Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 18
H vernig myndirðu lýsa vor- og sumartískunni þetta árið í verslunum ykkar? Mikið af skemmti- legum trendum í gangi. Fallegir liti og skemmtileg mynstur. Við höldum áfram að sjá áhrif frá gömlum vinnugöllum á skemmti- legan hátt, síðerma samfestingar, heilgallar, stórir jakkar og cargo- buxur. Svo er gaman að sjá öll þessi fallegu pils, gallapils, síð pils, blómp- ils o.fl. Hvaða litir verða mest áberandi í sumar? Við höfum tekið eftir því að ís- lenskar konur eru farnar að velja sér mikla liti og þess vegna höfum við verið óhræddar við að taka inn liti fyrir sumarið. Það er mikið um falleg litrík mynstur en svo verður guli lit- urinn mjög áberandi, kremaður litur og svo er gaman að nefna neonlitina sem eru að koma sterkir inn. Er ekkert lát á vinsældum dýra- mynsturs í skóm og fatnaði á næst- unni? Nei, heldur betur ekki, við erum rétt að byrja. Alls konar dýra- mynstur í mörgum litum eru væntanleg hjá okkur í vor og sumar. Við sjáum nýja liti í dýramynstrum og skemmtilegar útfærslur. Hvaða fimm flíkur eru nauðsyn- legar í fataskáp hverrar konu þetta vorið? Fallegt pils, strigaskór, góðar gallabuxur, sumarlegur kjóll og hjólabuxur fyrir þær allra djörfustu. Eru einhverjar nýjungar í skarti og aukahlutum? Nýjar hárklemmur og spennur í öllum stærðum og gerðum eru að koma sterkar inn og verða áberandi í allt sumar. Perlur í hárið eru líka að koma sterkar inn. Mittistöskurnar halda áfram og svo erum við að bæta við svokölluðum beltatöskum sem eru mjög vinsælar. Svo sjáum við líka þessa svokölluðu „bucket hats“ koma inn . Buxnadragtir hafa verið vinsælar að undanförnu, eru þær komnar til að vera? Já, ég á von á því – ekki bara buxnadraktir heldur það sem við köllum „sett“. Buxur og skyrta eða toppur í sama prenti og jafnvel bux- ur og kimónó í sama lit. Það hefur verið mjög vinsælt hjá okkur og við fáum meira af því í sumar. Nú hafið þið unnið þétt með vin- sælum samfélagsmiðlastjörnum und- anfarið. Finnið þið bein áhrif þess á söluna hjá ykkur? Já, við höfum aðeins verið í því en við gerum það í bland við notkun annarra auglýsingamiðla. Við erum með nokkra aðila sem við vinnum með af því að þeir vinna faglega fyrir okkur í þéttu samstarfi. Áhrifin eru góð þegar vinnan er unnin vel og allir vinna vel saman. Við vinnum hins vegar mjög mikið á samfélags- miðlum, en okkar fókus er miklu meiri á að dreifa okkar efni og aug- lýsa sjálf okkar vörur á þeim miðlum. Efni frá áhrifavöldum er svo góð við- bót við okkar efni á samfélagsmiðla. Finnið þið breytingu á stíl ís- lenskra kvenna með árunum? Já, heldur betur. Svörtu fötin eru aðeins farin að víkja og við sjáum konur fara miklu meira í liti og alls konar mynstur. Við seljum meira af pilsum, stelpur eru óhræddar við að prófa önnur snið, t.d. oversize-stíla, og svo er það hugrekkið, að blanda saman fleiri litum og mynstrum. Svo eru aðrar sem eru meira í þessu hefðbundna og leitast eftir einföldum litum og helst ekki mynstrum, sem er líka fallegt. Mér finnst íslenskar konur vera mjög duglegar að móta sinn eigin stíl og það er frábært. Öll þessi tískutrend henta að sjálfsögðu ekki öllum, við viljum eiga góð föt sem henta okkur best en svo er gam- an að nota þau trend sem henta okk- ur til að poppa aðeins upp útlitið. Ég myndi t.d. ekki henda mér í það sjálf að nota hjólabuxurnar í sumar en ég veit að þær verða mjög vinsæl- ar hjá yngri hópi. Draumaflíkin þín þetta sum- arið? Fallegur hermannagrænn síðerma samfestingur frá Vero Moda sem ég ætla að nota bæði við sandala og strigaskó á sólríkum íslenskum sumardögum. kolbrun@mbl.is Íslenskar konur duglegar að móta sinn eigin stíl Bestseller sem rekur verslanirnar Vero Moda, VILA, Jack & Jones, Selected og Name it hefur vart und- an að opna litríkar vorsendingar þessa dagana. Ása Björg Tryggvadóttir, markaðsstjóri Bestseller, segir einstaklega skemmtilegt tískusumar í vændum. „Við höfum tekið eftir því að ís- lenskar konur eru farnar að velja sér mikla liti og þess vegna höfum við verið óhræddar við að taka inn liti fyrir sumarið. Það er mikið um falleg litrík mynstur en svo verður guli lit- urinn mjög áberandi.“ , Mikið verður um aukahluti þetta vorið. Neon litir verða áberandi á næstunni. Hárspennur í öllum stærðum og gerðum boða komu sína. Ekkert lát er á vinsældum dýra- mynsturs á næstunni. Það er óhætt að segja að samfest- inga æðið sé rétt að byrja. 18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Ármúli 21 108 Reykjavík Sími: 519-2525 Opnunartímar: Mán-Fös 11:30–14 / 17-21 Lau-Sun 17–21 bombaybazaar.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.