Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 22

Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 22
E urovision-keppnin fer fram í Tel Aviv 14. maí og verð- ur spennandi að sjá hvort Hatari kemst í úrslitin en þangað hefur framlag Ís- lands ekki komist frá árinu 2014 þegar Pollapönk keppti fyrir Ís- lands hönd. Óhætt er að segja að atriði Hatara sé umdeilt en um leið vinsælt. Og mögulega verður það enn umdeildara í alþjóðlegu sam- hengi þegar til Tel Aviv er komið vegna ögrandi gjörnings margmiðl- unarhópsins sem klæðist BDSM- búningum. Finnur fyrir miklum létti Friðrik segist þakklátur fyrir tækifærið í kringum Söngvakeppn- ina. Í síðdegisþættinum á K100 hjá Loga og Huldu sagðist hann hafa verið mjög vel stemmdur alla keppnina. „Ég var búinn að teikna þetta upp hvernig ég vildi hafa þetta og það rættist allt saman. Ég stjórn- aði alveg ferðinni, það var mjög góð tilfinning,“ segir hann einlægur. Hann viðurkennir að hafa í upphafi lagt upp með sigur. Þegar úrslitin lágu fyrir segist hann hafa fundið ákveðinn létti. Hann segir ástæðuna margþætta. „Þetta er búið að her- taka líf þitt í fimm mánuði og það er rosalega gott að komast út úr því. Ég fann það um leið og þetta varð ljóst. Nú get ég farið að gera eitt- hvað annað,“ útskýrir Friðrik. Hefði haldið með Hatara Friðrik Ómar hefði viljað sjá Hat- ara fara út hefði hann sjálfur verið óbreyttur borgari að kjósa. „Það er eitthvað ferskt þarna. Nýtt. Og lagið er bara gott, flottur húkkur. Og þeir gera þetta vel.“ Hann segist hrifinn af því hvernig strákarnir í hljóm- sveitinni hafa verið búnir að hugsa næstu leiki langt fram í tímann. Allt vel útfært og úthugsað. Hann hefur mikla trú á að bandið eigi eftir að gera vel enda góðir og metn- aðarfullir einstaklingar. Ráð til Hatara Samband hans við strákana í Hat- ara var mjög gott. En hvaða ráð hefur hann gefið þeim eða hvað mun hann ráðleggja þeim fyrir keppnina í Tel Aviv? „Ég held að þeir hafi lært rosalega mikið af þessu hér heima. Ef ég hefði verið markaðsmaðurinn þeirra hefði ég ekki sent þá mikið í viðtöl, nema þá blaðaviðtöl, enda heppnuðust þau öll mjög vel.“ Ráðið sem hann myndi gefa þeim áður en haldið er til Ísrael væri að sleppa því að vera mikið í karakter þegar þeir eru ekki á sviði. „Bara að vera glaðir og „kind off stage“ en brjálaðir á sviði,“ segir Friðrik Ómar. Alltaf best að vera bara maður sjálfur á milli atriða, segir hann. Grét í fyrstu skiptin En þá að Friðriki sjálfum og lag- inu sem hann samdi sjálfur og gerði texta við. Hann hefur gengið í gegnum miklar breytingar í sínu lífi síðastliðið ár. Lagið fjallar um stórt og mikið persónulegt uppgjör. „Ég grenjaði í fyrstu skiptin enda- laust og komst ekki í gegnum lagið. En svo verður þetta verkefni og maður nær aðeins að sleppa tök- unum á innihaldinu,“ segir Friðrik Ómar þegar hann er spurður hvort það hafi tekið á að syngja lag sem tengist honum sjálfum. Nýr fasi er mögulega að byrja í lífi Friðriks Ómars sem tónlistar- manns þar sem orðin eru farin að flæða líkt og hann segir sjálfur. Hann hefur haldið fjölda stór- tónleika á vegum fyrirtækisins Rigg ehf. sem hann á og rekur sjálfur. Fyrirtækið stóð meðal ann- ars fyrir tónleikum á Fiskideginum mikla á Dalvík og heiðurstónleikar hafa verið haldnir um U2, Meat Loaf, Freddie Mercury og George Michael auk annarra viðburða um jól og önnur tilefni. Nýtt að heyra fólk syngja eigin lög En verður breyting á því hjá Friðriki? „Ég hef alltaf getað samið lög og vitað það en ég hef ekki get- að komið orðunum út. Það er í rauninni lykillinn að því sem nú er að gerast. Ég bara dæli út textum. Mér finnst það rosalega skemmti- legt og ég er að vinna í nokkrum lögum,“ segir Friðrik Ómar sem ætlar að gefa næsta lag út í lok sumars. Honum líður vel og nú er nýr fasi að hefjast í lífi hans. „Ég er að koma í fyrsta skipti fram fyr- ir þjóðina sem laga- og textahöf- undur og flytjandi. Sem fyrir mig, að verða 38 ára gamall, er alveg geggjað,“ segir hann einlægur. „Ég hef aldrei upplifað áður að semja lag sem fólk er að syngja og það er líka geggjað,“ bætir hann við. Hann stefnir á stórtónleika í Hörpu á fer- tugsafmæli sínu eftir tvö ár og þá með frumsömdu efni. hulda@k100.is Nýr fasi að hefjast Lögin tvö sem komust áfram í úrslitaeinvígið í Söngvakeppninni um hvert verður framlag Íslands í Eurovision í ár voru Hatrið mun sigra með Hatara og Hvað ef ég get ekki elskað? með Friðriki Ómari. Það fór svo að Hatari fékk flest stig dómnefndar, í fyrri símakosningu sem og í einvíginu við Friðrik Ómar þar sem þjóðin kaus. Hin alþjóðlega dómnefnd var skipuð 10 aðilum og hafði hún 50% vægi á móti atkvæðum úr símakosningunni. Almenningur og dómnefnd voru því sammála um röð laganna í ár og ljóst að framlag okkar Íslendinga verður með hljómsveitinni Hatara. Morgunblaðið/Hari Friðrik Ómar sér fram á spennandi feril sem laga- og textahöfundur og flytjandi. Morgunblaðið/Eggert Friðrik Ómar hér við flutning á lagi sínu í Söngvakeppni RUV á dögunum. Hatari stóð sig vel að mati Friðriks Ómars og honum finnst ákveðinn ferskleiki yfir atriðinu. 22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.