Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 07.03.2019, Qupperneq 4
H vað varð til þess að leið þín lá aftur í útvarpið? Góð spurning. Það stóð svo sannarlega ekki til. Mér fannst ég alveg búinn með þennan kafla í lífinu en svo vildi til að ég var fenginn til skrafs og ráðagerða þegar Árvakur keypti K100. Logi Bergmann var ráðinn til Ár- vakurs en gat ekki hafið störf strax svo ég stökk til á meðan og Ísland vaknar varð til þar sem ég, Kristín Sif og Ásgeir Páll stóðum vaktina. Þetta var frábær tími hjá okkur og það gekk vel, en bara fyrst og fremst var um upphitun fyrir stjörnurnar að ræða. Í október á síðasta ári urðu svo breytingar á þættinum hjá Loga, Rikku og Rúnari og við þrjú vorum kölluð aftur inn á sviðið enda góð saman, ólík og kraftmikil. Hvenær hófst ferill þinn í ljós- vakamiðlum? Það má segja að fyrsta skipti sem ég starfaði í útvarpi hafi verið þegar ég var um það bil ellefu ára gamall og það í miðju verkfalli Rík- isútvarpsins árið1976. Ég smíðaði FM-sendi og hóf útsendingar á út- varpsstöð sem fékk nafnið Útvarp Matthildur sem byggt var á göml- um útvarpsþáttum sem voru á RÚV. Fyrsta alvöruskrefið var svo tekið þegar ég tók þátt í upphafi Rásar 2 og Bylgjunnar, þannig að lengi vel þetta var mín aðalvinna og ástríða. Vinsælastir allra Hver eru helstu afrekin í útvarp- inu? Ég tók snemma ákvörðun um að vera afþreyingarmegin í útvarpinu, þ.e.a.s. að fara ekki í viðtala- og fréttaþætti, heldur að framleiða skemmtiefni. Það telst sennilega ekki til afreka að hafa stýrt vinsæl- asta útvarpsþætti allra tíma í út- varpi; Tveir með öllu, sem var skemmtiþáttur sem við Gulli Helga stýrðum á árunum 1991 til 1993. En ég ætla hinsvegar að leyfa mér að vera stoltastur af því verkefni, sem varð til fyrir tilviljun. Lá áhugi þinn alltaf þarna eða hvað réði því að þú ákvaðst að starfa við útvarp? Áhuginn var til staðar og senni- lega leiddi eitt af öðru og fyrst maður var kominn á kaf í þetta varð eiginlega ekki aftur snúið. Ekki hægt að taka orðin aftur Hver er sjarminn við að vera í beinni útsendingu? Bein útsending er alltaf soldið sérstök. Allt sem þú gerir þarf að vera í lagi, hafa tilgang og segja sögu sem hlustendur vilja hlusta á. Það er ekkert hægt að taka orðin aftur, þú lætur eitthvað fara frá þér og það er bara farið. Maður verður bara að standa og falla með því. Hver er munurinn á að vera í út- varpi nú og þegar þú byrjaðir? Það er eiginlega alveg eins. Það helsta sem hefur breyst er tæknin. Þótt ótrúlegt megi virðast hef ég ekkert verið í útsendingu að ráði síðan árið 1993. Tíminn líður en það límist við mann að vera útvarps- maður en ekki t.d. rekstrarhag- fræðingur sem ég er menntaður í. Ég sagði skilið við „útvarpsmann- inn“ eftir þætti okkar Gulla og hug- urinn leitaði annað. Mér fannst ég vera búinn með þetta verkefni – þetta reyndi ekki á mig og ég hafði náð öllum markmiðum mínum og það var ekkert hægt að fara lengra. Björgvin Franz stendur upp úr Eftirminnilegustu mistökin í loft- inu? Að reyna að vera með beina lýs- ingu frá fegurðarsamkeppni og vera búinn að fá sér aðeins of marga kokteila. Það er eitthvað sem ég mæli alls ekki með! Skemmtilegasta uppákoman í morgunþættinum hingað til? Það er ekki nokkur vafi á að við- talið við Björgvin Franz sem við tókum í febrúar árið 2018, er eitt það allra skemmtilegasta sem við höfum tekið og mun aldrei gleym- ast. Undirbúningurinn aldrei nægur Hvernig undirbýrðu þig fyrir þátt? Ég var að vona að þessi spurning kæmi ekki. Það skiptir mig miklu meira máli í dag að undirbúa mig vel, heldur en það gerði. Sennilega vegna þess að ég geri meiri kröfur til mín en ég gerði hér áður. Mér finnst undirbúningurinn aldrei nógu mikill núna og samstarfsfólk mitt gerir óspart grín að mér vegna þessa. Morgunþáttur sem byrjar klukkan 06.00 á morgnana gerir aðrar kröfur til þín en t.d. dagskrá sem er í útsendingu seinni partinn. Morgunútvarp gerir þá meginkröfu um að þeir sem stýra þættinum þurfa að vera vaknaðir. Það er svona grundvallaratriði, síðan þarf maður að vera búinn að ákveða nokkurn veginn það sem maður ætlar að gera og segja og við hverja maður ætlar að tala. Auðvit- að getur ýmislegt komið upp, en þá verður maður að spinna sig út úr því. Hvenær ferðu á fætur? Þar sem við byrjum klukkan 06.00 á morgnana reynum við að vera komin í hús upp úr 00.05 alla virka daga. Það þýðir að maður er farinn að losa svefn upp úr 04.00. Oftar en ekki er maður vaknaður löngu á undan klukkunni. Ég er mikill morgunmaður og mér finnst fínt að vera snemma á fótum og taka góðan tíma í að gera allt klárt fyrir daginn. Einstakar fyrirmyndir Hver væri draumaviðmælandinn þinn í heiminum í dag? Ég hef oft hugsað það hvern væri gaman að tala við ef ég mætti velja hvern sem væri. Ef sú staða kæmi upp að ég mætti velja mér viðmælanda, eða viðmælendur myndi ég vilja hitta Obama-hjónin og eyða eins og klukkutíma í að spjalla við þau. Mér finnst þau ein- stök og það var gaman að fá að fylgjast með þeim í embætti. Hvað myndirðu vilja spyrja þau um? Sennilega eitthvað um leynd- armál sögunnar, en ég geri ekki ráð fyrir að þau myndu svara þannig að ég færi einhverjar hefðbundnari leiðir í spurningavali. Michel Obama er einstök kona, vel mennt- uð og klár og ég held að hún hefði frá miklu að segja. Hún er frábær fyrirmynd fyrir ungar konur hvar sem er í heiminum. Það væri gam- an að fá að miðla því. Alltaf að gera tilraunir Munum við heyra í þér í útvarpinu um ókomna tíð? Það er góð spurning og svo sem ekkert ákveðið. Ég er í fjölmörgum verkefnum þessa dagana og hingað til hefur mér tekist að halda vel á spilunum og hef getað sinnt öllu því sem ég hef tekið að mér þannig að það mælir ekkert gegn því að halda áfram. Ég er að reka tvö fyrirtæki auk þess að vera í útvarpinu á morgnana en ég er svo heppinn að vinna með einstökum vinum í þætt- um, þannig að þetta gengur nokkuð vel. Þú ert kominn með Hlaðvarp – Alltaf í röngum bransa – hvað er það? Mér finnst gaman að gera til- raunir og fara ótroðnar slóðir. Mín- ar ótroðnu slóðir eru að gera eitt- hvað sem ég hef ekki gert áður eins og t.d. að taka viðtöl við fólk án þess að vera í beinni útsendingu. Ég er bara að gera tilraunir og skoða hvað önnur miðlun getur gert fyrir mig. Þetta form miðlunar býð- ur upp á ýmis tækifæri og ég er bara að fikta. Uppáhaldsútvarpsmaðurinn þinn? Þeir eru tveir: Þorgeir Ástvalds- son og Gulli Helga. Engin spurn- ing! kolbrun@mbl.is Myndi vilja spjalla við Obama-hjónin Rödd Jóns Axels Ólafssonar er flestum kunn enda hefur hún hljómað í ljósvakamiðlum landsins allt frá því að hann var barnungur. Eftir þónokkra fjarveru sneri hann þó aftur að fóninum og kann ekki síður vel við sig í dag en áður. Hann segist þó leggja meira upp úr undirbúningi og skipulagi en áður. Jón Axel, Bjarni Dagur, Wolfman Jack og Þorgeir Ástvalds. Heimir Karlsson, Þorgeir Ástvaldson og Jón Axel Ólafsson samankomnir. „Það límist við mann að vera útvarpsmaður en ekki rekstr- arhagfræðingur, sem ég er til dæmis menntaður í.“ 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.