Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 3

Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 3 Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2019. Nánari upplýsingar veitir Valka Jónsdóttir mannauðsstjóri, sími: 563-9300, netfang: mannaudur@landsnet.is. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. VILTU LÁTA LJÓS ÞITT SKÍNA? Við leitum að stjórnanda reksturs flutningsvirkja Við leitum að frábæru samstarfsfólki í okkar lið. Okkur vantar tvo drífandi leiðtoga með brennandi áhuga á því að tryggja framúrskarandi undirbúning að framkvæmdum og tryggja öruggan rekstur flutningskerfis okkar. Síðast en ekki síst leitum við að öflugum verkefnastjóra í okkar fjölbreyttu framkvæmdaverkefni sem fram undan eru. Nánari upplýsingar um okkur eru að finna á www.landsnet.is og á samfélagsmiðlum. Sjáðu hvað við gerum til að halda ljósunum logandi. Við vinnum fyrir þig Við erum þjónustufyrirtæki – við vinnum fyrir þig í takt við samfélagið og höfum sett okkur það markmið að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar. Við viljum vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem umhyggja og öryggi er haft í hávegum. Þannig sköpum við góðan vinnustað með spennandi verkefnum, með gildin okkar – samvinnu, ábyrgð og virðingu – að leiðarljósi. – sem ber ábyrgð á rekstri tengivirkja og raflína okkar um allt land. Stýrir og ber ábyrgð á mannauði einingar, áætlanagerð og undirbúningi verkefna sem unnin eru við flutningsvirkin ásamt umsjón með rekstrarsamningum. Við leitum að stjórnanda vegna undirbúnings framkvæmda – sem ber ábyrgð á að allir ferlar við undirbúning byggingaframkvæmda séu uppfylltir, bæði ferli innan okkar fyrirtækis og samfélagsins. Stýrir og ber ábyrgð á áætlanagerð, mannauði einingar og undirbúningi verkefna ásamt eftirfylgni áætlana og upplýsingagjöf. Við leitum að verkefnastjóra í framkvæmdateymið okkar – sem leiðir verkefni við uppbyggingu og endurnýjun flutningskerfisins frá undirbúningi, í gegnum útboðshönnun, verksamninga og verklega framkvæmd. Ber ábyrgð á áætlunum verkefnis og eftirfylgni þeirra. Ef þú ert með háskólapróf í verkfræði eða sambærilega menntun, með reynslu af stjórnun og rekstri, tæknilega þekkingu á sviði raforku, öryggis- og umhverfisvitund og auðvitað framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og drifkraft þá erum við mögulega að leita að þér. Ef þú ert með háskólapróf sem nýtist í starfið, með reynslu af stjórnun, rekstri og verklegum framkvæmdum, hefur þekkingu á skipulagsvinnu sveitarfélaga og býrð auðvitað yfir framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og drifkrafti þá erum við mögulega að leita að þér. Ef þú ert með háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem verkfræði eða tæknifræði, með góða reynslu og þekkingu á verkefnastjórnun og verklegum framkvæmdum, með reynslu af öryggis- og umhverfismálum og auðvitað framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og drifkraft, þá erum við mögulega að leita að þér. Langar þig að ganga til liðs við okkur?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.