Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 3
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2019.
Nánari upplýsingar veitir Valka Jónsdóttir mannauðsstjóri, sími: 563-9300,
netfang: mannaudur@landsnet.is. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um
starfið á heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
VILTU LÁTA LJÓS ÞITT SKÍNA?
Við leitum að stjórnanda reksturs flutningsvirkja
Við leitum að frábæru samstarfsfólki í okkar lið. Okkur vantar tvo drífandi leiðtoga með brennandi áhuga á því að
tryggja framúrskarandi undirbúning að framkvæmdum og tryggja öruggan rekstur flutningskerfis okkar. Síðast en
ekki síst leitum við að öflugum verkefnastjóra í okkar fjölbreyttu framkvæmdaverkefni sem fram undan eru.
Nánari upplýsingar um okkur eru að finna á www.landsnet.is og á samfélagsmiðlum.
Sjáðu hvað við gerum til að halda ljósunum logandi.
Við vinnum fyrir þig
Við erum þjónustufyrirtæki – við vinnum fyrir þig í takt við samfélagið og höfum sett
okkur það markmið að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar. Við viljum
vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem umhyggja og öryggi er haft í hávegum.
Þannig sköpum við góðan vinnustað með spennandi verkefnum, með gildin okkar –
samvinnu, ábyrgð og virðingu – að leiðarljósi.
– sem ber ábyrgð á rekstri tengivirkja og raflína okkar um allt
land. Stýrir og ber ábyrgð á mannauði einingar, áætlanagerð
og undirbúningi verkefna sem unnin eru við flutningsvirkin
ásamt umsjón með rekstrarsamningum.
Við leitum að stjórnanda vegna undirbúnings framkvæmda
– sem ber ábyrgð á að allir ferlar við undirbúning
byggingaframkvæmda séu uppfylltir, bæði ferli innan okkar
fyrirtækis og samfélagsins. Stýrir og ber ábyrgð á áætlanagerð,
mannauði einingar og undirbúningi verkefna ásamt eftirfylgni
áætlana og upplýsingagjöf.
Við leitum að verkefnastjóra í framkvæmdateymið okkar
– sem leiðir verkefni við uppbyggingu og endurnýjun
flutningskerfisins frá undirbúningi, í gegnum útboðshönnun,
verksamninga og verklega framkvæmd. Ber ábyrgð á áætlunum
verkefnis og eftirfylgni þeirra.
Ef þú ert með háskólapróf í verkfræði eða sambærilega
menntun, með reynslu af stjórnun og rekstri, tæknilega þekkingu
á sviði raforku, öryggis- og umhverfisvitund og auðvitað
framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og drifkraft þá erum
við mögulega að leita að þér.
Ef þú ert með háskólapróf sem nýtist í starfið, með reynslu af
stjórnun, rekstri og verklegum framkvæmdum, hefur þekkingu
á skipulagsvinnu sveitarfélaga og býrð auðvitað yfir
framúrskarandi samskiptafærni, frumkvæði og drifkrafti þá
erum við mögulega að leita að þér.
Ef þú ert með háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem verkfræði
eða tæknifræði, með góða reynslu og þekkingu á verkefnastjórnun
og verklegum framkvæmdum, með reynslu af öryggis- og
umhverfismálum og auðvitað framúrskarandi samskiptafærni,
frumkvæði og drifkraft, þá erum við mögulega að leita að þér.
Langar þig að ganga til liðs við okkur?