Morgunblaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 25. MARS 2019
ÍÞRÓTTIR
Körfubolti Valskonur eru óstöðvandi í körfuboltanum. Valur deildarmeistari í fyrsta sinn eftir 17. sigur-
inn í röð í Dominos-deildinni. KR og Snæfell berjast um sæti í úrslitakeppninni. Breiðablik er fallið. 6
Íþróttir
mbl.is
Byrjunarlið Frakklands í kvöld verður að mestu
leyti eins og það sem vann Króatíu í úrslitaleik
HM í Rússlandi síðasta sumar. Valinn maður
verður í hverju rúmi þrátt fyrir „minni háttar“
skakkaföll en Kingsley Coman, kantmaður Bay-
ern München, varð að draga sig úr hópnum í gær
vegna meiðsla. Áður höfðu Anthony Martial úr
Manchester United og Lucas Digne, bakvörður
Everton, hrokkið úr skaftinu.
Að sögn franskra fjölmiðlamanna sem Morgun-
blaðið ræddi við í París í gær má ætla að
byrjunarlið Frakklands verði svona skipað:
Líklegt byrjunarlið: Lloris (Tottenham) – Pav-
ard (Stuttgart), Varane (Real Madrid), Umtiti
(Barcelona), Kurzawa (PSG) – Kanté (Chelsea),
Pogba (Man. Utd) – Mbappé (PSG), Griezmann
(Atl. Madrid), Matuidi (Juventus) – Giroud
(Chelsea). Þetta er sigurliðið frá því á HM fyrir
utan að Lucas Hernandez er meiddur og Layvin
Kurzawa leysir hann af hólmi.
Hugsanlegt er að Samuel Umtiti, sem hefur
ekki átt fast sæti í liði Barcelona í vetur, víki úr
vörninni fyrir Presnel Kimpembe úr PSG, í ljósi
þess hve stutt er frá sigri Frakka á Moldóvum, á
föstudagskvöld. Allt útlit er því fyrir að 4-5 breyt-
ingar verði á liði Frakka frá liðinu sem byrjaði
gegn Íslandi í 2:2-jafnteflinu í Guingamp í októ-
ber, í vináttulandsleik. Hugo Lloris fyrirliði og Di-
dier Deschamps þjálfari voru þráspurðir um þann
leik á blaðamannafundi í gær en ítrekuðu að um
vináttulandsleik hefði verið að ræða og að búast
mætti við meiru af franska liðinu í kvöld. Lloris
sagði að í þeim leik hefðu leikmenn sem minna
hefðu spilað fengið tækifæri til að sýna sig og
sanna, en að nú væri einblínt á það að ná í sigur
gegn erfiðu liði Íslendinga. sindris@mbl.is
Tíu af ellefu sem unnu HM
Ísland mætir nánast sama byrjunarliði og tryggði Frakklandi gull í Rússlandi
Í PARÍS
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta stendur
frammi fyrir nær ókleifu fjalli þegar það mætir
heimsmeisturum Frakklands hér í París í kvöld.
Eftir fínan 2:0-sigur á Andorra, áhugamannaliði
í 132. sæti heimslistans, er komið að leik við
besta lið heims á Stade de France kl. 19.45.
Frakkar eru langsigurstranglegasta liðið í H-
riðli og hvert stig unnið gegn þeim mikill bónus
í baráttunni um sæti í lokakeppni EM á næsta
ári. Ætla má að sú barátta verði í raun barátta
um 2. sæti við Tyrkland eða Albaníu, en tvö lið
komast upp úr hverjum riðli. Ekkert er þó úti-
lokað.
Ísland hefur unnið fáeina afar frækna sigra á
útivöllum á síðustu árum. Má þar helst nefna
1:0-sigurinn á Hollandi í Amsterdam 2015 og
3:0-sigurinn á Tyrklandi haustið 2017, sem báð-
ir voru algjörir lykilsigrar í að koma liðinu á
stórmót. Liðið vann svo auðvitað Austurríki og
England á EM 2016, fyrrnefnda sigurinn ein-
mitt á Stade de France, og margir fræknir sigr-
ar hafa unnist á Laugardalsvelli. Aldrei hefur
liðið þó staðið frammi fyrir eins erfiðu verkefni
og í kvöld og náð að fagna sigri. Stærri próf-
raun er ekki til. Jafnvel jafntefli myndi flokkast
sem einn almesti sigur þessa landsliðs frá upp-
hafi.
„Það er ástæða fyrir því að þeir eru heims-
meistarar. Það er erfitt að finna veikleika í
þessu liði en við erum búnir að grandskoða þá
vel og lengi og það er auðvelt því þessir leik-
menn eru að spila í sjónvarpinu í hverri viku,“
segir Aron Einar Gunnarsson fyrirliði.
„Þetta er ólík áskorun frá síðasta leik. Við
vitum að við munum ekki hafa boltann eins
mikið og gegn Andorra og við þurfum að verj-
ast almennilega. Við vitum að Frakkar geta
leikið andstæðinginn grátt og hvaða leikmenn
þeir hafa, sem spila í bestu liðum Evrópu. Við
þurfum að vera vel meðvitaðir um hæfileikana
þeirra, þetta verður erfitt en við trúum því allt-
af að við getum náð góðum úrslitum. Þá þurfa
allir að vera tilbúnir,“ segir Aron.
Þrjár breytingar á byrjunarliðinu?
Jóhann Berg Guðmundsson er hins vegar
ekki tilbúinn. Jóhann leikur ekki með Íslandi í
kvöld vegna kálfameiðsla sem hafa angrað hann
undanfarið þó að hann hafi komist í gegnum 80
mínútur gegn Andorra á föstudaginn, og hélt
hann heim til Englands í gær. Ekki þarf að fjöl-
yrða um hve mikið áfall þetta er fyrir íslenska
liðið.
Erik Hamrén mun því þurfa að breyta byrj-
unarliði sínu og raunar var alltaf útlit fyrir að
sú yrði raunin. Íslenska liðið hefur undir stjórn
Svíans aðeins prófað sig áfram með þriggja
miðvarða kerfi og margt bendir til þess að sú
verði raunin í kvöld. Fyrir utan Jóhann eru allir
leikmenn klárir í slaginn. Meiðsli hans gætu
gefið Rúnari Má Sigurjónssyni tækifæri í liðinu
en einnig gæti Arnór Sigurðsson þá haldið sæti
sínu þrátt fyrir fjölgun í vörninni. Hugsanlegt
byrjunarlið: Hannes – Birkir Már, Sverrir Ingi,
Kári, Ragnar, Hörður Björgvin – Aron Einar,
Birkir Bjarna, Rúnar Már – Gylfi Þór, Alfreð.
Þetta myndi þýða að þrjár mannabreytingar
yrðu á liðinu frá síðasta leik, eða að þeir Hörð-
ur Björgvin Magnússon, Sverrir Ingi Ingason
og Rúnar Már kæmu inn í stað Jóhanns, Arn-
órs og Ara Freys Skúlasonar.
Stærri prófraun ekki til
Ísland án Jóhanns þegar liðið mætir heimsmeisturum Frakka á Stade de
France Jafntefli yrði frækinn sigur Fimm varnarmanna kerfi í kvöld?
AFP
Heimsmeistarar bíða Viðar Örn Kjartansson, Kári Árnason og Aron Einar Gunnarsson einbeittir á
æfingu íslenska landsliðsins á Stade de France í gær, þar sem liðið mætir stórliði Frakka í kvöld.
Ísland hefur aldrei landað sigri gegn
Frakklandi í knattspyrnu karla. Liðin
hafa mæst 18 sinnum ef allt er talið og
hefur Frakkland unnið 13 leiki en liðin
fimm sinnum gert jafntefli, síðast í
vináttulandsleik í Guingamp í október,
2:2. Birkir Bjarnason og Kári Árnason
skoruðu mörk Íslands en Frakkar jöfn-
uðu undir lokin með sjálfsmarki Hólm-
ars Arnar Eyjólfssonar og vítaspyrnu
Kylian Mbappé, eftir að Kolbeinn Sig-
þórsson handlék boltann.
Liðin mættust
síðast í mótsleik á
Stade de France í
8 liða úrslitum EM
2016. Olivier Gir-
oud, Paul Pogba,
Dimitri Payet og
Antoine Griez-
mann komu Frakk-
landi í 4:0 í fyrri
hálfleiknum, en
Giroud skoraði einnig í seinni hálfleik.
Kolbeinn Sigþórsson og Birkir Bjarna-
son skoruðu mörk Íslands. Birkir hefur
skorað í þremur síðustu leikjum við
franska landsliðið því hann skoraði
einnig í 3:2-tapi í Frakklandi 2012, í
einum af fyrstu leikjum Íslands undir
stjórn Lars Lagerbäck. Kolbeinn Sig-
þórsson skoraði hitt markið.
Ísland náði ilegræknu 1:1-jafntefli
við Frakka í undankeppni EM haustið
1998, þegar Frakkar voru eins og nú
ríkjandi heimsmeistarar. Ríkharður
Daðason kom Íslandi yfir um miðjan
fyrri hálfleik en Christophe Dugarry
jafnaði metin fyrir gestina á Laugar-
dalsvelli. Í seinni rimmu liðanna í þeirri
keppni, á Stade de France, skoruðu
Brynjar Björn Gunnarsson og Eyjólfur
Sverrisson í 3:2-tapi.
Raphaël Varane, miðvörður Frakk-
lands og Real Madrid, var í 3. sæti hjá
Aroni Einari Gunnarssyni í kjöri FIFA á
knattspyrnu-
manni ársins
2018. Aron hafði
atkvæðisrétt
sem fyrirliði Ís-
lands og var
með Luka
Modric, Cris-
tiano Ronaldo
og Varane í
efstu þremur
sætunum. Var-
ane endaði í 9.
sæti í kjörinu
en Kylian
Mbappé varð
efstur Frakka í
4. sæti.
Eitt
ogannað