Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
AKADEMÍSKT STARF VIÐ FÉLAGSVÍSINDA- OG LAGADEILD
Upphafsdagur er sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Umsókninni skal fylgja:
Háskólinn á Bifröst auglýsir laust 100% starf lektors/
dósents/prófessors í lögfræði við félagsvísinda- og lagadeild.
Helstu verkefni eru kennsla og rannsóknir í lögfræði, bæði á grunnstigi í
viðskiptalögfræði (BS) og meistarastigi (ML), ásamt leiðsögn með B.S.-
og M.L. ritgerðum nemenda. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af
rafrænum kennsluháttum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fullnaðarpróf í lögfræði
Doktorsgráða í lögfræði og nauðsynlegt er að umsækjandi hafi sinnt
fræðastörfum. Þau sem búast við að ljúka doktorsgráðu á árinu 2019
koma til greina.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi kennt á á háskólastigi.
Enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
Leitað er að umsækjendum með þekkingu og reynslu á sviði
tæknilögfræði (IT-law).
Umsóknarferli:
Við ráðningu í starfið er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans og eru
konur sérstaklega hvattar til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Helga Kristín Auðunsdóttir,
aðstoðardeildarforseti helgaa@bifrost.is
Umsóknir skulu sendar á rektor@bifrost.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2019
1. Ferilskrá og ritaskrá
2. Afrit af prófskírteinum og öðrum starfsréttindum
3. Tvö umsagnarbréf og upplýsingar um hvernig má hafa samband
við umsagnaraðila.
Ný tækifæri,
nýjar áskoranir!
www.hagvangur.is
Alls 1.880 íbúðir voru settar á
sölu í janúar síðastliðnum og
hefur framboðið ekki verið
meira síðastliðin sjö ár. Þetta
segir í nýrri mánaðarskýrslu
Íbúðalánasjóðs. Niðurstaða
þar er að íslenski fasteigna-
markaðurinn einkennist nú af
nýjum eignum. Slíkt sjáist
m.a. á fjölgun þeirra á skrám
fasteignasala, en í janúar
komu 362 íbúðir í sölu. Að-
eins einu sinni frá árinu 2013
hafi fleiri nýbyggingar verið
settar á sölu í stökum mán-
uði.
Mikill meirihluti íbúða
selst í janúar undir ásettu
verði á höfuðborgarsvæðinu
og hefur verð ekki mælst
jafnlágt síðan í byrjun árs
2013. Einungis 4% íbúða í
Reykjavík og nágranna-
byggðum voru seldar yfir
ásettu verði í janúar. Íbúðum
á landinu öllu fjölgaði um
2.400 í fyrra og eru þær nú
140.600 talsins. Til saman-
burðar fjölgaði íbúðum um
1.800 árið 2017. Er þetta
mesta fjölgun nýrra íbúða
sem orðið hefur í meira en
áratug.
Á höfuðborgarsvæðinu
fjölgaði íbúðum um 542, en
utan þess varð mesta fjölg-
unin í Reykjanesbæ; 227
íbúðir bættust við.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grafarvogur Eftirsótt hverfi þar sem eignir seljast fljótt.
Selfoss Mikið er byggt, svo
sem fjölbýli fyrir eldra fólk.
Nýjum eignum fjölgar
Meirihluti
íbúða selst und-
ir ásettu verði
Hátt í 300 tonn af pappa spar-
ast árlega hjá Krónunni með
þeim skrefum sem stigin hafa
verið með umhverfisstefnu
Krónunnar samkvæmt nýrri
samantekt sem gerð hefur
verið á árangri fyrirtækisins
á sviði umhverfismála. Jafn-
framt hefur verslunin náð 25
– 50%
orku-
sparnaði
og minnk-
að matar-
sóun um
meira en
helming.
Sparnaður
í pappírs-
notkun
hefur
náðst með
því að hætta útsendingu á
vikulegum fjölpósti og því að
nú er innflutt grænmeti sett í
fjölnotakassa, en var í pappa
áður. Jafnframt hefur náðst
25 – 50% orkusparnaður með
því að skipta út kælum í versl-
unum, taka up led-lýsingu og
CO2-kælikerfi.
Verslunum breytt
Átak Krónunnar í að draga
úr matarsóun undir merkinu
„Síðasti séns“ hefur minnkað
matarsóun í verslununum um
helming. Þá hefur verið sett
af stað vitundarvakning undir
merkjum átaksins Þarftu
poka? Í nýrri verslun Krón-
unnar í Skeifunni í Reykjavík
eru plastburðarpokar meira
að segja ekki í boði. Þannig
mætti áfram telja ýmsar að-
gerðir sem eru liður í um-
hverfisstefnu fyrirtækisins.
„Því höfum við lagt metnað
í umhverfismál og starfsfólk
okkar brennur fyrir þau. Við
höfum þegar gert töluverðar
breytingar til góðs í versl-
unum okkar en erum hvergi
nærri hætt. Þessi úttekt á
stöðu umhverfismála hjá okk-
ur var gerð því það er mik-
ilvægt að skoða árangurinn
og setja sér svo ný markmið,“
segir Gréta María Grétars-
dóttir framkvæmdastjóri og
ennfremur:
„Krónan hefur ýmis áform
um það sem við viljum gera á
komandi mánuðum og árum
og leitum stöðugt nýrra leiða
til að geta boðið viðskipta-
vinum okkar umhverfisvænni
umbúðir.“
Sóunin á undanhaldi
Umhverfisáherslur í Krón-
unni Spara pappa og orku
Ljósm/Aðsend
Búð Krónan er við Bæjar-
braut í Garðabænum.
Gréta María
Grétarsdóttir
Landssamband framsóknar-
kvenna kallar eftir þjóðarsátt
um að laun dugi til fram-
færslu og það sé á færi allra
að lifa mannsæmandi lífi.
„Það eru mannréttindi að fá
laun sem duga til framfærslu
og þar eiga kvennastéttir sér-
staklega undir högg að sækja.
Leggja þarf sérstaka áherslu
á að leiðrétta kjör þeirra, “
segir í ályktun LFK.
Þar segir ennfremur að öll-
um sé til hagsbóta að taka
húsnæðisliðinn úr vísitölunni.
Það sé í samræmi við kröfu
verkalýðshreyfingarinnar um
að verðtryggingin sé afnumin
á lánum neytenda. Slíkt sé
einnig í samræmi við sam-
þykktir Framsóknarflokksins
og ekki eftir neinu að bíða
með að koma þessari breyt-
ingu í framkvæmd. sbs@mbl.is
Kjör kvennastétta verði leiðrétt