Bæjarblaðið - 29.07.1958, Blaðsíða 2
2
BÆJARBLAÐIÐ
Þri&judagur 29. júlí 1958
*---------------------------------------------•,
BÆJARBLAÐIÐ
Ritnefnd:
Ragnar Jóhannesson, Valgar&ur Kristjánsson,
Karl Helgason og Þorvaldur Þorvaldsson
AfgreiÖslan er í
Bókaverzlun Andrésar Níelssonar h.f.
Sími 8 5
PrentaS í Prentverki Akraness h.f.
______________________________________________________________—f
Afmælisfréttir útvarpsins
— AKRANESSUND
Framhald af 1. síðu.
Eyjólfur var glaður og reif-
ur, og kvaðst ekki vera þreytt-
ur og hefði aldrei fundið til
kulda á leiðinini.
— Það er sérhæfileiki minn,
hve vel ég þoli kulda, sagði
hann, — að öðru gerði hann
ekki mikið úr afreki sínu, því
að maðurinn virðist mjög yfir-
lætislaus.
Auðséð er annars á Eyjólfi,
að hann er mesti þrekskrokkur,
enda vegur hann um 105 kg.
og er ákaflega bolmikill, og
maðurinn allur vasklegur og
þreklegur.
Oft rekum við, fréttaritarar
Ríkisútvarpsins, okkur á það,
að almenningi eru ekki ljósar
reglur þær, er afmælisfréttir í
útvarpinu fara eftir, enda er
það ekki von.
Býsna margir halda t. d. að
þeir þurfi að borga fyrir, ef
afmælisfrétt birtist í útvarps-
fréttum að þeirra tilhlutan. —
Þetta er misskilningur. Afmæl-
isfréttir þær, sem á annað borð
eru fluttar í útvarpsfréttum,
eru fluttar endurgjaldslaust.
Hins vegar gilda allstrangar
reglur um hva&a afmælis-
fregnir skuli fluttar í frétta-
tíma. Gott er, að reglur þessar
séu kunnar almenningi, svo að
fólk haldi ekki, að það sé undir
duttlungum fréttaritara komið,
hvaða afmæla sé getið og
hverra ekki.
Skal því prentaður hér sá
kafli reglugerðar um útvarps-
rekstur ríkisins, sem máli
skiptir hér.
VI. KAFLI
Afmæli. Dánardœgur o. fi.
25- gr.
Afmælisfregnir þær, sem
Ríkisútvarpið flytur, skulu
vera svo fáorðar sem fært þyk-
ir, og skulu aðeins rakin helztu
störf og afrek, eftir þvi sem
ástæða þykir til.
I dánarfregnum má greina
frá uppnma manna og styðjast
að öðru leyti við staðreyndir
um helztu æviatriði og unnin
störf, en forðast, eftir því sem
fært þykir, dóma um menn,
vinsældir þeirra og annað.
26. gr.
Fréttastofan skal geta af-
mælis, dánardægurs eða útfar-
ar manns, er ríkisstjórn eða
Alþingi minnist hans með því
að draga upp fána.
3. Er eða hefur verið lands-
kunnur forystumaður í fé-
lagsmálum þeim, er taka til
almennings, svo sem í
íþróttum, slysavörnum,
uppeldismálum, bindindis-
málum eða öðrum siðbótar-
og menningarmálum.
4. Er landskunnur rithöfund-
ur, skáld, tónsnillingur eða
listamaður í öðrum grein-
uím.
5. Er héraðskunnur afreks-
maður í íþróttum, fjall-
göngum eða öðrum ferða-
lögum, hefur vakið á sér
sérstaka eftirtekt með björg-
unarafrekum eða öðru því,
er vakið hefur almenna at-
hygli eða aðdáun.
6. Er héraðskunnur frömuður
í ræktun og búnaði, sjávar-
útvegi, iðnaði, verzlun,
handverki eða öðrum al-
mennum atvinnugreinum.
7. Er héraðskunnur fræði-
maðm- eða sagnaþulur, ætt-
fræðingur eða vísindamað-
ur í hvers konar grein sem
er.
8. Ef hann hefur náð sjötugs-
aldri, og er þá heimilt að
geta afmælis hans að við-
bættum hverjum hálfum
tug ára.
28. gr.
Heimilt er að geta starfsaf-
mælis, ef maður hefir haft á
hendi sama starf í_ 20 ár, og
síðan að viðbættum hverjum
hálfum tug ára.
Geta má hjúskaparafmælis,
ef hjónaband hefur staðið í 50
ár, og síðan að viðbættum
hverjum heilum tug ára.
Heimilt er að geta afmælis
félags eða stofnunar, er það
hefur náð 10 ára aldri, og síðan
að viðbættum hverjum hálfum
tug ára.
„Eins og prófessor ■—“
Tíðindamaðurinn spurði
Eyjólf, hvort slíkt sund sem
þetta væri ekki geysileg and-
leg þrekraun, auk þeirrar
líkamlegu, hvort honum fynd-
ist ekki tíminn ægilega lengi
að líða á svo löngu sundi.
— Nei, alls ekki, svaraði
Eyjólfur, ég geri mér far um
að hugsa sem allra minnst um
sundið og vegalengdina. Ég
reyni að hugsa um eitthvað
annað. Ég sökkvi mér tímun-
mn saman niður i hugleiðingar
um ýmiss konar efni. Ég er
eins og prófessor á sundinu,
segir hann og brosir við. —
Svo breyti ég til með því að
rabba við þá, sem fylgja mér
á bátum.
Akurnesingar hei&ra sund-
garpinn.
Þegar Eyjólfur steig á skip
daginn eftir, ávarpaði bæjar-
stjóri hann og þakkaði honum
þann heiður, sem hann hefði
sýnt Akranesbæ með því að
synda þetta mikla sund hing-
að. Afhenti honum siðan fimm
þúsund krönur í viðurkenning-
arskyni.
Var þessi gjöf mjög viðeig-
andi hjá bæjarstjórn, og er
áreiðanlegt, að einhvem tíma
hefur fjárveitingum bæjarins
til íþróttamála verið ver varið
en í þetta skipti.
Yfirleitt hlaut Eyjólfur mjög
hlýjar viðtökur eins og verðugt
var. Sjálfur virtist hann vera
forviða á því, sagðist t. d. hafa
furðað sig á, hversu margir
biðu hans, þegar hann steig á
land.
Það er áreiðanlegt, að Akra-
nessund Eyjólfs Jónssonar verð
-ur lengi í minnum haft.
Nr. 8/1958.
TILKYNNING
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á brenndu og möluðu kaffi frá innlend-
um kaffibrennslum.
I heildsölu Kr. 37.90
1 smásölu — 43-6o
Reykjavík, 16. júní 1958
Verðlagsstjórinn.
— - , - .
TILKYNNING
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á brauðum í smásölu::
Franskbrauð, 500 gr................... Kr. 3.90
Heilhveitibrauð, 500 gr............. . — 3.90
Vínarbrauð, pr. stk..................... — 1.05
Kringlur, pr. kg........................ — ii-5o
Tvíbökur, pr. kg........................ — 17.20
Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr............... — 5-30
Normalbrauð, 1250 gr................... — 5.30
Séu nefnd brauð bökuð með annari þyngd en að
ofan greinir skulu1 þau verðlögð í hlutfalli við ofan-
greint verð.
A þeim stöðum, sem brauðgerðir eru e'kki starfandi,
má bæta sannanlegum flutningskostnaði við hámarks-
verðið.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið á
rúgbrauðum og normalbrauðum vera kr. 0.20 hærra
en að framan greinir.
Reykjavik, 23. júní 1958.
Verðiagsstjórinn.
Nr. 10/1958.
TÍLKYNNINC
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið nýtt há-
marksverð á blautsápu sem hér segir:
Heildsöluverð með söluskatt.......... Kr. 10.20
Smásöluverð .......................... — 12.80
Reykjavík, 2. júlí 1958.
Verðlagsstjórinn.
27. gr.
Geta má í fréttinn Ríkisút-
varpsims afmælis manns, ef
hanm hefur náð iimmtugsaldri,
og síðan að viðbættum hverj-
um heilum tug ára, ef hann
fullmægir eftirgreindum skil-
yrðum:
1. Gegnir eða hefur gegnt
æðstu virðingarstöðum á
Alþingi eða í ríkisstjórn,
verið embættismaður ríkis-
ins, bæjarfélags eða sýslu-
félags.
2. Er eða hefur verið viður-
kenndur forystumaður í
landsmálum.
29- gi'-
Geta má dánardægurs og út-
farar manns:
1. Ef hann hefu:r fullnægt
skilyrðum 27. greinar, 1.—
7. tölulið.
2. Ef hann hefur orðið sjö-
tugur eða eldri, þótt fyrr-
greind skilyrði séu ekki
fyrir hendi.
30. gr.
Heimilt er fréttastofunni, ef
sérstök ástæða þykir til, að geta
afmælis eða dánardægurs, þó
á bresti um skilyrði þau, sem
greinir í 27.—29. grein.
— BÆRINN FRÍKKAR
Framhald af 1. síðu.
an svip á bæinn.Er það stór-
hýsi þeirra Einars Helgasonar
og Þorgeirs Jósefssonar við
Skuldartorg. Að lögun er húsið
ekki sérstaklega snoturt, en eft-
ir að það var málað, gerbreytti
það um svip, enda eru lifcir
fallegir og smekklega valdir.
Hafa eigendumir vafalaust
gert sér ljóst, að húsið stendur
á þeim stað, að mikið veltur á,
að það sé smekklegt útlits, og
það hefir tekizt.
Nr. 11/1958.
TILKYNNING
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á unnum kjötvörum:
Heildsala Smásala '
Miðdagspylsur, pr. kg.Kr. 22.90 Kr. 27.50
Vínarpylsur og bjúgu, pr. kg. — 25.00 — 30.00
Kjötfars, pr. kg. .... — 15-8o — 19.00
Söluskattur og útflutningssjóðsgjald er innifalið í
verðinu.
Reykjavík, 2. júlí 1958.
Verðlagsstjórinn.