Morgunblaðið - 25.03.2019, Page 5

Morgunblaðið - 25.03.2019, Page 5
KA uppskar eins og til var sáð KA-menn voru frá upphafi leiks að Varmá í gærkvöldi mikið sólgnari í sig- urinn en leikmenn Aftureldingar. Norðanmenn enda að berjast á tvenn- um vígstöðvum, annars vegar að halda sæti sínu í Olísdeildinni í handknatt- leik og hinsvegar að halda enn í von um áttunda sætið og öðlast þátttöku- rétt í úrslitakeppninni, sem hefði þótt bjartsýni mikil þegar keppni hófst á haustdögum. Aftureldingarmenn voru miður sín. Þeim tókst aldrei að sýna sitt rétta andlit eftir erfiðar upphafsmínútur. Lokatölur 26:22, fyrir KA eftir að gest- irnir voru marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 12:11. KA-liðið byrjaði leikinn af krafti. Jovan Kukobat, markvörður KA, skellti marki sínu í lás strax í upphafi. Aftureldingarmenn skoruðu aðeins eitt af sex fyrstu mörkum leiksins. Segja má að upphafsmínúturnar hafi endurspeglað framhaldið þótt Aftur- eldingu hafi tekist að jafna metin, 11:11, skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. KA-menn voru ákafari og baráttuglað- ari, vel studdir af litríkum en fámenn- um hópi stuðningsmanna sem mættir voru hálfum öðrum tíma áður, gul- klæddir og vopnaðir trommum. Áki Egilsnes og Tarik Kasumovic báru uppi sóknarleik KA. Samtals skoruðu þeir 21 af 26 mörkum liðsins. Næstur þeirra var Kukobat markvörð- ur með tvö mörk. Varnarleikur KA var góður frá upphafi til enda. Þeir stöðv- uðu sóknarleik Aftureldingar afar vel, ekki síst í síðari hálfleik þegar Kuko- bat slakaði aðeins á eftir frábæran fyrri hálfleik. Allt jafnvægi vantar í leik Aftureld- ingar. Að þessu sinni voru leikmenn nánast eins og miður sín. Herði þeir ekki upp hugann á næstunni er liðið ekki líklegt til þess að vera til stórræð- anna á lokaspretti deildarinnar, hvað þá í úrslitakeppninni. Fram frá fallsvæði og í baráttu Fram vann gríðarlega mikilvægan sigur á ÍR í baráttu neðri hluta deild- arinnar. Framarar voru yfir í hálfleik, 16:12, og létu forskotið aldrei af hendi í Breiðholtinu sem skilaði þeim fimm marka sigri 28:23. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði níu mörk fyrir Fram, sem er nú með 13 stig í tíunda sætinu og komst þremur stigum frá fallsvæðinu. Þá er liðið aðeins einu stigi fyrir aftan ÍR og hefur blandað sér í baráttuna við KA um áttunda sætið inn í úrslitakeppnina. Staða Gróttu versnar enn Grótta náði ekki að halda dampi gegn Stjörnunni, því þrátt fyrir að vera yfir í hálfleik 16:14 mátti liðið sætta sig við tap, 30:27. Seltirningar eru sem fyrr á botninum með átta stig, nú fimm stigum frá öruggu sæti, en tíu mörk Garðars Benedikts Sigurjóns- sonar hjá Stjörnunni vógu þungt þar sem liðið festi sig í sessi í sjöunda sæt- inu með 17 stig. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson H í leik liðanna í Eyjum í gær. ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019 Íþróttahúsið í Eyjum, Olísdeild karla, sunnudaginn 24. mars 2019. Gangur leiksins: 0:3, 3:6, 6:9, 8:11, 9:14, 14:17, 17:20, 20:21, 23:24, 25:26, 28:28, 31:29. Mörk ÍBV: Hákon Daði Styrmisson 13/7, Dagur Arnarsson 4, Elliði Snær Viðarsson 4, Fannar Þór Frið- geirsson 3, Kristján Örn Kristjáns- son 3, Kári Kristján Kristjánsson 2, Daníel Örn Griffin 1, Gabríel Mart- inez 1. Varin skot: Björn Viðar Björnsson 9. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 7/5, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 7, Einar Rafn Eiðsson 5, Arnar Freyr Ársæls- son 3, Birgir Már Birgisson 3, Leon- harð Þorgeir Harðarson 2, Ágúst Birgisson 2. Varin skot: Kristófer Fannar Guð- mundsson 5, Birkir Fannar Bragason 3/1. Utan vallar: 16 mínútur. Dómarar: Sigurgeir M Sigurgeirsson og Ægir Örn Sigurgeirsson. Áhorfendur: 400. ÍBV – FH 31:29 Hleðsluhöllin, Olísdeild karla, sunnudaginn 24. mars 2019. Gangur leiksins: 2:1, 4:4, 6:7, 9:8, 13:10, 15:13, 16:16, 19:19, 21:21, 24:25, 27:29. Mörk Selfoss: Elvar Örn Jónsson 9/3, Árni Steinn Steinþórsson 5, Haukur Þrastarson 5, Atli Ævar Ingólfsson 3, Nökkvi Dan Elliðason 2, Hergeir Grímsson 2, Alexander Már Egan 1. Varin skot: Sölvi Ólafsson 8, Pawel Kiepulski 4. Utan vallar: 0 mínútur. Mörk Hauka: Daníel Þór Ingason 6, Orri Freyr Þorkelsson 5, Ásgeir Örn Hallgrímsson 4, Atli Már Báru- son 3, Brynjólfur Snær Brynjólfs- son 3, Heimir Óli Heimsson 3, Tjörvi Þorgeirsson 2, Adam Haukur Baumruk 2, Jón Þorbjörn Jóhanns- son 1. Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 10. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunn- ar Óli Gústafsson. Áhorfendur: 750. Selfoss – Haukar 27:29 Varmá, Olísdeild karla, sunnudaginn 24. mars 2019. Gangur leiksins: 1:2, 1:5, 4:7, 6:9, 8:11, 11:12, 11:13, 13:14, 14:19, 18:21, 21:23, 22:26. Mörk Aftureldingar: Finnur Ingi Stef- ánsson 7/3, Tumi Steinn Rúnarsson 4/1, Elvar Ásgeirsson 4, Júlíus Þórir Stefánsson 3, Árni Bragi Eyjólfsson 2, Einar Ingi Hrafnsson 2. Varin skot: Pálmar Pétursson 8, Arnór Freyr Stefánsson 5. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk KA: Áki Egilsnes 11/1, Tarik Kas- umovic 10, Jovan Kukobat 2, Jón Heið- ar Sigurðsson 1, Andri Snær Stefáns- son 1, Dagur Gautason 1. Varin skot: Jovan Kukobat 14/1. Utan vallar: 12 mínútur. Dómarar: Bóas Börkur Bóasson og Hörður Aðalsteinsson. Áhorfendur: 200. Afturelding – KA 22:26 Clinch getur gert betur. Það er virki- lega vel gert hjá Grindavík að vinna gegn jafn sterku liði og Stjarnan er, án þess að Clinch hafi átt sérstaklega góð- an leik. Hlynur Bæringsson var stærsta ástæða þess að Stjarnan náði að jafna leikinn undir lokin. Hann er glæsilegur leiðtogi innan vallar og reif hann liðs- félaga sína áfram. Það dugði hins veg- ar ekki til að þessu sinni. Ægir Þór Steinarsson hitti illa, Brandon Rozzell spilaði ekki eins vel og oft áður og lítið kom út úr Tómasi Þórði Hilmarssyni. Annti Kanervo byrjaði mjög vel hjá Stjörnunni, en hann gerði lítið í seinni hálfleik. Stjörnumenn eiga því töluvert inni. Grindavík þarf að spila enn betur til að leggja Stjörnuna að velli í Garða- bænum næstkomandi miðvikudag. Grindvíkingar sönnuðu það hins vegar fyrir sjálfum sér og öðrum, að þeir geta unnið deildar- og bikarmeist- arana, þrátt fyrir að fáir hefðu spáð því fyrir einvígið. Njarðvík stakk af í Breiðholtinu Njarðvíkingar eru ansi nálægt sæti í undanúrslitunum eftir sannfærandi 85:70 sigur á ÍR í Seljaskóla í gær- kvöldi. Njarðvík er nú 2:0 yfir í einvígi liðanna og getur sópað Breiðhyltingum úr keppni á heimavelli næsta miðviku- dag. Suðurnesingar unnu nokkuð nauman sigur í fyrsta leiknum sem var jafn og spennandi eins og báðir deild- arleikir liðanna í vetur. Í gærkvöldi gerðist það loks að annað þessara liða fór með afgerandi sigur af hólmi. Njarðvíkingar voru fastir fyrir, spiluðu gríðarlega góðan varnarleik og voru með yfirhöndina frá fyrsta leikhluta. Maciek Stanislav Baginski var frá- bær í liði Njarðvíkur, skoraði 21 stig og var hreinlega alls staðar á vellinum að gera ÍR-ingum lífið leitt þann hálftíma sem hann spilaði. Hjá heimamönnum var Gerald Robinson stigahæstur með 25 stig en engu að síður var tilfinningin sú í leikslok að hann, rétt eins og aðrir lykilmenn ÍR, gerði ekki nóg þegar á reyndi. Matthías Orri Sigurðarson, sem var einn besti leikmaður Íslands- mótsins í fyrra, var til að mynda skugginn af sjálfum sér og skoraði úr aðeins þremur af þrettán skotum sín- um. Þá voru ÍR-ingar auðvitað án öfl- uga Bandaríkjamannsins Kevin Ca- pers sem tók út leikbann eftir að hafa slegið leikmann Njarðvíkur í fyrsta leiknum. Breidd ÍR liðsins var ekki svo mikil fyrir og munaði um hann. „Við erum að súpa seyðið af heimskupörum Capers,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR, í samtali við Morgunblaðið og eru það orð að sönnu. Njarðvíkingum vex ásmegin Það skal þó ekkert taka af Njarðvík- ingum sem léku frábærlega í Selja- skóla í gær. Þeir töpuðu seinni leik lið- anna í deildarkeppninni og svöruðu fyrir það í síðustu viku þegar úr- slitakeppnin hófst. Í gærkvöldi gengu þeir svo skrefi lengra er þeir héldu ÍR- ingjum í skefjum nær allan leikinn og þögguðu niður í áhorfendum í Selja- skóla sem eru svo oft háværir á pöll- unum. Njarðvíkingar töpuðu bikarúr- slitaleiknum í síðasta mánuði en það virðist hafa gert þá enn hungraðri nú þegar úrslitakeppnin er komin af stað. Það er ljóst að Njarðvíkingar allir ætli að leggja allt í sölurnar í vor. og dramatík í Grindavík gegn Stjörnunni með flautukörfu  Grindavík jafnaði einvígið í 1:1 gegn tvöföldu útivelli og nálgast undanúrslitin  Lykilmenn ÍR koðnuðu niður þegar á reyndi Hertz hellirinn, Dominos-deild karla, 8 liða úrslit, annar leikur, sunnudaginn 24. mars 2019. Gangur leiksins: 2:2, 7:7, 9:13, 10:18, 18:22, 23:28, 27:35, 32:41, 38:49, 40:58, 46:60, 49:65, 57:70, 63:73, 65:78, 70:85. ÍR: Gerald Robinson 25/15 fráköst, Hákon Örn Hjálmarsson 19, Sig- urður Gunnar Þorsteinsson 9/4, Matthías Orri Sigurðarson 9, Hafliði Jökull Jóhannesson 3, Sæþór Elm- ar Kristjánsson 2, Benoný S. Sig- urðsson 2, Sigurkarl R. Jóhann- esson 1. Fráköst: 17 í vörn, 13 í sókn. Njarðvík: Maciek Stanislav Bag- inski 21/4 fráköst, Jeb Ivey 17, Eric Katenda 15/10 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 12, Mario Matasovic 6/4, Elvar Friðriksson 5/9 stoðsend- ingar, Jón A. Sverrisson 5, Logi Gunnarsson 4. Fráköst: 20 í vörn, 10 í sókn. Áhorfendur: 589.  Njarðvík er 2:0 yfir í einvíginu. ÍR – Njarðvík 70:85 ingar, Johann Arni Olafsson 2, Krist- ófer Breki Gylfason 2. Fráköst: 31 í vörn, 7 í sókn. Stjarnan: Antti Kanervo 20/5 stoð- sendingar, Hlynur Elías Bæringsson 20/12 fráköst, Brandon Rozzell 13/9 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 12/4 fráköst/9 stoðsendingar, Collin Pryor 10, Tómas Þ. Hilmarsson 4/5 fráköst, Arnþór F. Guðmundsson 3. Fráköst: 26 í vörn, 10 í sókn. Áhorfendur: 453.  Staðan í einvíginu er 1:1. arnan 84:82 Undankeppni EM karla 2020 C-RIÐILL: Norður-Írland – Hvíta-Rússland ........... 2:1 Jonny Evans 30., Josh Magennis 87.– Igor Stasevich 33. Holland – Þýskaland ............................... 2:3 Matthijs de Ligt 48., Memphis Depay 63. – Leroy Sané 15., Serge Gnabry 34., Nico Schulz 90. Staðan: Norður-Írland 2 2 0 0 4:1 6 Holland 2 1 0 1 6:3 3 Þýskaland 1 1 0 0 3:2 3 Eistland 1 0 0 1 0:2 0 Hvíta-Rússland 2 0 0 2 1:6 0 D-RIÐILL: Georgía – Sviss ........................................ 0:2 Steven Zuber 57., Denis Zakaria 80. Gíbraltar – Írland .................................... 0:1 Jeff Hendrick 49. E-RIÐILL: Wales – Slóvakía ...................................... 1:0 Daniel James 5. Ungverjaland – Króatía.......................... 2:1 Adam Szalai 34., Mate Patkai 76. – Ante Rebic 13. Staðan: Slóvakía 2 1 0 1 2:1 3 Wales 1 1 0 0 1:0 3 Króatía 2 1 0 1 3:3 3 Ungverjaland 2 1 0 1 2:3 3 Aserbaídsjan 1 0 0 1 1:2 0 F-RIÐILL: Malta – Færeyjar ..................................... 2:1 Kyrian Nwoko 13., Steve Borg 77. (víti) – Jákup Thomsen 90. Svíþjóð – Rúmenía................................... 2:1 Robin Quaison 33., Viktor Claesson 40. – Claudiu Keseru 58. Spánn – Noregur ..................................... 2:1 Rodrigo 16., Sergio Ramos 71. (víti) – Jos- hua King 65. (víti). G-RIÐILL: Ísrael – Austurríki................................... 4:2 Eran Zahavi 34., 45., 55., Munas Dabbur 66. – Marko Arnautovic 8., 75. Pólland – Lettland................................... 2:0 Robert Lewandowski 76., Kamil Glik 84. Slóvenía – Norður-Makedónía............... 1:1 Miha Zajc 34. – Enis Bardhi 47. Staðan: Pólland 2 2 0 0 3:0 6 Ísrael 2 1 1 0 5:3 4 N-Makedónía 2 1 1 0 4:2 4 Slóvenía 2 0 2 0 2:2 2 Austurríki 2 0 0 2 2:5 0 Lettland 2 0 0 2 1:5 0 I-RIÐILL: Kasakstan – Rússland ............................. 0:4 Denis Tsjerishev 19., 45., Artem Dzjuba 52., Sjálfsmark 62. San Marínó – Skotland............................ 0:2 Kenny McLean 4., Johnny Russell 74. Kýpur – Belgía......................................... 0:2 Eden Hazard 10., Michy Batshuayi 18. Staðan: Belgía 2 2 0 0 5:1 6 Kýpur 2 1 0 1 5:2 3 Rússland 2 1 0 1 5:3 3 Kasakstan 2 1 0 1 3:4 3 Skotland 2 1 0 1 2:3 3 San Marínó 2 0 0 2 0:7 0 J-RIÐILL: Bosnía – Armenía .................................... 2:1 Rade Krunic 33., Deni Milosevic 80. – Hen- rikh Mkhitaryan 90. (víti). Ítalía – Finnland ...................................... 2:0 Nicolo Barella 7., Moise Kean 74. Liechtenstein – Grikkland ..................... 0:2 Konstantinos Fortounis 45., Anastasios Donis 80.  Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein. Þýskaland A-deild kvenna: Wolfsburg – Mönchengladbach ............. 8:0  Sara Björk Gunnarsdóttir var hvíld í liði Wolfsburg. Duisburg – Leverkusen .......................... 1:0  Sandra María Jessen lék síðasta hálftím- ann með Leverkusen. Spánn B-deild: Sporting Gijon – Real Oviedo ................ 1:0  Diego Jóhannesson lék síðasta hálftím- ann með Real Oviedo. Ítalía Roma – Atalanta ...................................... 0:3  Kristrún Rut Antonsdóttir lék ekki með Roma. Austurríki Vorderland – Sturm Graz ...................... 1:2  Andrea Mist Pálsdóttir lék allan tímann með Vorderland. Danmörk B-deild: Roskilde – Thisted................................... 2:1  Frederik Schram lék í markinu hjá Roskilde. Viborg – Helsingör.................................. 1:1  Ingvar Jónsson lék í markinu hjá Vi- borg. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.