Bæjarblaðið - 19.12.1953, Síða 3

Bæjarblaðið - 19.12.1953, Síða 3
LaugarcLagur 19. desember 1953. BÆJARBLAÐBE) 3 - 1. desember - Eftirþankar Framhald af 2. síðu verðu leyti. Þá bar mikið, og enda mest, á umhugsun og um-. ræðum um ástæður hins ís- lenzka rikis, aðstöðu lands vors i gagnvart umheiminum og þá einkum d sambandi við varn- arbandalag hinna vestrænu þjóða, en þar erum vér ekki á eitt .sáttir. I herverndarmálum svo nefndum skipast menn einkum í tvo flokka, og raunar að vissu leyti í þrjá. Aðalandstæðurnar eru á móti eða með hervemd. Hvorir tveggja færa fram rök fyrir sínu máli. Hér má drepa á hin helztu eða algengustu þeirra. Andstæðingar hervemd ar segja eitthvað á þessa leið: Island hefir lýst yfir ævarandi hlutleysi og því ber að halda áfram. Þátttaka Islands i varn arbandalagi hinna vestrænu þjóða brýtur bág við hlutleysið og er landinu hættuleg, því að þá er hættan sú, að vér verðum styrjaldaraðili. Herbúnaður Bandaríkjanna og herseta þeirra í landinu er stórhættu leg, því að það eykur mjög Iíkumar á þV.í, að landið verði vettvangur árásar, ef heims- styrjöld skellur á. Auk þess eru hervarnir þær, sem hér em framkvæmdar, kák eitt og kæmu oss ekki að haldi i árás. Ennfremur er hersetan til tjóns fjrrir þjóðlíf vórt og hættuleg þjóðerni voru. Loks er her- varnarsamningurinn undan- látssemi við ásælni Bandaríkj- anna, sem er vitanleg og hef- ir komið fram berlega, meðal annars í því, að þeir fóm ekki á brott með her sinn í stóðs- lok og fóru fram á leyfi til her- setu til 99 ára. Þeir, sem eru hersetunni samþykkir, segja aftur á móti eitthvað á þessa leið: Hlutleysi vort í styrjöld sem þá verður heimsstyrjöld, er ekki annað en orðin tóm. Vegna legu sinnar er Island svo mikilvægt hemaðarlega, að hvomgum aðila myndi til hug- ar.koma, að láta það afskipta laust, heldur myndi hvor um sig reyna að verða fyrri til að klófesta það. Það verður því stóðsvettvangur og vér fáum engu um það ráðið. En oss er ekki sama, hvor aðili nær hér fótfestu. Vér fylgjum hugsjón Vesturveldanna í alþjóðamál- um og álítum, að samtök þeirra miðið að frelsi og friði. Það er þvi rétt og ráðlegt að gjöra við Bandaríkin viturlegan samning um þær ráðstafanir, sem miða svo sem unnt er að þvlí, að vemd landsins sé borgið, og gætt sé öryggis þjóðarinnar. I slíkum 'samningum verðum vér að gæta vor fyrir erlendri ásælni. Hersetan er ill, en hún er óhjákvæmileg nauðsyn á meðan svo ófriðlegt er í heim- inum sem nú er og styrjöld getur skcllið á óðar en varir. Galla á ýmsum framkvæmdum vegna hersetunnar verður að laga og úr þeim má bæta. I þriðja lagi eru svo þeir menn, og ekki allfáir, sem að vísu telja hervernd og hersetu ilia nauðsyn, en líta svo á, að stjórn arvöld vor hafi ekki staðið nægilega vel í ístaðinu í þessum rnálmn og að mikið skorti á, að i framkvæmd sé öryggis þjóð arinnar gætt svo sem skyldi. Þetta sjónarmið kom fram í sinni athyglisverðu ræðu Jó- hanns Sæmundssonar prófess- ors. Hér er aðeins drepið á að- alatriðin i skoðanamun manna um hersetuna. Þessar athuganir á aðstöðu vorri og ástæðum voru það, sem mest bar á og mest var rætt opinberlega 1. desember síðastliðinn. En i öllum umræð- um og öllu starfi að frelsi, full- veldi og gengi og gæfu þjóðar vorrar nú og á komandi árum er þó eitt enn, sem ekki má gleyma og hafa verður jafn- an hugfast. Það er þjóðin sjálf, eiginleikar hennar, hæfileikar, viðnámsþróttur og öll starf- semi. Og það er þetta mikil- væga og enda mikilvægasta at- riði, sem mér fannst ekki koma nægilega skýrt í ljós og ekki nægileg áherzla vera lögð í umræðunum á þessum hátíð- isdegi. Það er mikils um það vert, að geta verið hlutlaus í styrjöld, eða að allar ytri varn ir séu í lagi, ef á þeim þarf að halda. En um hitt er ekki minna vert, að hinar innri varnir séu í lagi. Það er vegna þess, að úrslitin velta á þeim að síðustu svo og þvi ekki síður, að þar getum vér ekki verið hlutlausir. Það reynir alltaf á hinar innri varnir þjóðarinnar í öllu lífi hennar og viðskiptum við aðra fyrr og siíðar. Með innri vörnrnn er hér vitanlega átt við manndóm og mannkosti, sjálfstæða hugsun og heilbrigða dómgreind, þjóðhollustu, ætt- jarðarást, trúmennsku og ásér plægni í störfum, drengskap, orðheldni og ráðvendni. Land vort og þjóð eru þannig á sig komin, að oss er þörf og nauð- syn þess, að þjóðin búi yfir góðum hæfileikum, þroska og viðnámsþrótti. Land vort er gott og gjöfult, en það selur ekki gæði sín við öðru en þrótt miklu starfi og elju. Hóglíf og löt þjóð mim ekki þrífast' þessu landi. Vér erum lítil þjóð, sem eigum dýrmæt andleg verð- mæti og land, þar sem eru mikil ónotuð verðmæti. Vér megum gæta þess, að glata ekki hvoru tveggja, glata ekki sjálf- um oss og renna saman við aðra stærri þjóð. Vér óttumst hersetuna og höfum andúð á henni, og herinn er vissulega illur aðskotahlutur í þjóðar- líkama vorum. En vér verðum að gjöra oss ljóst, að vér verð- um ekki framar einangraðir, svo -framarlega sem menning jarðar vorrar lifir áfram. Jörð- in heldur áfram að minnka, ef svo má segja, þóttbýlið vex, samgöngur aukast, fólkinu fjölgar og samkeppnin vex, ekki sízt um matinn. Vér verð- um að vera við því búnir, að Verða fyrir meiri og meiri á- SVEINN GUÐMUNDSSON, rafvirkjameistari. Mestn Áhyfföjuefm rdfvírkjflonA — Framhald úr síðasta blaöi — Til þessara staða teljast t. d. baðherbergi, þvottahús, útihús, ölgerðarhús, sláturhús, sápu- gerðarhús heyhlöðm, steinolíu- geymslur og bensíngeymslur, einnig sumar geymslur verzl- ana, trésmiðjur, tóvinnuhús, og margir aðrir staðir. Sérstakar reglur gilda um rafmagnslagnir á þessum stöðum. Ég ætla nú að ræða lítillega aðra hlið þessa máls. Mín trú er sú, að er eldsvoði verður frá rafmagni sé hann margfalt oft- ar frá rafmagnstækjum eða að- taugum þeirra heldur en raf- lögnum og finnst mér of lítill greinarmrmur á í tfréttum blaða, er rafmagn veldur elds- voða, það er hvort raflögn húss- ins, eða hvort það er eitthvað rafmagnstæki, sem eldinum veldur, því að vissulega verkar það mjög tvírætt gagnvart við- komandi rafvirkja, ef eingöngu er getið um að rafmagn sé or- sök eldsins. Eitt er það, sem ég get ekki látið hjá líða að minn- ast á, það er ef hús brennur og eldsupptök eru ókunn, hve þvi er oft slegið föstu, algjörlega út í bláinn, að rafmagn hljóti að hafa verið þar að verki. Veit ég um mörg dæmi í húsum, sem tekizt hefur að bjarga og álitið hefur verið, að ekki gæti verið um annað að ræða en raf- magn, hefur allt annað komið í ljós, er athugun hefm farið fram. Ætla ég að geta hér nokk- urra dæma. Eldur hafði komið upp í verzluninni Bjarg h.f. í herbergi í miðju húsinu, hafði brunnið þar utan af hessían- stafla, sem var staflaður á gólf- ið upp í á að gizka eins og hálfs metra hæð, þiljur sviðnað og gat komið á loftið. Þama inni var ekkert annað en fyrnefnd- ur hessian og ekki hafði verið komið þar inn með sígarettu né annan óbyrgðan eld um lengri tíma. Engin raflögn var í herberginu, en ofan við gat- ið, sem brann á lo'ftið lá blý- strengur, sem lagður var þar eftir bita. Strax var bent á, að ekki gæti verið um annað að ræða en blýstrengur þessi hefði valdið eldinum. En þegar að var gáð kom í ljós að blýstrengurinn hafði ver ið tekinn úr sambandi við raf- lögnina fyrir nokkrum árum síðan, en hvað eldinum hafði valdið, því verður ekki reynt hrifum. Þau áhrif verða marg- vísleg, bæði á þjóðemi vort, tungu vora og lifnaðarhætti og vér munum jafnan þurfa á því að halda, að gæta að oss. Lítil þjóð í heimi vaxandi fjölmennis og þéttbýlis verður ávallt að gæta sín. Vorar innri vamir verða því sígilt áhugamál og nauðsynjamál þjóðar vorrar. að svara hér, en það var ör- ugglega ekki út frá rafmagni. Er eldur kom upp á íþrótta- húsinu fyrir nokkrum árum, var strax fullyrt, að um í- kveikju frá rafmagni væri að ræða. En er eldurinn hafði ver- ið slökktur kom í ljós, að elds- upptök vom þau, að hiti frá rafmagnsofni hafði valdið eld- inum. Eldur kom upp í beitningar- skúr hjá Fiskiver h.f. Þessi beitningarskúr er í hluta af stóru timburhúsi, sem geymd munu vera verðmæti fyTÍr tugi þúsunda króna. I beitningar- plássi þessu er notaður olíuofn til upphitunar. Þeim mönnum, sem þama höfðu verið að vinna áður en eldurinn gaus upp, bar öllum saman um, að slökkt hafði verið á homun 2—3 tím- um áður en eldsins varð vart. Þama inni átti því ekki að vera um neinn eld að ræða, og er því hætt við að sterkur grunur hefði fallið á rafmagnið eða það jafnvel fullyrt, ef húsið hefði brunnið til kaldra kola. Morguninn eftir fór ég þaraa niður eftir fyrir forvitnissakir og mætti ég þá framkvæmda- stjóra fyrirtækisins og ávarpaði hann mig eitthvað á þessa leið: „Jæja, frændi, fullvíst er að ekki er hægt að kenna rafmagni um lí þetta sinn.“ Minntist ég varla að hafa fengið kveðju, sem mér hefur þótt vænna um að fá. Eitt sinn var ég kvaddur í niðursuðuverksmiðju H. B. & Co., til að gera við rafmagns- vél, sem notuð var til að hræra með, kvartaði starfsfólkið imd- an því, að það 'fengi straum af áðurgreindri vél. Gerði ég við vélina, sem reyndist biluð. Dag inn eftir gýs upp eldur í verk smiðjunni og stórskemmdist hún. Eftir brunann mun þá- verandi verksmiðjustjóri hafa haft orð á þvi, að starfsfólkið hefði orðið vart við rafstraum daginn fyrir brunann, en láðist að geta þess, að ég var búinn að lagfæra bilunina, sem hon- um var þó full kunnugt um, og virðist það all undarlegt. Var það álit þeirra manna, sem þetta skoðuðu eftir að búið var að kæfa eldinn, að eldsupptök hefðu orðið upp yfir stórum gufukatli, sem er í verksmiðj- unni og var í notkim er þetta skeði. En þar nærri var engin raf- lögn, svo ikviknun frá raf- magni virtist óhugsandi. Löngu seinna barst þessi bruni í tal á milli mín og umboðsmanns brunabótafélagsins hér á staðn- um og segi ég að ekki hafi nú verið um að villast að eldsupp- tök hafi ekki verið frá rafmagni a þetta skipti. Skýrir hann mér þá frá, mér til stórkostlegrar undrunar að niðurstaða á réttarskýrslu þeirri, sem sér hafi borizt eftir brunann hafi verið sú að kvikn- að hafi í út frá rafmagni og má það furðulegt teljast. Er Hótel Akranes brann heyrði ég talað um að eldsupp- tök hefðu verið út frá rafmagni, en býst þó við, að fáir eða eng- irm geti sannað það með nokkr- um rökum. Því tel ég, að ef eldsupptök eru ekki ljós, sé það einstakt ábyrgðarleysi að slá því föstu, að rafmagn hafi valdið íkvikn- uninni á þeim forsendum ein- um, að þar hafi ekki verið neitt fyrir hendi, sem íkvikniuninni hafi getað valdið annað en ra-f- magn. Að endingu vil ég taka fram: Rafmagnið er dásamelgur kraft ur, sem mannsandinn hefir tek- ið í þjónustu sína, og höfum við Islendingar ekki sízt þörf á og skilyrði til að notfæra okk- ur rafmagnið til að gera okkur auðveldari lífsbaráttuna. En við verðum að fara gætilega með þennan kraft, því að hann getur verið ættulegur líifi og eignum manna, ef eigi er rétt með hann farið. Hvílir þvi mik- il ábyrgð á öllum þeim, sem að því vinna að beizla þessa orku og verða þeir að framkvæma verk sín með samvizkusemi og vandvirkni. Einnig hvílir sú skylda á notendum, að hlýða settum reglum um raflagnir og tæki og gera sitt til að þessi áhöld séu ávallt í góðu lagi. Frá‘Brunabótafélagi íslands Þeir, sem enn eiga eftir að greiða brunabóta- gjöld af húseignum sínum, eru hér með áminnt- ir um að greiða fvrir áramót. Eftir þann tírna ber að krefjast lögtaks á þeim, og reikna drátt- arvexti. Alcranes-umboð 16. des. 1953 U mböösmáöur.

x

Bæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1341

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.