Umbrot - 16.01.1976, Síða 3
Badmintonmót...
Nk. sunnud., 18. jan. kl. 12,00
verður haldið opið badminton-
mót í meistaraflokki. Meðal þátt
takenda verða nokkrir bestu
badmintonmenn landsins og má
því búast við spennandi keppni.
Eftir mótið verður áhorfend-
um gefinn kostur á að reyna sig
í íþróttinni og fá leiðsögn.
Akurnesingar eru hvattir til
að mæta og hvetja sína menn.
Þess skal að lokum getið að
Badmintonráð, ásamt hand-
knattleiksráði sá um alla ljósa-
uppsetningu í húsinu í sjálfboða
vinnu.
AKUKNESINGAR!
Kiwanisklúbburinn Þyrill þakk-
ar ykkur fyrir góðar móttökur
er sala flugelda fór fram þann
29. desember sl.
HJÓNAVÍGSLUR
Jæja, þá eru jólin afstaðin,
þessi blessuð ljósahátíð sem okk
ur íslendingum er, leyfi ég mér
að segja lífsnauðsynleg. Þetta
voru að því er fróðir menn tjá
mér Branda-jól, og fékk fólk því
óvenju langt og gott frí frá
amstri og bjástri hversdagsleik
ans, auk þeirrar andlegu upplyft
ingar sem jólin eru okkur í
skammdeginu. Nú lítum við fram
á við til lengri og bjartari nátta.
Eitt er það þó sem mér hefur,
allt frá því að ég komst til vits
og ára, fundist að skyggði á
sjálfa jólagleðina, þessa sönnu
barnalegu gleði, sem ætti
að fylgja þessari hátíð barnanna
en það er auglýsingaskrumið og
þetta mikla kaupæði sem fylgir
jólunum. Kaupmenn og alls kyns
prangarar keppast um að aug-
lýsa fáránlegustu hluti til jóla-
gjafa, búðargluggar fyllast af
alls konar plastskrani og pjátri
frá Hong Kong og Japan, og yf
ir öllu trónar sjálfur mammon,
jólasveinninn, þetta undarlega
hálfheiðna fyrirbæri sem við er-
um á góðri leið með að tileikna
jólin.
Húsmæður leggja á sig mikið
erfiði til þess að hafa nú allt til-
búið þegar jólin koma, húsbónd
inn tekur jafnvel víxil til að
standa fjárhagslega straum af
jólunum, og loks þegar allt er
tilbúið, tíu tegundir af smákök-
um í boxum og búið að eyða
víxlinum í pjátur, þá er farið að
halda heilög jól. En þá, þegar
fólk ætti að fara að geta hvílt
sig eftir erfiðið við jólaundirbún-
inginn, byrja jólaboðin, það er
rokið hús úr húsi, borðað og sof-
ið, borðað og sofið og BANG, jól
in eru farin og eftir situr Manni
með pjátur í hönd og engu nær.
Ég hef alltaf átt því láni að
fagna að geta verið með börnum
á jólunum, börnin eru þau okkar
sem kunna best að meta jólin,
þau eru ekki dauðþreytt þegar
jólin fara í hönd eða láta þreyt-
andi heimboð hafa áhrif á sig,
þau hafa ekki verðmætaskynið
okkar, og meta því ef til vill
meir heimagerða tuskubrúðu en
fjarstýrðan bíl, verðmunur er
augljós en sem betur fer eru ekki
dýrustu jólagjafirnar alltaf þær
bestu.
Eitt er það enn sem vakið hef-
ur athygli mína, en þaö er hin
mikla kirkjusókn við aftansöng
á aðfangadagskvöld, mér er sagt
að þar sé ávallt fullt út úr dyr-
um, og þar sé fólk sem aldrei
endranær sækir kirkju. Skyldi
það hugsast, að þar leitaði fólk
athvarfs eftir hið hressilega
mammonsblót, sem aðventan
er? Ef svo er, er vel.
Reynir Már Samúelsson.
Brúðhjón gefin saman í Garðaprestakalli á Akranesi 1. nóv.
til 31. desember 1975. — Sóknarpresturinn sr. Björn Jónsson gaf
brúðhjónin saman.
Guðrún Linda Örlaugsdóttir Vesturgötu 121, Akra-
nesi og Þorvarður Breiðf jörð Magnússon, Belgsholti,
Melasveit.
Jenný Sólborg Franklínsdóttir og Dagbjartur Kort
Dagbjartsson, Stekkjarholti 16, Akranesi.
(Sr. Jón M. Guðjónsson gaf brúðhjónin saman.)
Sigurbirna Árnadóttir og Guðmundur Arnar Alfreðs-
son, Bessahrauni 12A, Vestmannaeyjum.
Valdís Ragnheiður Jakobsdóttir og Sigurður Einars-
son, Heiðarbraut 13, Akranesi.
Margrét Soffía Björnsdóttir og Ólafur Jón Arnbjörns-
son, Suðurgötu 45, Keflavík.
Sólveig H. Ásgeirsdóttir og Róbert M. Hausler, Vest-
urgötu 111, Akranesi.
Hrönn Árnadóttir og Þorsteinn Jónsson, Garðabraut
10, Akranesi.
1. nóv.
15. nóv.
29. nóv.
6. des.:
27. des.:
27. des.:
31. des.:
AFLI AKRANESBÁTA 1975
Við lauslega könnun á því, hvað fiskiðnaðurimn; á Akranesi greiddi í vinnulaun og til annarrar
þjónustu tengdri fískvinmslu og útgerðinni árið 1975, kom í ljós, að heildarupphæðin er rúmur einn
milljarður — UMBROT lét einnig taka saman skýrslu um afla Akranesbáta árið 1975, tegund veið-
arfæra og aflaverðmæti hjá síldarhátunum, sem veiddu í Norðursjó, og togurunum. Fer skýrslan hér
á eftir (aflatölur í kílógrömmum).
Vetrarv. Sjó Loðnu- Sumar Veiðarfæri Haust Sjó Aflaverðm. Afli og afla-
lína/net ferð. afli vert. vert. ferð. í Norðursjó verðm. togara
Grótta 554.050 66 178.940 Botnvarpa 127.080 28
Haraldur 514.910 61 395.730 Handfæri 199.330 43
Höfrungur 180.520 49 60.920 Humartroll
Höfrungur 2 386.660 63 Seldur
Rán 198,880 54 81.810 Humartroll 54.100 troll
Reynir 436.710 62 65.000 Humartroll 50.000 troll
24.000 rekn.
Sigurborg 403.110 67 219.420 Botnvarpa 172.120 36
Sæfari 256.980 61 178.300 Handfæri 98.780 28
Bjarni Ól. 88.820 17 6.700.000 Söltun
Höfrungur 3 238.340 18 5.290.090 Seldur
Skírnir 104.620 16 5.812.704 156.240 Botnvarpa Söltun 12.753.652
Víðir 134.820 14 3.020.000 235.290 Botnvarpa 89.820 troll
Óskar Mag. 10.300.000 74.720 19 21.507.256
Söltun
Rauðsey 9.811.668 Söltun 39.394.544
Árni Sig. 5.908.000 (Byrjar 22.2.) Söltun 26.915.279
3.498.420 548 1.506.650
Togarar:
Krossvík
Ver
Víkingur (tvær sölur erlendis)
Haraldur Böðvarsson
Smábátar og trillur: 180.380 kg. — Loðnu landað á Akranesi: 16.328 tonn. —
tunnur haustið 1975 af fimm bátum.
tonn land mkr.
2.819 29 99
2.033 16 71
1.187 12 41
912 12 35
6.951 69 246
Síldarsöltun: 9.807
3