Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Kristín Sif Björgvinsdóttir
um lífsins sorgir og sigra.
6
07.03.2019
12
Markaðsstjóri Smáralind-
arinnar um konukvöldið
45 lita vörulína frá
NYX frumsýnd
20
Útgefandi Árvakur Umsjón Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrun@mbl.is Ábyrgðarmaður Magnús Eðvald Kristjánsson
mek@mbl.is, Auglýsingar birtingar@k100.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíða: Gassi
Þ
að má líkja K100 við eina stóra og blandaða fjölskyldu, svona eins
og fjölskyldur eiga það til að vera. Árið 2017 gekk útvarpsstöðin
til liðs við Árvakur og því óhætt að segja að fjölskyldan hafi orðið
enn stærri og ríkari. Frá þeim tíma hefur verið unnið af ein-
stökum metnaði að því að bæta stöðina, auka mannauð hennar og
bjóða upp á fjölbreyttara efni.
Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en hlustendum fjölgar sem
aldrei fyrr. Jafnfram hefur hlustendahópurinn breikkað í aldri.
Stúdíó K100 er eins og fjölskyldueldhúsið þar sem allir eru velkomnir til
borðs, allir fá orðið og hafa vægi og vigt. Við höfum fengið hvern drauma-
viðmælandann í heimsókn á fætur öðrum sem gefa okkur frábær ráð inn í
lífið, deilt upplifum sínum, afrekum og árangri, fá hlátursköst í beinni og
gefa af sér alla leið okkur til mikillar ánægju. Starfsfólk K100 hefur hlúað
að hverju einasta málefni með alúð og auðmýkt sem gerir það að verkum
að við höfum eignast frábæra fastagesti í viðmæl-
anda hópnum okkar. Einnig fáum við fasta gesta-
stjórnendur til liðs við okkur reglulega, sam-
anber stærstu poppstjörnu Íslands, sjálfan Pál
Óskar Hjálmtýsson en hann stýrir svokölluðu
Pallaballi í beinni sem enginn tónlistarunnandi
vill missa af.
Nýlega fékk stöðin einnig þann heiður að
vera valin til þess að senda út eina op-
inbera vinsældalista landsins sem ber
heitið Topplistinn. Á milli þess sem
ljúfir tónar hljóma á stöðinni og við-
mælendur fara á kostum er séð til
þess að þú fáir nýjustu fréttirnar beint
í æð.
Stilltu því á 100,5 og vertu partur af
K100-fjölskyldunni.
Kolbrún Pálína Helgadóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ein stór fjölskylda
BRYGGJAN BRUGGHÚS
bistro & brewery
REYKJAV ÍK
2015
18
Ása Tryggvadóttir segir
okkur allt um vortískuna.