Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 4
H
vað varð til þess að leið
þín lá aftur í útvarpið?
Góð spurning. Það
stóð svo sannarlega ekki
til. Mér fannst ég alveg
búinn með þennan kafla í lífinu en
svo vildi til að ég var fenginn til
skrafs og ráðagerða þegar Árvakur
keypti K100.
Logi Bergmann var ráðinn til Ár-
vakurs en gat ekki hafið störf strax
svo ég stökk til á meðan og Ísland
vaknar varð til þar sem ég, Kristín
Sif og Ásgeir Páll stóðum vaktina.
Þetta var frábær tími hjá okkur og
það gekk vel, en bara fyrst og
fremst var um upphitun fyrir
stjörnurnar að ræða. Í október á
síðasta ári urðu svo breytingar á
þættinum hjá Loga, Rikku og
Rúnari og við þrjú vorum kölluð
aftur inn á sviðið enda góð saman,
ólík og kraftmikil.
Hvenær hófst ferill þinn í ljós-
vakamiðlum?
Það má segja að fyrsta skipti
sem ég starfaði í útvarpi hafi verið
þegar ég var um það bil ellefu ára
gamall og það í miðju verkfalli Rík-
isútvarpsins árið1976. Ég smíðaði
FM-sendi og hóf útsendingar á út-
varpsstöð sem fékk nafnið Útvarp
Matthildur sem byggt var á göml-
um útvarpsþáttum sem voru á
RÚV. Fyrsta alvöruskrefið var svo
tekið þegar ég tók þátt í upphafi
Rásar 2 og Bylgjunnar, þannig að
lengi vel þetta var mín aðalvinna og
ástríða.
Vinsælastir allra
Hver eru helstu afrekin í útvarp-
inu?
Ég tók snemma ákvörðun um að
vera afþreyingarmegin í útvarpinu,
þ.e.a.s. að fara ekki í viðtala- og
fréttaþætti, heldur að framleiða
skemmtiefni. Það telst sennilega
ekki til afreka að hafa stýrt vinsæl-
asta útvarpsþætti allra tíma í út-
varpi; Tveir með öllu, sem var
skemmtiþáttur sem við Gulli Helga
stýrðum á árunum 1991 til 1993. En
ég ætla hinsvegar að leyfa mér að
vera stoltastur af því verkefni, sem
varð til fyrir tilviljun.
Lá áhugi þinn alltaf þarna eða
hvað réði því að þú ákvaðst að
starfa við útvarp?
Áhuginn var til staðar og senni-
lega leiddi eitt af öðru og fyrst
maður var kominn á kaf í þetta
varð eiginlega ekki aftur snúið.
Ekki hægt að taka orðin aftur
Hver er sjarminn við að vera í
beinni útsendingu?
Bein útsending er alltaf soldið
sérstök. Allt sem þú gerir þarf að
vera í lagi, hafa tilgang og segja
sögu sem hlustendur vilja hlusta á.
Það er ekkert hægt að taka orðin
aftur, þú lætur eitthvað fara frá þér
og það er bara farið. Maður verður
bara að standa og falla með því.
Hver er munurinn á að vera í út-
varpi nú og þegar þú byrjaðir?
Það er eiginlega alveg eins. Það
helsta sem hefur breyst er tæknin.
Þótt ótrúlegt megi virðast hef ég
ekkert verið í útsendingu að ráði
síðan árið 1993. Tíminn líður en það
límist við mann að vera útvarps-
maður en ekki t.d. rekstrarhag-
fræðingur sem ég er menntaður í.
Ég sagði skilið við „útvarpsmann-
inn“ eftir þætti okkar Gulla og hug-
urinn leitaði annað. Mér fannst ég
vera búinn með þetta verkefni –
þetta reyndi ekki á mig og ég hafði
náð öllum markmiðum mínum og
það var ekkert hægt að fara lengra.
Björgvin Franz stendur upp úr
Eftirminnilegustu mistökin í loft-
inu?
Að reyna að vera með beina lýs-
ingu frá fegurðarsamkeppni og
vera búinn að fá sér aðeins of
marga kokteila. Það er eitthvað
sem ég mæli alls ekki með!
Skemmtilegasta uppákoman í
morgunþættinum hingað til?
Það er ekki nokkur vafi á að við-
talið við Björgvin Franz sem við
tókum í febrúar árið 2018, er eitt
það allra skemmtilegasta sem við
höfum tekið og mun aldrei gleym-
ast.
Undirbúningurinn aldrei nægur
Hvernig undirbýrðu þig fyrir þátt?
Ég var að vona að þessi spurning
kæmi ekki. Það skiptir mig miklu
meira máli í dag að undirbúa mig
vel, heldur en það gerði. Sennilega
vegna þess að ég geri meiri kröfur
til mín en ég gerði hér áður. Mér
finnst undirbúningurinn aldrei nógu
mikill núna og samstarfsfólk mitt
gerir óspart grín að mér vegna
þessa. Morgunþáttur sem byrjar
klukkan 06.00 á morgnana gerir
aðrar kröfur til þín en t.d. dagskrá
sem er í útsendingu seinni partinn.
Morgunútvarp gerir þá meginkröfu
um að þeir sem stýra þættinum
þurfa að vera vaknaðir. Það er
svona grundvallaratriði, síðan þarf
maður að vera búinn að ákveða
nokkurn veginn það sem maður
ætlar að gera og segja og við
hverja maður ætlar að tala. Auðvit-
að getur ýmislegt komið upp, en þá
verður maður að spinna sig út úr
því.
Hvenær ferðu á fætur?
Þar sem við byrjum klukkan
06.00 á morgnana reynum við að
vera komin í hús upp úr 00.05 alla
virka daga. Það þýðir að maður er
farinn að losa svefn upp úr 04.00.
Oftar en ekki er maður vaknaður
löngu á undan klukkunni. Ég er
mikill morgunmaður og mér finnst
fínt að vera snemma á fótum og
taka góðan tíma í að gera allt klárt
fyrir daginn.
Einstakar fyrirmyndir
Hver væri draumaviðmælandinn
þinn í heiminum í dag?
Ég hef oft hugsað það hvern
væri gaman að tala við ef ég mætti
velja hvern sem væri. Ef sú staða
kæmi upp að ég mætti velja mér
viðmælanda, eða viðmælendur
myndi ég vilja hitta Obama-hjónin
og eyða eins og klukkutíma í að
spjalla við þau. Mér finnst þau ein-
stök og það var gaman að fá að
fylgjast með þeim í embætti.
Hvað myndirðu vilja spyrja þau
um?
Sennilega eitthvað um leynd-
armál sögunnar, en ég geri ekki ráð
fyrir að þau myndu svara þannig að
ég færi einhverjar hefðbundnari
leiðir í spurningavali. Michel
Obama er einstök kona, vel mennt-
uð og klár og ég held að hún hefði
frá miklu að segja. Hún er frábær
fyrirmynd fyrir ungar konur hvar
sem er í heiminum. Það væri gam-
an að fá að miðla því.
Alltaf að gera tilraunir
Munum við heyra í þér í útvarpinu
um ókomna tíð?
Það er góð spurning og svo sem
ekkert ákveðið. Ég er í fjölmörgum
verkefnum þessa dagana og hingað
til hefur mér tekist að halda vel á
spilunum og hef getað sinnt öllu því
sem ég hef tekið að mér þannig að
það mælir ekkert gegn því að halda
áfram. Ég er að reka tvö fyrirtæki
auk þess að vera í útvarpinu á
morgnana en ég er svo heppinn að
vinna með einstökum vinum í þætt-
um, þannig að þetta gengur nokkuð
vel.
Þú ert kominn með Hlaðvarp –
Alltaf í röngum bransa – hvað er
það?
Mér finnst gaman að gera til-
raunir og fara ótroðnar slóðir. Mín-
ar ótroðnu slóðir eru að gera eitt-
hvað sem ég hef ekki gert áður eins
og t.d. að taka viðtöl við fólk án
þess að vera í beinni útsendingu.
Ég er bara að gera tilraunir og
skoða hvað önnur miðlun getur gert
fyrir mig. Þetta form miðlunar býð-
ur upp á ýmis tækifæri og ég er
bara að fikta.
Uppáhaldsútvarpsmaðurinn
þinn?
Þeir eru tveir: Þorgeir Ástvalds-
son og Gulli Helga. Engin spurn-
ing! kolbrun@mbl.is
Myndi vilja spjalla við Obama-hjónin
Rödd Jóns Axels Ólafssonar er flestum kunn enda hefur hún hljómað í ljósvakamiðlum landsins allt frá
því að hann var barnungur. Eftir þónokkra fjarveru sneri hann þó aftur að fóninum og kann ekki síður vel
við sig í dag en áður. Hann segist þó leggja meira upp úr undirbúningi og skipulagi en áður.
Jón Axel, Bjarni Dagur, Wolfman Jack og Þorgeir Ástvalds.
Heimir Karlsson, Þorgeir
Ástvaldson og Jón Axel
Ólafsson samankomnir.
„Það límist við mann að vera
útvarpsmaður en ekki rekstr-
arhagfræðingur, sem ég er til
dæmis menntaður í.“
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019