Pillur - 15.01.1924, Qupperneq 1
LANQS&OKASAfN
Jíi 131964
. ' .!> . Jj ■ •>
. -
O
0
□
PILLUR
I. árg.
ísafiröi, í jan. 1923.
I. tbl.
Halló!
Þaö er ven.ja flestra blaða, }já er þau
leggja af stað út í lífið, að ávarpa lesend-
ur sina með nokkrum vel völdum orðum,
og dyrfumst vér eigi aö bregða út afþeirri
venju.
Mun það fyrst liggja fyrir, að lýsa til-
gangi blaðsins, og er það fljótgert, því tíl-
gangur þessa blaðs er als enginn
Hinsvegar munum vér reyna að þægjast
háttvirtum lesendum með ýrtisu móti.
Fyrst og fremst með því að reyna að
mannsliemma og níða sem flesta af sam-
borgurum vorum, og munum vér sérstak-
lega gera oss far um að vera eigi of vand-
ir að meðölum í þeirri grein.
1 öðru lagi er það einlægur ásetningur
vor, að bera út sem' allra mest af þvætt-
ingi, sönnum og ósönnum, og hafa ýmsir
mætir menn og k o n ur lofað oss aðstoð
sinni við það.
í ti'iðja lagi munum vér ganga að þessu
starfi með hinni mestu alvöru og festu og
forðast að gera oss hlægilega við þetta
göfuga starf.
Er þess síst vanþörf nú á trmum, þegar
blöðin eru svo úr garði ger, að fæstir taka
þau alvarlega.
Annars þykjumst vér mega vænta að-
stoðar allra góðá manna við þetta, og sjá-
um líka á öllum sólarmerkjum að sú von
muni ekki bregðast.
Blað þetta mun koma út þá er menn síst
ætla, og eins óreglulega og unt er.
En útkomu sína mun þaö til-
kynna í hvert skipti meS ópum
og óhljóöum á götum oggatna-
mótum.
„Konrad Holmboe.u
Svo heitir norskt rannsóknarskip, sem að
hlektist á norður í íshafi og dregið var
hingað til ísafj. — Var það dæmt ósjófært
hér og lagt upp i fjöruna.
Skip þetta var selt hér nýlega — é upp-
boði, að því er Finnur segir — og var mik-
ið kapplilaup um að ná í hnossið, sem von-
legt er þegar um jafngóðan grip er að ræða,
eins og sundurmarinn og samanlagðan skips-
fleka.
f>ótti flestum þetta mjög hæfilegt skip
handa ísl. til færaveiða og sist ónýtara en
mörg önnur slik skip sem fyrir eru. Þó