Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019
Á
hugafólk um förðun er búið
að bíða í ofvæni eftir þess-
ari línu, en Can’t Stop
Won’t Stop slógu sölumet
um heim allan þegar þær
komu út árið 2018 í Bandaríkjunum.
Spennan leynir sér ekki hjá vöru-
merkjastjóra NYX á Íslandi, Ernu
Hrund Hermannsdóttur, sem segir
einstaklega ánægjulegt að geta
kynnt línuna til leiks á sjálfu konu-
kvöldi Smáralindarinnar og K100.
Litur fyrir alla
Línan samanstendur af 45 litum af
farða, 24 litum af hyljurum og
púðurfarða ásamt 6 litum af lausu
púðri, sérstökum förðunarbursta og
svampi. „Það er ekki bara sjaldgæft
að vörumerki sendi frá sér svona
marga liti af farða heldur er líka bú-
ið að hugsa fyrir því að allir finni lit
sem hentar sínum undirtón. Við er-
um nefnilega öll með hlýjan eða
kaldan tón í húðinni og það getur
verið misjafnt hvaða tón við viljum
kalla fram.“
Línan lofar einnig langtíma end-
ingu og góðri þekju sem auðvelt er
að byggja upp. „Við á Íslandi gerum
öðruvísi kröfur til endingar förð-
unarvaranna okkar en aðrir, sér-
staklega þar sem við viljum að vör-
urnar endist og haldist á sínum stað
í gegnum hvaða veður sem er. Farð-
ar eins og Can’t Stop Won’t Stop
gera einmitt það og jafnvel meira til!
CSWS-línan er nefnilega 24 tíma
vörulína með formúlu sem gefur
næringu, gefur þekju og dregur
fram það fallegasta í þinni húð.
Veglegir kaupaukar
Í Hagkaupum er búið að byggja
sérstakt sýningarsvæði fyrir farð-
ann sem verður opnað kl 17.00 á
konukvöldinu og munu fyrstu 100
viðskiptavinirnir okkar sem kaupa
tvær eða fleiri vörur úr línunni fá
glæsilegan kaupauka.“ Segir Erna
kaupaukana veglegasta fyrir þá
sem komi fyrstir. „Við getum
hreinlega ekki beðið eftir að kynna
þessa nýjung og erum meðvituð um
það að þetta er frábær viðbót fyrir
neytendur. Á meðan fólk finnur
sinn eina rétta lit mun DJ Dóra
Júlía halda uppi góðu stuði, Camilla
Líf og Rabbi kíkja svo við og taka
nokkur lög í anda Sunnudagslag-
anna sem eru föst hefð hjá hjón-
unum á Instagram,“ segir Erna
Hrund að lokum.
Erna Hrund ráðleggur
Hvernig er best að velja og nota
farðann:
Finnið litatóninn sem hentar ykk-
ur, ef þið eruð ekki viss hvort þið vilj-
ið hlýjan, kaldan eða hlutlausan tón
prófið að setja smá af formúlunni á
kjálkabeinið, réttur litur fellur alveg
saman við þína húð.
Farði eins og Can’t Stop Won’t
Stop hentar öllum húðgerðum því í
raun er það prim-
erinn sem þú velur að
setja undir sem segir til
um hvernig áferð farðans og
ending er. Ef þið eruð
með þurra húð notið
þið t.d. Honey Dew
Me Up primerinn frá
sama merki en ef
þið eruð með olíu
mikla húð notið þið
t.d. Shine Killer
primerinn. Svo er
engin regla um
hversu marga pri-
mera má nota.
Til að fá „dewy“ áferð
á CSWS-farðann ykkar
toppið þið áferð húðarinnar
með Dewy Setting spreyinu frá NYX
Professional Makeup.
kolbrun@mbl.is
45 lita farðalína frumsýnd
Á konukvöldi Smáralind-
ar og K100 er vægast
sagt búið að efna til
veislu hjá NYX Profess-
ional Makeup í verslun
Hagkaupa. Tilefnið er
koma Can’t Stop Won’t
Stop vörulínunnar.
Í vörunni geta allir fundið
rétta litinn fyrir sig.
Erna Hrund Hermannsdóttir,
vörumerkjastjóri NYX á Íslandi.
„Það er ekki bara sjaldgæft
að vörumerki sendi frá sér
svona marga liti af farða
heldur er líka búið að hugsa
fyrir því að allir finni lit sem
hentar sínum undirtóni.“
Passar þú í skóinn?
Allir sem máta glerskó Öskubusku
fá Baby Foot fótameðferðina að
gjöf.*
Kíktu í básinn okkar og fáðu að
máta.
Við verðum fyrir utan
Zara á 1. Hæð í Smáralind
á Konukvöldi K100.
*á meðan birgðir endast.