Frjáls Palestína - 01.11.1990, Page 5

Frjáls Palestína - 01.11.1990, Page 5
Ofbeldis-annáll Dæmi um atburði í Palestínu 1. til 19. október 1990 Fjórar palestínskar konur frá Gaza misstu fóstur eftir að her- menn höfðu varpað á þær táragasi. ísraelskir hermenn særa þrjátíu og fimm íbúa á Gazasvæðinu með skotum, barsmíðum og táragasi (1. okt.) Mahir Akel, 21, var ráðinn af dögum í Jenin af óeinkennis- klæddum hermönnum. Hann hafði flúið úr Meggido fangelsinu átta mánuðum áður. Morðið leiddi til harkalegra mótmælaaðgerða í bor- ginni. Hermenn réðust á mót- mælafólk. Skytta ísraelska hersins, sem hafði athafnað sig á húsþaki, miðaði á Túfiq Raji, 16 ára og Om- ar Amur, 22, sem voru meðal mót- mælenda og drápu þá báða. Að því búnu var sett útgöngubann á alla íbúa borgarinnar, 35.000 manns (2. okt.). Hermenn róðust á föður Omars Amur (sem var skotinn til bana þann 2. okt., sjá að ofan), þegar hann heimsótti gröf sonar síns í Je- nin. Hermennirnir rifu Kóraninn úr höndum hans, fleygðu bókinni á jörðina og tröðkuðu á hinu helga riti (5. okt.). Útgöngubann enn í gildi, sjö- unda daginn í röð, í flóttamanna- búðunum Askar nálægt Nablús á Vesturbakkanum. ísraelskir her- menn ráðast inn í 25 hús, varpa táragas inn í þau og berja íbúana. Fjörutíu íbúar eru handteknir, þar af nokkrar konur og nokkur börn (6. okt.). Israelskir hermenn handtaka meira en 100 manns í flótta- mannabúðunum El-breij. Meira en 55 hús og versianir eru jöfnuð við jörðu sem hóprefsing (Palestínu- menn frá þessum búðum höfðu kveikt í bíl með ísraelskum her- manni). íbúar segja að þótt útgöngubann sé ekki lengur við lýði frá því 1. okt., eru þeir enn inni- lyksa í búðunum og fá ekki að fara til vinnu (7. okt.). Svartur dagur í sögu palestínsku þjóðarinnar. Tuttugu og einn Pal- estínumaður liggja í valnum á tor- ginu fyrir framan einn helgasta stað íslams, Haram Al Sharif. Nöfn þeirra eru birt á öðrum stað í frótta- bréfinu (8. okt.). Sjá einnig forsíðu- grein. Meira en ein milljón Palest- ínumanna búa fimmta daginn í röð við útgöngubann á Vesturbakk- anum og á Gazasvæðinu. ( Jerú- salem beitir lögreglan vatnskanónu til að hindra þúsundir múslíma I að taka þátt í bænagjörðum við al- Aqsa moskuna á helgum degi þeirra (12. okt.). Abdúl Karim Abú Nimr, 73 ára, deyr eftir að ísraelskir hermenn skjóta úr vélbyssu á heimili hans í flóttamannabúðunum Khan Júnís og hæfa hann fimm sinnum á brjóst og kvið. Hermennirnir staðhæfa eft- ir á að einhver hafi kastað grjóti úr húsinu. (15. okt.) fsraelskir hermenn ganga ber- serksgang um flóttamannabúðirnar Kalandia (sem sætir útgöngubanni 10. daginn í röð). Þeir eyðileggja ei- gur manna, berja fólk og handtaka marga tugi ibúa. Hermennirnir eyðileggja mestallar matarbirgðir sem þeir finna í búðunum (17 okt.). Palestinsk móölr stendur hér i rúst- um heimilis sins, sem ísraelskir her- menn hafa lagt i rústir. Khadijeh el-Maghribi, 65 ára gömui kona, deyr af völdum bar- smíða og táragass sem ísraelskir hermenn beittu, þegar þeir réðust inn á heimili hennar í flótta- mannabúðunum Askar til þess að handtaka alla fjóra syni hennar (19. okt.). Blaðamaðurinn Hatem Abdul Qadir, sem vinnur við arabíska dagblaðið Al-Fajr í Jerúsalem, er handtekinn og úrskurðaður í sex mánaða varðhald án dóms og laga (skv. sérstökum herlögum um „ad- ministrative detention") (19. okt.). FRJÁLS PALESTÍNA 5

x

Frjáls Palestína

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.