafi ekki
verið neitt sérstök. Skotar unnu afar
öruggan sigur, 4:1, og hann hefði jafn-
vel getað verið stærri miðað við gang
mála en skoska liðið var mun betri að-
ilinn megnið af leiktímanum.
Það er áhyggjuefni að íslenska liðið
skuli vera að dragast aftur úr Skotum,
eins og þessi leikur bar vitni um.
Skoska liðið var einfaldlega betra,
samstilltara, kraftmeira og miklu
öruggara með boltann en það ís-
lenska. Miðað við leiki Íslands og
Skotlands undanfarin ár, þar sem Ís-
land hefur frekar haft yfirhöndina, þá
hlýtur það að hringja viðvör-
unarbjöllum þegar þær skosku vinna
jafn auðveldan sigur og raun bar vitni
í gær. Jafnvel þó þær séu að búa sig
undir HM í sumar en íslenska liðið sé
að búa sig undir undankeppni EM
sem hefst í haust. Það á ekki að afsaka
þann mun sem var á þessum tveimur
liðum í gær.
Rétt eins og gegn Kanada á mið-
vikudaginn gekk íslenska liðinu afar
illa að halda boltanum og byggja upp
markvissar sóknir. Þá varðist það
hinsvegar vel en að þessu sinni voru
margar brotalamir í varnarleiknum
og annað mark Skota var til dæmis
hrein gjöf.
Besti kafli Íslands var um miðjan
síðari hálfleik, eftir að liðið lenti 3:0
undir. Þá náði Sara Björk Gunn-
arsdóttir að skora gott mark og í kjöl-
farið átti náði liðið upp ágætum sókn-
arþunga með Svövu Rós
Guðmundsdóttur í stóru hlutverki.
Samt skoruðu Skotar sitt fjórða mark
og eftir það fjaraði krafturinn heldur
úr íslenska liðinu á ný.
Margrét Lára Viðarsdóttir lék síð-