Umbrot - 16.01.1976, Side 2

Umbrot - 16.01.1976, Side 2
UMBROT spyr: Hefur UMBROT þjónað tilgangi sínum sem óháð bæjarblað? Ólafur Theódórsson: Af þeim kynnum sem ég hef haft af blaðinu hefur það fjallað um ýmis málefni, sem gott hefur verið að hreyfa við og gert mikið gagn, en þetta orð „óháð“ er mjög teygjanlegt. Blaðið er óháð pólitískt séð en ég mundi segja að það væri ekki óháð. Jón Gunnlaugsson: Já, ég tel að blaðið þjóni sín- um tilgangi. Orðið „óháð“ er mjög víðtækt og það er alltaf hægt að gagnrýna óháð blað fyr- ir að taka ekki afstöðu. En blað- ið er mjög gott núna og ég vona bara að það haldi áfram á sömu braut. Jóhanna Aðalsteinsdóttir: Mér finnst blaðið svolítið ein- hæft. Blaðið þyrfti að leita meira til fólksins um álit á hinum ýmsu bæjarmálefnum, því fólkið kemur ekki til ykkar. Það mætti koma meira fram hvað fólki finnst um afgreiðslu bæjarmála og þjónaði þannig tilgangi sín- um sem bæjarblað. Friðjón Eðvarðsson: Mér finnst blaðið mjög gott. Það eina sem að því er, að al- menningur mætti skrifa meira um bæjarmálin almennt. Bæjar- Ársskýrsla Slökkviliðsins Árlð 1975 má teljast þegar á heild er litið, frekar annasamt. Fyrrihluti árs- ins var mjög rólegur, en síðari hlutinn óvenju annasamur, og þar áttu útköll í sveitirnar drýgstan þátt að, en út- köllin í sveitirnar urðu alls 8 í haust og vetur_ Útköll vegna elds urðu alls 14 á árinu og haldnar voru 6 æfingar. Tjón vegna elds urðu mjög lítil hér innanbæjar, nema í einu tilfelli, en það var þegar kviknaði í húsinu Vestur götu 115B 17. des. en það skemmdist mikið eða talið ónýtt, en það er gamalt timburhús. Eitt er athyglisvert, en það er, að á þessu ári er ekkert útkall í skip eða báta, en það hefur ekki skeð i mörg ár, því eitt eða fleiri útköll hafa ver- ið í skip og báta á hverju ári. Slökkviliðið fékk talstöövar í tvo bíla í haust og kom strax í ljós öryggi og þægindi við tilkomu stöðvanna, ekki sist þegar þar að sinna útköllum utan- bæjar, en það var einmitt töluvert um þau 1 haust og vetur. Þessar talstöðvar hafa sömu bylgjur og stöðvar lögregl- unar_ Þannig getur slökkviliðið haft samband við hana þegar þörf er á. Eldvarnareftirlit var framkvæmt eins og venjulega. 1 byrjun júni kom eftirlitsmaður frá Brunamálastofnun ríkisins og fór slökkviliðsstjóri með honum á helstu vinnustaði, samkomu- hús og skóla bæði hér í bænum og ná- grannasveitirnar. Gerði hann nokkrar tillögur til úrbóta sem þegar hafa ver- ið framkvæmdar eða i framkvæmd_ Eld varnareftirlit er eitt af þeim erfiðu verkum sem aldrei verða full unnin svo vel sé. Þess má geta að slökkvliðs- stjóri hélt æfingu með skátum og leiö beindi þeim í meðferð slökkvitækja, en þeir höfðu öryggisvakt á Landsmótinu, sem haldið var sér i sumar. Lánaði slökkviliðið öll sín handslökkvitæki við þetta tækifæri. Ef á heildina er litið, var þetta óvenju annasamt ár, en tjón lítil miðað við útkallafjöldan_ búar þyrftu að tjá sig meira um mál sem eru efst á baugi hverju sinni. Ölafur Guðjónsson: Blaðið er ágætt hjá ykkur og til fyrirmyndar að þið skylduð hafa tekið ykkur til og gefið út svona myndarlegt blað eins og UMBROT er og ég hef enga breytingartillögu um að það verði öðru vísi en það er. Frá sóknarpresti Börn fædd á Sjúkrahúsi Akra- ness voru 214 á nýliðnu ári. Ekki mun fjarri lagi, að eitt barn af hverjum þremur, sem fæðast þar, sé Akurnesingur. Á sama tíma voru skírð af sóknarpresti eða í umboði hans 70 börn. Fermingarbörn voru 111 og mun það vera fjölmennasti ár- gangur, sem fermdur hefur ver ið í Akraneskirkju. Gefin voru saman 24 brúð- hjón. — Látnir eru 28 manns. Þakkir Kvennadeild Slysavarnafélags Akraness sendir bæjarbúum innilegar nýárskveðjur og þakk- ar velviija og stuðning á liðnu ári. Stjórnin. GÓÐ INNHEIMTA Innheimta gjalda til Bæjarsjóðs Akraness gekk mjög vel á síð- asta ári. Álögð gjöld ársins 1975 voru kr. 220.305.129 og innheimta ársins var 216.771.139 eða 98,4%. Hér á eftir fer sundurliðun á innheimtu Bæjarsjóðs árið 1975: Álagt/eftirst. Innheimt Eftirst. Innh. % Útsvör ársins 163.043.300 151.615.472 11.427.828 93,00% Útsvör eldri 15.139.051 10.505.019 4.634.022 69,40% Fasteignag. ársins 39.703.929 34.103.922 5.600.007 85,90% Fasteignag. eldri 6.429.242 5.570.049 859.193 86,64% Aðstöðug. ársins 17.557.900 11.655.844 5.902.056 66.37% Aðstöðug. eldri 3.363.044 3.320.833 42.211 98,74% Samtals 245.236.466 216.771.139 28.465.317 88,39% Akurnesingar! ÚRVAL GLUGGATJALDAEFNA STRIGADRALON í MÖRGUM LITUM Saumum og sníðum gluggatjöld ásamt hinum vinsælu köppum. Athugið að panta í tíma fyrir fermingar. Gangið ekki framhjá HORNINU! Versl. HORNIÐ Kirkjubraut 56 — Sími 2153 Versl. BJARG auglýsir: Skrifborð og kommóður Ath.: Greiðsluskilmálar 2

x

Umbrot

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Umbrot
https://timarit.is/publication/1333

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.