Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 6

Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Álnabær Verslunarstarf Starfskraftur óskast í verslun okkar í Síðumúla 32, Reykjavík. Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18 alla virka daga. Áhugasamir sendi umsókn á ellert@alnabaer.is Forstjóri Samgöngustofu Við leitum að framsýnum leiðtoga með brennandi áhuga á þróun og framtíð samgöngumála á Íslandi, metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og ná árangri í þágu almennings og atvinnulífs. Ráðherra skipar forstjóra Samgöngustofu til fimm ára frá 6. ágúst nk. Forstjóri Samgöngustofu stýrir stofnuninni og ber ábyrgð á rekstri hennar, þjónustu og árangri. Hjá Samgöngu- stofu starfa 150 starfsmenn í fjölbreyttum störfum. Stofnunin fer með stjórnsýslu, öryggismál og eftirlit á sviði flugmála, umferðar- og vegamála, siglinga- og hafnamála. Meðal annarra verkefna Samgöngustofu eru rannsóknir, greining og þróun á starfssviðinu ásamt fræðslu og upplýsingamiðlun um samgöngumál. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi. • Árangursrík reynsla af stjórnun, rekstri, stefnumótun og áætlanagerð. • Færni til að vinna að umbótum. • Reynsla af alþjóðasamstarfi kostur. • Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku nauðsynleg. • Góð hæfni til samvinnu og í samskiptum. Umsókn skal fylgja stutt kynningarbréf um hvers vegna sótt er um starfið og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í starfi forstjóra Samgöngustofu. Upplýsingar um embættið veitir Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytis- stjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, í síma 545 8200. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 1. apríl nk. Umsóknum skal skila rafrænt á starf@srn.is. Nánari upplýsingar um starfið eru á Starfatorgi – starfatorg.is. Umboðsmaður Alþingis mun á næstunni ráða í tvö störf lögfræðinga. Störfin eru annars vegar við athuganir og úrvinnslu kvartana og annarra mála sem umboðsmaður fjallar um og hins vegar einkum við frumkvæðis- og OPCAT-eftirlit. • Leitað er að einstaklingum með embættispróf í lög- fræði eða grunnnám í lögfræði auk meistaraprófs í greininni. • Æskilegt er að viðkomandi hafi lagt sig eftir stjórn- sýslurétti og/eða skyldum greinum í námi eða hafi starfsreynslu á því sviði. • Í starfi við frumkvæðis- og OPCAT-eftirlit er að auki æskilegt að viðkomandi hafi sérstaklega lagt sig eftir námi eða hafi reynslu á sviði mannréttinda eða öðrum réttarsviðum sem reynir á við eftirlit með stöðum þar frelsissviptir einstaklingar dveljast. • Gerð er krafa um gott vald á ritun texta á íslensku. • Gerð er krafa um góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í einu Norðurlandamáli. • Um er að ræða krefjandi störf á sviði lögfræði. Lögð er áhersla á að umsækjendur geti unnið sjálf- stætt að greiningu og úrlausn lögfræðilegra álita- efna, séu skipulagðir og hafi gott vald á aðferða- fræði lögfræðinnar. • Frumkvæðis- og OPCAT-eftirlit felst m.a. í vett- vangsathugunum og skýrslugerð um þær. Þeir sem hafa reynslu úr slíkum störfum eru sérstaklega hvattir til að sækja um. • Í báðum tilvikum er leitað að einstaklingum sem hafa til að bera frumkvæði, ríka þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum. Áhugasamir sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur eru hvattir til að senda inn umsókn. Um starfskjör fer eftir kjarasamningi og nánara samkomulagi. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og önnur atriði skal senda á netfangið postur@umb.althingi.is eða á skrifstofu umboðs- manns Alþingis, Þórshamri, Templarasundi 5, 101 Reykjavík, merkt: Starfsumsókn. Þess er óskað að í umsóknum verði gerð grein fyrir um hvort starfið er sótt og þekkingu og reynslu umsækjanda í samræmi við það sem fram kemur um hvort starf og að staðfesting um nám fylgi. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars nk. Upplýsingar um störfin eru veittar hjá umboðsmanni Alþingis í síma 510 6700. Nánari upplýsingar um störf umboðsmanns Alþingis og OPCAT-eftirlitið má finna á vefsíðunni: www.umbodsmadur.is. Lögfræðingar Þórshamri, Templarasundi 5 - 101 Reykjavík - Sími 510 6700 - Fax 510 6701 - postur@umb.althingi.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is Við finnum rétta einstaklinginn í starfið www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.