Bæjarblaðið - 19.12.1953, Qupperneq 2
BÆJARBLAÐIÐ
Laugardagur 28. nóvember 1955
BÆJARBLAÐIÐ
Ritnsfrub
DR. ARNI ARNASON, KARL HELGASON,
RAGNAR JOHANNESSON OG VALGARÐUR KRISTJANSSON
AfgreiStlumaSur:
ODDUR SVEINSSON
Sími 74.
SlaSiS kemur út annan hvern laugardag.
PrentáS i Prentverki Akranets h. f.
3ól
Enn koma blessuð jólin — hátíð hátíðanna — og minna
okkur á hann, sem beztur hefur lifaS hér á jör'8 og kristnir
menn milljónum saman þakka stærstu lífshamingju sína.
Jólin — enn koma þau me'Ö sitt fyrirheit um allt í senn:
kœrleika Guðs til brotlegra manna, frelsun þeirra, friS á jörð
og bröðurhug og brœÖralag manna í milli, flokka, stétta og þjóSa.
Þegar skammdegiS er mest skín okkur börnum norSurs-
ins IjósiS, sem leggur inn aS hjartarótum. ÞaS Ijós hefur logað
yfir íslenzkri byggS í raSir alda, vermt í vetrarkuldunum,
kveikt vonir og gefiS sigurbros á vör í stríSu sem blíSu. Allt í
islenzku þjóSlífi, sem fegurst er og bezt, á rætur sínar aS, rekja
til jólanna.
„Vér fögnum komu Frelsarans,“ syngjum viS á jólum.
öll höfum viS veriS börn og minnumst þess af hve sönnum
og heilum hug víS glöddumst, þegar bernskujólin okkar komu.
Barnslundin er enn söm viS sig, og ef viS viljum sjá hvar birta
jólahátíSarinnar finnur opnasta leiS, þá lítum á litlu barns-
andlitin í kringum okkur um jólin. En á hvern hátt fögnum
viS — hin eldri — komu Frelsarans? Gerum viS þaS méS opn-
um hug, eins og þegar lítiS blóm breiSir úr krónunni og drekk-
ur í sig sólargeislana til þess aS geta lifaS, og dafnaS? Gerum
viS þaS á þessa lund:
„Kom blessuS Ijóssins hátíS, — helgi þín
minn hug og vilja, göfgi, vermi, fylli, '1
svo máttug verSi’ og heilög hugsun mín
og hörpu mína Drottins andi stilli.“
ViS verSum aS skilja þáS, aS Frelsaranum er ekki bezt
fagnaS méS ytra umstangi, og þar sem hugsáS er um þaS fyrst
og fremst aS klœSa jólahátíSina glysi og prjáli og óhófi, er
honum raunverulega úthýst. 1 auSmýkt og bæn skal hver ganga
til móts viS hann.
1 hjarta sínu þráir hver maSur aS eignast innra öryggi
og verSa sem beztur maSur, sér og öSrum til hamingju og
blessunar. ViS finnum öll til vanmáttar okkar og þess, aS af
eigin kröftum getum viS ekki lifaS því lífi, sem hugur okkar
og hjarta kýs. En — GuSi sé lof, til er hönd hans, sem hjálpar
okkur og leiSir. BróSurhönd Jesú Krists er okkar eina von til
fyllra, fegurra og betra lífs. — Inn í friðvana heim, til ófull-
kominna og vansœlla manna berst rödd hans: „Sjá, ég er meS
yður alla daga. Fylg þú mér.“
GuS gefi, aS jólagleSi þín og mín sé af því sprottin aS viS
viljum helga honum líf og krafta og finnum, aS því aSeins
erum viS á réttri leiS aS Frelsarinn haldi í hönd okkar.
„Kærleikans ímyndin fegursta, Frelsarinn blíSur.
fáSminn GuSs miskunnar enn sem fyrr hjörtunum býSur;
hvíld finnur hér
hver sá, er þjakáSur er,
huggun sá, hrelling er líður.“
Jón M. Guðjónsson.
DR. ÁRNI ÁRNASON.
Fyrsti dcsember. - EJtirþdnhar
Fyrsti desember hefir riú
verið haldinn hátáðlegur að
vanda og það með réttu. Hann
er dagur endurminninga, dag
ur yfirlits um frelsishagi þjóð-
arinnar, dagur framtíðaráætl-
ana og heitstrenginga. Það fer
því ekki illa á því, að stúdent-
amir, tilvonandi leiðtogar og
forvígismenn á mörgum svið-
um, taki daginn sérstaklega að
sér og setji á hann hátiðarbrag.
Hann er dagur minninga. Vér
höfum fulla ástæðu til að rifja
upp sögu frelsis og sjálfstæðis
og kúgunar og ósjálfstæðis. Oss
er hollt að minnast þess, hverj-
ar voru orsakir þess, að þjóð-
in glataði frelsi og sjálfstæði.
Það er líka hollt, að minnast
þeirra tíma, þegar þjóð vor bjó
við ófrelsi, umkomuleysi, fá-
tækt og hraðrétti, en sýndi á
þeim tímum sem oftar þrek
og þrautseigju og sigraðist á
erfiðleikunum með hinum
fornu þjóðardyggðum, þolgæði,
iðjusemi og sparsemi. Og það
er líka hollt, eins og það er
gleðilegt, að minnast þeirra
tíma, þegar aftur fór að rofa til
og birta tók yfir þjóðl'ífinu, og
þeirra ágætu manna og einlægu
ættjarðarvina, sem þá voru að
verki, vöktu þjóðina til umhugs
unar og skilnings og stöppuðu
í hftna stálinu. Það þurfti vissu-
lega að taka til hendinni í verk-
legum efnum og þá var starfið
að sínu leyti ekki minna í and-
legum efnum. Það þurfti að
vekja þjóðina til meðvitundar
um sjálfa sig, um hlutverk sitt
og gildi, vekja hana og hvetja
ti'l starfa, til endurreisnar tungu
sinni, frelsi og þjóðlegum verð-
mætum yfirleitt. Þessa alls og
þeirra ágætu manna, sem að
þessu unnu, minnist þjóðin i.
desember. En á þeim degi er
lika hugað að því, hvar vér
nú stöndum og hvernig. Það er
hollt, að virða fyrir sér ástand
og horfur og taka mikilvægar
ákvarðanir. Á þeim fyrsta des-
emberdegi, sem er nýlega lið-
inn, var þetta gjört að tölu-
Framhaid á 3. síðu
rfóh.
Skrafiað og skeggrœtt
★ Litið í búðarglugga.
Þessa dagana er óvenju mikið um
það, að fólk gangi í búðir til að skoða
vörur og til þess að kaupa, sjálfum
sér og öðrum til glaðnings um jólin.
Sumura firanst það jafnvel harla góð
dægradvöl að skoða vörur, án þess
að kaupa nokkuð. Og víst má hafa
gaman af slíku, einkum, ef vel og
smekklega er um vörumar búið í hill-
um og gluggum.
Mikið veltur á því, að smekklega
sé stillt út i búðarglugga. Það er mik-
ils vert fyrir verzlanimar sjálfar og
getur verið mikið augnayndi fyrir
skoðandann, því að stundum má kalla,
að smekkvíst verzlunarfólk búi til
hrein listaverk í gluggum sínum.
Slíkt dregur viðskiptavini að, því að
það má öllum ljóst vera, að fólk, sem
snyrtilega gengur um verzlun sína og
sýnir smekkvísi í gluggasýningum.
hlýtur að leggja rækt við starf sitt
og hjá því þess vegna fremur a?
vænta góðra og smekklegra vara.
Enda er mjög misjafnt að líta í búðar-
glugga og misjöfn umgengnin í búð-
unum. Sums staðar er þvi iíkast, að
búðargluggamir séu notaðir sem
skrangeymslur, sem hlutum er fleygt
i af handa hófi, grænsápa við hlið
ina á aradlitspúðri, silkisokkar hjá vað
málsbuxum.
★ Gluggasýningar og
auglýsingar.
Hér á Akranesi er verzlunum nokk
ur vorkunn, þótt öllu ægi saman í út-
6tillingum. Flestar eru verzlanimar
hér alhliða verzlanir, en ekki sér-
verzlanir, auk þess hafa flestar litla
glugga. En heppilegustu og smekk-
legustu útstillingarnar eru sjaldn-
ast þær, sem f jölbreyttastar eru, þ. e.
eins miklu og frekast er unnt hrúgað
í gluggana. Þvert á móti eru hinar
beztar, sem leggja megináherzlu á
eina vörutegund eða fáar í senn, og
helga þeim eingöngu heilan glugga
eða jafnvel meira. Þá er athygli vak-
in á viðkomandi vörutegund, sem
verzluninni er sérstaklega umhugað
um í það og það skiptið. En þetta
kostar vinnu og hugkvæmni, og oft
þarf að skipta um.
Þá er sjaldgæft hér að sjá sann-
kallaða uppstillingu, en oft minna
fallegar útstillingar á leiksviðsupp-
setningu. Þá er ekki nóg að láta vör-
una sjálfa í gluggann, ýmis hjálpar-
meðul eru tekin til aðstoðar: áletran-
ir, teikningar, súlur, tjöld, húsgögn,
blóm o. s. frv. Því eru lítil takmörk
sett, hvað hugkvæmur og smekkvís
verzlunarmaður getur gert i glugg
anum sínum.
Um auglýsingamar er svipað að
segja. Margir virðast telja það litlu
skipta, hvemig auglýsing í blaði eða
annars staðar er orðuð og lítur út.
Sumir segja jafnvel, að blaðaauglýs-
ingar séu gagnslausar, og ef þeir aug-
lýsi, geri þeir það blaðsins vegna. Þeir
sem þannig tala, eru harla litlir verzl
unarmenn. Vald auglýsinganna er
geysimikið, og er því hinn mesti
vandi að ganga frá auglýsingu, þótt
ekki sé nema fáein orð. Og menn
eiga að reyna að fá sem mest fyrir þá
peninga, sem þeir borga fyrir auglýs-
ingar.
*„IIva varða ferir þeg?“
Svo skulum við skreppa mn í búð-
ina og „stúdera" blessað búðarfólkið
í kyrrþey. Það er mikill vandi að
vera innan búðar. Til þess fólks eru
gerðar strangar kröfur um framkomu
og allt háttalag í starfi. Og hér er
víða pottur brotinn, þvi miður. Sér-
staklega er ungu fólki, a. m. k. hér
i bæ, ósýnt uiú að stunda fágaða
framkomu, hverju sem um á að
kenna, heimilum, skólum eða um-
hverfi, eða þessu öllu saman. Auð-
vitað finnast prýðilegar undantekn-
ingar, og minnist ég t. d. strax einn
ar eða tveggja ungra meyja, gam
alla námsmeyja minna, sem eru fyr-
irmyndar afgreiðslustúlkur, kurteisar
og röskar. En öðrum gengur miður,
og er það auðvitað ekkert eins dæmi
hér á Akranesi. Hverjir kannast ekki
við búðarstúlkur, sem vnicla sér frekju
lega að viðskiptavini, sem á sér einsk-
is ills von, og hreyta framan í hann:
„Hvavarða ferer þeg?“, e. t. v. í
miðju tyggigúmmísáti. Rétt er að
benda búðarfólki á, að ekki er viS-
eigandi að vera að rabba við kunn-
ingjana meðan viðskiptamenn bíða.
Fliss og flannahlátrar eiga heldur
ekki við í afgreiðslustörfum. Flestir
eru í búðir komnir í alvarlegum er-
indagerðum. Góð afgreiðslustúlka
(eða afgr.maður) er hæversk og eðli-
leg í framgöngu, sýnir mikinn áhuga
fyrir afgreiðslunni og aðstoðar við-
skiptavininn eftir fremsta megni og
setur sig iran í þarfir hans. Stima-
mýkt á ekki alls kostar við oss Is-
lendinga, en frjálsleg kurteisi er
lágmarkskrafa. Hér á Akranesi mundi
t. d. tæplega þykja viðeigandi, a. m.
k. ekki fyrst í stað, að segja: „Hvað
þóknast herranum (eða dömunni)?“,
þótt slíkt væri auðvitað engin frá-
gangssök, og tíðkast orðið mikið í
Reykjavík. En hér gæti afgreiðslu-
fólk t. d. sagt: „Hvers óskar þú?“
eða: „Hvað get ég gert fyrir þig?“ í
stað hins hvimleiða: „Hvavarða ferer
þeg?“ (og varast ber að þúa ókimn-
uga, þótt þéringar séu sjaldgæfar
hér).
★ Dónalegir búðargestir.
En búðarfólkið á ekki sökina eitt.
Sumir viðskiptamenn haga sér rétt
eins og halanegrar í búðum og verða
sér stórkostlega til minnkunar,
ryðjast fram fyrir náungann, skamma
allt og alla og sýna önnum köfnu
afgreiðslufólki ósvifni. Það er hart að
mega ekki visa slíku fólki á dyr,
hvort sem um er að ræða sjómann
eða „fína“ frú. Það er fullkominn
dónaskapur að skammast eða pexa
við undirmann í verzlun um verð
og gæði, slíkt ræður hann ekkert um.
Allt pex og prútt í verzlunum á afar
illa við Islendinga flesta og ratmar
Norðurlandabúa yfirleitt. Það eru
Austurlandabúair, sem fást aðallega
við þá list.
Nei, það er reglulega gaman að
koma í verzlunarbúðir, þar sem
saman fer snyrtimennska og hug-
kvæmni annars vegar og kurteisleg '
og þægileg afgreiðsla hins vegar,
og allir gerðir jafnir; hvort sem
pyngjan er létt eða þung. Þá fara
viðsk.vinimir að kunna vel við sig
í búðinni.
★ Verðraiðar.
En meðal annarra orða .... i
gildi munu vera ákvæði um það að
verðmiðar fylgi vörum, sem stillt er
út í búðarglugga, enda er slfkt til
hins mesta hagræðis. Hér sjást þessir
miðar varla, þó bregður þeim fyrir
á 9töku stað. Hver á að sjá um, að
þessu ákvæði sé framfylgt? Það er
sjálfsagt, að neytendur fylgi þessari
kröfu eftir, og er hér með skorað á
verzlanir að hlýða þessu sérstaka á-
kvaeði.
★ Jólaösin.
Jólahátíðin hleypir jafnan miklu
fjöri í vissar greinar viðskiptalífs-
ins, sumar ekki sem þarfastar. í sam-
bandi við hana mun sums staðar
tíðkast hið mest óhóf í mat, drykk
og gjafaglingri, og er fólk auðvitað
sjálfrátt um það, hvernig það eyðir
peningum, sem það þykist hafa efni
á að eyða, en brýn þörf væri á
þvi, almenningur hefði beinlinis sam-
tök um að sitja á og hefta ýmsa
eyðslusiði í sambandi við jól, sem
óþarfir eru, en aðeins stundaðir til
þess „að vera eins og hinir.“
Aðalatriðið er ekki 5ifín“ jól,
heldur
GLEÐILEG JÖL!