Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 1

Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 1
FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 ÍÞRÓTTIR Íþróttir mbl.is Noregsmeist- urum Elverum tókst ekki að komast í efsta sæti deildarinnar í gærkvöldi. Lið- ið tapaði með fjögurra marka mun fyrir Dram- men, 26:22, á úti- velli. Sigvaldi Björn Guð- jónsson skoraði 3 mörk fyrir Elver- um en Þráinn Orri Jónsson komst ekki á blað. Óskar Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir Drammen sem situr í þriðja sæti. Elverum deilir efsta sætinu með Arendal. iben@mbl.is Meistararnir töpuðu Sigvaldi Björn Guðjónsson Patrekur Jóhannesson hefur óvænt verið leystur undan samningi nú þegar við austurríska hand- knattleikssambandið um þjálfun karlalandsliðs Austurríki. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem Handknattleikssamband Austurríkis gaf út út síð- degis í gær. Þar segir m.a. að ákvörðunin sé nið- urstaðan af viðræðum milli yfirmanna sambands- ins og Patreks, að samstarfinu skuli slitið og að annar þjálfari komi að þjálfun landsliðsins og stýri undirbúningi og þátttöku á Evrópumeistara- mótinu á næsta ári. Mótið mun m.a. fara fram í Austurríki en einnig í Noregi og í Svíþjóð. Samn- ingur Patreks við austurríska sambandið átti að vera í gildi fram yfir EM á næsta ári. Haft er m.a. eftir íþróttastjóra austurríska handknattleikssambandsins að árangur landsliðs- ins á heimsmeistaramótinu í Danmörku og Þýska- landi í janúar hafi valdið vonbrigðum en liðið hafn- aði í 19. sæti. Patrekur tók við þjálfun austurríska landsliðs- ins af Magnus Andersson sumarið 2011. Undir stjórn Patreks hefur austurríska landsliðið tekið þátt í fjórum stórmótum, EM 2014, HM 2015, EM 2018 og HM 2019. Enginn af forverum Patreks í starfi hefur náð viðlíka árangri. Undir hans stjórn lék landsliðið 106 landsleiki, vann 45, tapaði 55 og gerði sex sinnum jafntefli. Eftir HM 2015 stokkaði Patrekur upp í lands- liðshópnum. Hann kallaði inn yngri leikmenn sem borið hafa liðið uppi síðan. Patrekur vildi ekki tjá sig um uppsögnina við Morgunblaðið í gær. Vísaði hann í fyrrgreinda yf- irlýsingu. Í henni væri sagt allt sem segja þyrfti en samkomulagsslitin hefðu verið gerð í bróðerni. Patrekur tekur við þjálfun danska úrvalsdeild- arliðsins Skjern í sumar. iben@mbl.is Sá sigursælasti er hættur  Óánægja með árangurinn á HM er sögð ástæða fyrir brotthvarfi Patreks marki liðsins allt keppnistímabilið og varla verið undir 40% hlutfalls- markvörslu. Hún er að mínu mati besti leikmaður deildarinnar. Ég sé fyrir mér að ÍBV reyni að vera með sjö menn í sókn til þess að skapa meira pláss fyrir sóknar- mennina því Valsliðið leikur vörn- ina mjög aftarlega og afar vel. Það er eitthvað sem segir mér að það kvikni á Eyjaliðinu og að Valur muni alls ekki keyra yfir það. Eitt- hvað segir mér að ÍBV vinni leik- inn og fari í úrslitin,“ sagði Jón- atan Þór. Hræddur fyrir hönd Stjörnunnar Þótt Stjarnan hafi tekið stór- stígum framförum í síðustu viku þá telur Jónatan Þór að hún muni eiga á brattann að sækja á móti Fram í síðari undanúrslitaleik kvöldsins. „Ég er hræddur fyrir hönd Stjörnunnar um að Fram- liðið komst í keyrslugírinn sinn og þar með takist Stjörnunni lítt að sýna sinn helsta styrkleika sem er mjög góð vörn eins og Fram fékk kynnast í deildarleik liðanna í síð- ustu viku. Í svona mikilvægum leikjum verður spennustigið hátt og fyrir vikið fjölgar tæknilegum mistökum. Ef svo fer þá gæti Fram-liðið lent í jafnari leik þar sem meira reynir á uppstilltan leik, sem er nokkuð sem liðið vill helst ekki leika. Stjarnan þarf að halda hrað- anum niðri og takmarka mistök sín til þess að eiga möguleika á að veita Fram keppni að þessu sinni,“ sagði Jónatan Þór Magnússon, þjálfari kvennaliðs KA/Þórs. Gerist oft eitthvað óvænt  Leikið til undanúrslita í bikarkeppni kvenna í handknattleik í kvöld  Nær lið ÍBV að leysa varnarleik Valsliðsins?  Tekst Stjörnunni að halda hraðanum niðri? Morgunblaðið/Hari Undanúrslit Búast má við hörkuleik milli ÍBV og Vals í Laugardalshöllinni en viðureign þeirra hefst kl. 18. Óðinn Þór Rík- harðsson og sam- herjar í GOG endurheimtu í gærkvöld efsta sæti dönsku úr- valsdeildarinnar í handknattleik. GOG vann lið År- hus Håndbold, 30:26, á heima- velli. Århus Håndbold var marki yfir í hálfleik, 15:14. Óðinn Þór skoraði þrjú mörk en þurfti til þess sjö skot. GOG hefur 36 stig að loknum 23 umferðum í deildinni. Aalborg Håndbold er stigi á eftir. Holstebro og Skanderborg hafa 30 stig í þriðja og fjórða sæti. Þrjár umferð- ir eru eftir af keppni í úrvalsdeild- inni. iben@mbl.is Óðinn og félagar efstir Óðinn Þór Ríkharðsson Norska landsliðið í knattspyrnu kvenna fór með sigur af hólmi á Algarve-bikarnum í gærkvöldi eftir öruggan sigur á pólska landsliðinu, 3:0, í úrslitaleik. Pólska landsliðið hefur komið mörgum á óvart á mótinu að þessu sinni og náð lengra en talið var fyrirfram. Hinsvegar átti það við ofurefli að etja í úrslita- leiknum við norska landsliðið. Isabell Herlovsen kom norska landsliðinu á bragðið í úrslita- leiknum þegar hún skoraði á 24. mínútu. Carloine Graham Hansen bætti við öðru marki á 64. mínútu eftir sendingu frá Karin Sævik. Sæ- vik innsiglaði sigurinn níu mínútum síðar eftir undirbúning Guro Rei- ten. Landslið Kanada hreppti brons- verðlaunin með sigri á sænska landsliðinu, 6:5, í vítaspyrnukeppni en markalaust var að loknum hefð- bundnum leiktíma á Estádio Do Algarve. iben@mbl.is Norðmenn hrepptu gullverðlaun ÍBV Bikarmeistari: 2002, 2002, 2004. Í bikarúrslitum: sjö sinnum. Staðan í deildinni: 4. sæti í úr- valsdeild. Valur Bikarmeistari: 1988, 1993, 2000, 2012, 2013, 2014. Í bikarúrslitum: tólf sinnum. Staðan í deildinni: Í 1. sæti í úr- valsdeild. Stjarnan Bikarmeistari: 1989, 1996, 1998, 2005, 2008, 2009, 2016, 2017. Í bikarúrslitum: fimmtán sinn- um. Staða í deildinni: sjötta sæti í úrvalsdeild. Fram Bikarmeistari: 1978, 1979, 1980, 1982, 1984, 1985, 1986, 1987, 1990, 1991, 1995, 1999, 2010, 2011, 2018. Í bikarúrslitum: Nítján sinnum. Staðan í deildinni: annað sæti í úrvalsdeild. HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Flestir búast við að Valur og Fram leiki til úrslita í bikarnum en það gerist oft eitthvað óvænt í þessari keppni og ég býst alveg eins við að ÍBV leiki til úrslita við Fram,“ sagði Jónatan Þór Magn- ússon, þjálfari kvennaliðs KA/Þórs í handknattleik, spurður um und- anúrslitaleikina í Coca Cola- bikarkeppni kvenna sem fram fara í Laugardalshöll í kvöld. Fyrri við- ureignin hefst klukkan 18 og þá mætast ÍBV og Valur en klukkan 20.15 takst leikmenn Stjörnunnar og ríkjandi bikarmeistara Fram á um sæti í úrslitaleiknum sem fram fer á laugardaginn. „Síðast þegar ÍBV og Valur mættust þá gekk hvorki né rak hjá ÍBV á sama tíma og allt gekk upp hjá Val. Ég hef enga trú á að eitthvað svipað verði upp á ten- ingnum að þessu sinni,“ sagði Jón- atan. „ÍBV-liðið hefur sótt í sig veðrið síðan og við lékum meðal annars við ÍBV í átta liða úrslitum ekki fyrir svo löngu. Lykilatriði fyrir ÍBV verður að fækka einföld- um mistökum sem verða þess valdandi að Valur fær hvert hraða- upphlaupið á fætur öðru. Val hefur einnig tekist að leysa fimm einn vörn ÍBV-liðsins fram til þessa. Ég er viss um að þetta verður hörkuleikur því það býr mikil reynsla innan Eyjaliðsins, meðal annars í Ester Óskarsdóttur, Örnu Sif Pálsdóttur, Gretu Kaval- iuskaite, Sunnu Jónsdóttur og Guðnýju Jennýju Ásmundsdóttur markverði. Að sama skapi hafa mörg lið náð að leysa sterkan varnarleik Vals- liðsins sem verst aftur á línu með Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur og Gerði Arinbjarnar í aðalhlutverki auk þess sem Íris Björk Sím- onardóttir hefur verið frábær í Karlalandsliðið í fótbolta Fimmtán dagar í fyrsta leikinn í undankeppni EM 2020. Misjafnt ástand á landsliðsmönnunum. Lykilmenn eins og Gylfi og Aron í góðri leikæfingu meðan aðrir hafa lítið spilað. 2-3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.