Frjáls Palestína - 01.11.1990, Blaðsíða 5
Ofbeldis-annáll
Dæmi um atburði í Palestínu 1. til 19. október 1990
Fjórar palestínskar konur frá
Gaza misstu fóstur eftir að her-
menn höfðu varpað á þær táragasi.
ísraelskir hermenn særa þrjátíu og
fimm íbúa á Gazasvæðinu með
skotum, barsmíðum og táragasi (1.
okt.)
Mahir Akel, 21, var ráðinn af
dögum í Jenin af óeinkennis-
klæddum hermönnum. Hann hafði
flúið úr Meggido fangelsinu átta
mánuðum áður. Morðið leiddi til
harkalegra mótmælaaðgerða í bor-
ginni. Hermenn réðust á mót-
mælafólk. Skytta ísraelska hersins,
sem hafði athafnað sig á húsþaki,
miðaði á Túfiq Raji, 16 ára og Om-
ar Amur, 22, sem voru meðal mót-
mælenda og drápu þá báða. Að því
búnu var sett útgöngubann á alla
íbúa borgarinnar, 35.000 manns (2.
okt.).
Hermenn róðust á föður Omars
Amur (sem var skotinn til bana
þann 2. okt., sjá að ofan), þegar
hann heimsótti gröf sonar síns í Je-
nin. Hermennirnir rifu Kóraninn úr
höndum hans, fleygðu bókinni á
jörðina og tröðkuðu á hinu helga riti
(5. okt.).
Útgöngubann enn í gildi, sjö-
unda daginn í röð, í flóttamanna-
búðunum Askar nálægt Nablús á
Vesturbakkanum. ísraelskir her-
menn ráðast inn í 25 hús, varpa
táragas inn í þau og berja íbúana.
Fjörutíu íbúar eru handteknir, þar af
nokkrar konur og nokkur börn (6.
okt.).
Israelskir hermenn handtaka
meira en 100 manns í flótta-
mannabúðunum El-breij. Meira en
55 hús og versianir eru jöfnuð við
jörðu sem hóprefsing (Palestínu-
menn frá þessum búðum höfðu
kveikt í bíl með ísraelskum her-
manni). íbúar segja að þótt
útgöngubann sé ekki lengur við lýði
frá því 1. okt., eru þeir enn inni-
lyksa í búðunum og fá ekki að fara
til vinnu (7. okt.).
Svartur dagur í sögu palestínsku
þjóðarinnar. Tuttugu og einn Pal-
estínumaður liggja í valnum á tor-
ginu fyrir framan einn helgasta stað
íslams, Haram Al Sharif. Nöfn
þeirra eru birt á öðrum stað í frótta-
bréfinu (8. okt.). Sjá einnig forsíðu-
grein.
Meira en ein milljón Palest-
ínumanna búa fimmta daginn í röð
við útgöngubann á Vesturbakk-
anum og á Gazasvæðinu. ( Jerú-
salem beitir lögreglan vatnskanónu
til að hindra þúsundir múslíma I að
taka þátt í bænagjörðum við al-
Aqsa moskuna á helgum degi
þeirra (12. okt.).
Abdúl Karim Abú Nimr, 73 ára,
deyr eftir að ísraelskir hermenn
skjóta úr vélbyssu á heimili hans í
flóttamannabúðunum Khan Júnís
og hæfa hann fimm sinnum á brjóst
og kvið. Hermennirnir staðhæfa eft-
ir á að einhver hafi kastað grjóti úr
húsinu. (15. okt.)
fsraelskir hermenn ganga ber-
serksgang um flóttamannabúðirnar
Kalandia (sem sætir útgöngubanni
10. daginn í röð). Þeir eyðileggja ei-
gur manna, berja fólk og handtaka
marga tugi ibúa. Hermennirnir
eyðileggja mestallar matarbirgðir
sem þeir finna í búðunum (17 okt.).
Palestinsk móölr
stendur hér i rúst-
um heimilis sins,
sem ísraelskir her-
menn hafa lagt i
rústir.
Khadijeh el-Maghribi, 65 ára
gömui kona, deyr af völdum bar-
smíða og táragass sem ísraelskir
hermenn beittu, þegar þeir réðust
inn á heimili hennar í flótta-
mannabúðunum Askar til þess að
handtaka alla fjóra syni hennar (19.
okt.).
Blaðamaðurinn Hatem Abdul
Qadir, sem vinnur við arabíska
dagblaðið Al-Fajr í Jerúsalem, er
handtekinn og úrskurðaður í sex
mánaða varðhald án dóms og laga
(skv. sérstökum herlögum um „ad-
ministrative detention") (19. okt.).
FRJÁLS PALESTÍNA
5