Morgunblaðið - 25.03.2019, Síða 2
Rafn Kumar Bonifacius og Anna
Soffía Grönholm vörðu Íslands-
meistaratitla sína í tennis innanhúss
en Íslandsmótinu lauk í tennishöll-
inni í Kópavogi í gær.
Rafn Kumar mætti föður sínum,
Raj Bonifacius, í úrslitaleiknum í
karlaflokki og hafði Rafn betur í
tveimur settum. Hann vann það
fyrra 6:3 og það seinna 6:0.
Björgvin Atli Júlíusson hafnaði í
þriðja sæti eftir að hafa haft betur
gegn Vladimir Ristic.
Feðgarnir Rafn Kumar og Raj
urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik
eftir sigur í úrslitaleik á móti Brynj-
ari Engilbertssyni og Björgvini Atla
Júlíussyni í úrslitaleik.
Anna Soffía hafði betur í úrslita-
leiknum í kvennaflokki gegn Sofiu
Sóley Jónasdóttur. Anna Soffía vann
í tveimur settum 6:1 og 6:2.
Þær Anna Soffía og Sofia Sóley
fögnuðu sigri í tvíliðaleik en þær
höfðu betur í úrslitaleik á móti Ingi-
björgu Önnu Hjartardóttur og
Selmu Dagmar Óskarsdóttur í úr-
slitaleiknum. Í tvenndarleiknum
hrósuðu Kristín Dana Husted og
Magnús Ragnarsson sigri.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslandsmeistarar Rafn Kumar Bonifacius og Anna Soffía Grönholm.
Rafn og Anna
vörðu titla sína
Rafn lagði föður sinn í úrslitum
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 569 1100, sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Auglýsingar sími 569 1111 , augl@mbl. is Prentun Landsprent ehf.
Íslenska kvenna-
landsliðið í hand-
knattleik hafnaði
í öðru sæti á Bal-
tic mótinu í hand-
knattleik sem
lauk í Gdansk í
Póllandi í gær. Ís-
lenska liðið vann
tvo síðustu leiki
sína á mótinu. Á
laugardaginn
hafði það betur gegn Argentínu
31:26 og í gær hrósaði íslenska liðið
sigri gegn Slóvökum 30:28. Slóvak-
ar voru þremur mörkum yfir eftir
fyrri hálfleikinn 17:14 en Íslend-
ingar sneru taflinu við í seinni hálf-
leik og uppskáru tveggja marka sig-
ur.
„Þetta var virkilega góður sigur
hjá stelpunum í dag. Við byrjum
leikinn vel en misstum svolítið takt-
inn og lentum mest fimm mörkum
undir. Seinni hálfleikurinn var frá-
bær af okkar hálfu þar sem vörnin
small saman og Elín Jóna var virki-
lega góð í markinu. Það var ró og
yfirvegun í sókninni og þetta skilaði
okkur sigri,“ sagði Axel Stefánsson
landsliðsþjálfari við Morgunblaðið
eftir leikinn.
„Ég sá margt mjög jákvætt á
þessu móti. Við spiluðum frábæran
leik á móti Pólverjum en töpuðum
leiknum á síðustu fimm mínútum
leiksins. Liðið sýndi mikinn karakt-
er í leiknum á móti Argentínu. Arg-
entína náði að jafna metin um miðj-
an seinni hálfleik en stelpurnar
stóðu vel saman og náðu að landa
góðum sigri. Slóvakía er skráð ein-
um styrkleikaflokki fyrir ofan okk-
ur en þetta var fjórði sigur okkar á
móti Slóvökum á stuttum tíma og
það var virkilega sterkt hjá okkur
að vinna þá. Við fengum mörg góð
svör á þessu móti og það er klárlega
mikil stígandi í leik liðsins. Við vild-
um sjá hversu við erum komin ná-
lægt þjóðum eins og Pólland og nú
skortir okkur bara herslumuninn að
komast á næsta stig,“ sagði Axel en
mótið var liður í undirbúningi lands-
liðsins fyrir umspilsleikina gegn
Spánverjum um sæti á HM sem fram
fara í lok maí og byrjun júní.
Mörk Íslands: Þórey Rósa Stef-
ánsdóttir 8, Karen Knútsdóttir 7,
Ragnheiður Júlíusdóttir 3, Birna
Berg Haraldsdóttir 2, Andrea Ja-
cobsen 2, Thea Imani Sturludóttir 2,
Steinunn Björnsdóttir 2, Perla Ruth
Albertsdóttir 2, Arna Sif Pálsdóttir
1, Ester Óskarsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 9,
Elín Jóna Þorsteinsdóttir 10.
gummih@mbl.is
Góður sigur
gegn Sló-
vökum í
Gdansk
Þórey Rósa
Stefánsdóttir
Í DIGRANESI
Andri Yrkill Valsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Blaklið KA komu, sáu og sannarlega
sigruðu í úrslitahelgi bikarkeppn-
innar í blaki sem fram fór í Digra-
nesi um helgina. Kvennalið KA vann
sinn fyrsta bikarmeistaratitil með
3:1-sigri á HK, áður en karlaliðið
fylgdi því eftir með 3:0 sigri á Álfta-
nesi. Það var annar bikarmeistara-
titill karlaliðsins í röð. Bæði liðin
urðu deildarmeistarar fyrr í vetur
og hafa því möguleika á þrennunni;
nokkuð sem karlalið félagsins afrek-
aði einnig á síðasta ári.
Úrslitaleikirnir í gær voru sann-
kölluð rússíbanareið fyrir Miguel
Mateo. Hann er þjálfari kvennaliðs
KA og er lykilmaður í karlaliðinu.
Eftir að hafa unnið bikarinn með
kvennaliðinu tók hann yfir karlaleik-
inn, var stigahæstur á vellinum með
25 stig og var útnefndur besti leik-
maður úrslitaleiksins. Hann átti
skiljanlega fullt í fangi með að orða
tilfinningar sínar við Morgunblaðið
eftir seinni leikinn, þá nýorðinn tvö-
faldur bikarmeistari.
„Þetta er ótrúleg tilfinning. Ég
kláraði kvennaleikinn og svo sagði
þjálfarinn að ég hefði tíu mínútur til
þess að gera mig tilbúinn, en ég var
bara grátandi úr gleði. Ég var svo
stressaður yfir kvennaleiknum og
var alltaf á ferðinni, svo ég þurfti lít-
ið að hita upp fyrir karlaleikinn. Ég
kom til KA til þess að upplifa ná-
kvæmlega svona stundir. Mér líður
eins og ég hafi skilað góðu dags-
verki. Ég græt eins og barn því allt
gekk upp og öll vinnan skilaði sér.
Þetta er fullkomið,“ sagði Mateo við
Morgunblaðið.
Úrslitaleikur karla var æsispenn-
andi þrátt fyrir að KA-menn hafi
unnið 3:0. Fyrstu tvær hrinurnar
voru hnífjafnar þar sem norðan-
menn eltu lengi vel, en sigu svo fram
úr í lokin, 25:22 og 25:23. Stemningin
var lengst af meiri hjá Álftanesi,
sem púslaði saman svo til nýju liði
eftir að Stjarnan lagði niður blaklið
sín í fyrra, en það vantaði herslu-
muninn til þess að standast KA-
mönnum snúninginn. Þegar komið
var fram í lokahrinuna, sem KA
vann 25:17, var alveg ljóst að KA-
menn ætluðu ekki að gefa titilinn
eftir. Þjálfarinn Filip Szewczyk er
ótrúlegur uppspilari sem gerir
gæfumuninn á úrslitastundum og sú
var sannarlega raunin í gær.
Fyrsti bikartitill kvennaliðsins
Kvennalið KA varð deildarmeist-
ari í annað skiptið fyrr á tímabilinu
og hefur þar með unnið tvöfalt í ár,
en 3:1-sigurinn á HK í gær var fyrsti
bikarmeistaratitillinn.
Liðin voru afar jöfn í fyrstu hrinu
og hafði KA að lokum betur eftir
upphækkun, 29:27. HK svaraði hins
vegar með öruggum 25:12-sigri í
annarri hrinu og virtist meðbyrinn
vera hjá HK. Strax í upphafi þriðju
hrinu meiddist Matthildur Ein-
arsdóttir, liðsmaður HK. HK-ingar
áttu erfitt með að jafna sig eftir það
áfall og vann KA tvær næstu hrinur
örugglega; 25:16 og 25:19 og leikinn í
leiðinni. Elísabet Einarsdóttir og
Hjördís Eiríksdóttir voru í sérflokki
hjá HK á meðan breidd KA skilaði
liðinu bikartitlinum. Margir leik-
menn lögðu sitt af mörkum og var
um sannkallaðan liðssigur að ræða.
Helena Kristín Gunnarsdóttir var
maður leiksins og skoraði 17 stig.
Fyrirliðinn Hulda Elma Eysteins-
dóttir var glæsilegur leiðtogi á vell-
inum og erlendu leikmennirnir;
Paula del Olmo og Luz Medina stóðu
fyrir sínu.
Fyrrnefndur Miguel Mateo er að
gera gríðarlega góða hluti sem þjálf-
ari, en hann vann einmitt þrefalt
með Þrótti Neskaupstað á síðustu
leiktíð, ásamt del Olmo. Um afar
færan þjálfara er að ræða.
KA-liðin eru búin að vinna tvöfalt í
ár og það er ekki ólíklegt að það
verði þrefalt þegar upp er staðið.
Fram undan er úrslitakeppnin um
Íslandsmeistaratitilinn og er erfitt
að sjá eitthvert lið stöðva KA-liðin.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fögnuður Mason Casner fer fyrir gleði KA eftir bikarmeistaratitil karla-
liðsins. Miguel Mateo, þjálfari kvennaliðsins, er lengst til hægri.
Tvöföld bikargleði KA
Karla- og kvennalið KA urðu bikarmeistarar í blaki Þjálfari kvennaliðsins
var valinn besti leikmaður úrslitaleiks karla Fékk tíu mínútur til að þerra tárin
Morgunblaðið/Hari
Bikarmeistarar Hulda Elma Eysteinsdóttir, Gígja Guðnadóttir og Paula
Del Olmo með bikarinn eftir fyrsta bikarmeistaratitil kvennaliðs KA í gær.