Bæjarblaðið - 19.12.1953, Síða 5

Bæjarblaðið - 19.12.1953, Síða 5
Laugardagur 19. desember 1953. 5 BÆJARBLAÐIÐ inn Nýtt alikálfakjöt Svínakjöt Léttsaltað dilkakjöt Haust saltað dilkakjöt Gulrófur, alls konar niðursoð- ið grænmeti hraðfryst hvítkál oggúrkur Egg, reyktur lax og alls konar álegg GERBÐ JÓLAINNKAUPIN TÍMANLEGA, PANTIÐ I SfMA 211. ★ JÓLAPANTANIR VERÐA SENDAR HEIM A ÞORLÁKSMESSU. Mfttardeild Kftupfélftgsins I jólamat Rjúpur Dilkahangikjöt T rippahangikjöt Heill hryggur Cotelettur Lærissneiðar Heil læri Nautabuff CJftmlir sidir 09 veojur Þegar ég var ungux þótt sjálf sagt, að hvert heimili hefði fastar venjur og siði, um eitt og annað, en nú finnst mörg- um, að það eigi helzt ekki að hafa svo sem neinar fastar venjur. Meira að segja, að krakkarnir eigi bara að koma inn og hátta þegar þeim sýn- ist, hvað sem áliðið er kvölds, eða nætur, og á hvaða aldri sem er. Það voru ýmsar ákveðnar venjur um helgihald hátíðis- daga, svo sem það, að á að- fangadagskvöld mátti ekki spila á spil, né viðhafa neinn glaum. Á gamlárskvöld áttu allir að vera heima og minnast sameig- inlega ársins, sem var að enda og byrja nýja árið sem ein heild. Jóladagamir og nýárs- dagur voru aftur hátíðisdagar, sem sjálfsagt var að skemmta sér, eftir ástæðum, en þó átti kirkjuganga alltaf að sitja fyr- ir og skemmtanirnar að koma í naestu röð. Bænadagar og Páskadagur voru aftur á móti eingöngu helgidagar og þó sérstaklega föstudagurinn langi og Páska- dagurinn. En nú er það bara orðið algengt að báðir bæna- dagarnir séu notaðir eingöngu til margs konar skemmtana og fyrir „party,“ eins og farið er að segja. Þetta venjast börnin við nuna, og þá er von að þau vilji hafa það þegar þau eru orðin fullorðin. Ég hef nú ekki komið í útlandið, en margir hafa sagt mér, að aðrar menn- ingarþjóðir hefðu fasta þjóðar- siði og miklu fastari venjur heldur en við og þær þy-ki svo sjálfsagðar, að varla detti fólki í hug annað en fylgja þeim. Svona var það hjá okkur, en nú er þetta mikið breytt. Það var eins og um að gera, að þurrka út sem flestar venjur hjá okkur-á timabili. Fólki fannst allt betra ,sem var nýtt og ég tali ekki um, ef það var útlent. Ætli þetta hafi ekki stafað nokkuð af þvi, að fyrir síðustu aldamót voru Islending- ar svo trúlausir á allt sem við- kom landi og þjóð, að þeir hafi helzt viljað kasta öllu fyrir borð, sem minnti á íslenzku þjóðina og héldu að allt annað væri betra. öll harðind- in og fátæktin, sem þeim fylgdi, var búið að hafa þessi áhrif Ég er nú svo gamall, að ég man tímana tvenna og ég var einn af þeim, sem helzt hefði viljað flýja allt sem íslenzkt var, þegar ég var rrngur. En eftir að .hafa séð og reynt, hvað landið gefur og þjóðin getur, hefur skoðtm mín alveg breytzt og nú er ég orðinn þeirrar trú- ar, að fáar þjóðir geti haft það betra en við, ef við högum okk- ur skynsamlega. Mér sýnist bara svo fjarska uiikið los á mörgu hjá okkur, og fólkið er svo lítið ánægt, þó sýnist mér það hafa það dæma- laust gott, ef ég ber það sam- an við fyrri tíma, t. d. þegar ég var ungur. Fólkið er alltaf að leita að ánægju og gleði, en ég held hreint að það geri sér ekki ljóst, að það þarf sjálft að leggja fram sinn hlut til að skapa ánægjuna. Ég kem nú ekki oft á manna- mót, eða skemmtanir, en mér sýnist mest lagt upp úr því, að fá dýra skemmtikrafta, helzt sem allra lengst að, en þykir flest lélegt, sem að heiman er lagt til. Ég geri nú l'ítið orðið, annað en rölta hér um götumar og helzta ánægja mín er, ef ein- hver staldrar við og rabbar ögn við mig. Það eru bara svo dæmalaust fáir, sem mega vera að þvi. Það er þetta ógnar ann- ríki, allir verða að flýta sér svo mikið. Jú, þetta fannst mér líka, hérna áður. Nú sé ég, að annríkið er stundum tilbún- ingur hjá manni, og stundum koma þeir langmestu af, sem hægast fara. Svo held ég að sumir séu alltof alvarlega þenkj andi, eða mér sýnist það oft á þeim, þegar ég mæti þeim. Mér dettur þá oft í hug, að nú séu þeir að ráða fram úr einhverj- um heim9vandamálum. Kann- ski þeir séu nú að brjóta heil- ann um hvernig hægt sé að fá þetta í lag í Kóreu, nú eða hvað sé hægt að gera til þess að þeir verði vinir, þama Molo- tov, Churchill, Eisenhower og hvað þeir nú heita öll þessi stórveldi. Það þyrfti svo sann- arlega að venja þá af því að skrökva svona hver upp á ann- an. Það er margt umhugsunar- efnið, nú eða bara skulum við segja sandfokið hérna og þess- ar ólukkans vilpóttu götur. En það er ég viss um að batnar ekki fyrr en eftir bæjarstjóm- arkosningar. Jæja, stöku sinnum stanza þó kunningjar ininir hjá mér og heilsa upp á mig, meirá að segja með handabandi. Það finnst mér nú þjóðlegur siður. En hvað það er skrítið, mér finnst stundum að srnnir séu hálf hræddir við að 'verða of „sveitó“ með því. Þeir óttast kannski að brosað verði að þeim, eins og sveitamannin- um, sem labbaði niður Lauga- veginn í Reykjavík og heilsaði öllum, sem hann mætti með handabandi, og sumum með kossi. O, nei, það er engin hætta á þvd, þetta hvað vera algengt í útlandinu og einn kunningi minn, sem lengi var búinn að sigla, sagði mér, að það þætti bara sjálfsagt að heilsa og kveðja með handabandi, þegar komið væri í heimsókn, en það er nú ekki lengur móðins hér. Það halda sumir, að Ameríkan- amir séu alveg hættir þVí. Svo ætluðu læknarnir einu sinni að fara að telja okkur trú um að við gætum fengið bakteríu af því að taka í hend ina hver á öðrum, svo að, bezt væri að hætta þessu. En ég hef nú verið til sjós og þar drukk- um við stundum margir úr sömu krúsinni alveg eins og þegar við vorum á kendiríi í landi og varð ekki meint af. Ég er búinn að sjá, að við eigum ekki að apa allt eftir öðrum, heldur hafa okkar siði, hvað sem þeir útlendu segja og kenna krökkunum okkar það líka. Við þurfum svo sem ekki að skammaSt okkar fyrir að vera Islendingar. Ég hef líka heyrt að margir útlendingar brosi að okkur fyrir það, að við þorum ekki annað en reyna að vera alveg eins og þeir. En oft detta mér þá í hug feðg- arnir og asninn. En nú eru blessuð jólin að koma. Þá yngist ég alltaf upp og líkist krökkunum. Mér finnst svo ánægjulegt að heyra fólkið óska ‘hvert öðru gleðilegra jóla og ég veit að þá vilja allir vera svo góðir hver við ann- an. En ósköp þykir mér leið- inlegt þegar fólkið er að segja gleðilega rest. Ég vil bara að það segi gleðileg jól, eða gleði- leg hátið. Ég óska ykkur svo öllum gleSilegra jóla. . öldungur.

x

Bæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1341

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.