Skagablaðið


Skagablaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 1

Skagablaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 1
27. TBL. 3. ARG. MIÐVIKUDAGUR 9. JULI 1986 VERÐ KR: 40,- Hömwlegt ástand í húsnæðismálum heilsugæslustöðvar okkar Akumesinga: Reykhólar, Búðardalur og Súðavík með stærri heilsugæslu en Akranes Það er staðreynd, þótt sorglegt sé, að staðir á borð við Grundarfjörð, Búðardal, Reykhóla, Flateyri og Súðavík svo fáeinir séu nefndir, búa yfír stærri húsakosti fyrir starfsemi heilsugæslu- stöðva sinna en Akranes. Þrátt fyrr stórglæsilegt sjúkrahús hér á Skaga og afburðafært starfsfólk verður heilsugæslustöðin að láta sér nægja að kúldrast í 80 fermertra húsnæði. Ollum ber saman um að kvæmdir við grunn væntanlegrar núverandi ástand sé engan hátt viðunandi en samt hafa málefni nýrrar heilsugæslustöðvar verið í lamasessi allt frá árinu 1983 er hálfri þriðju milljón króna var varið til þess að hefja fram- stöðvar. Nú, þremur árum síðar, situr allt við það sama. Heilsu- gæslustöðin, sem ætlunin er að verði rúmgott og vel búið hús- næði, er lítið annaðen teikningin ein. í riti, sem Ingibjörg Magnús- dóttir vann fyrir Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og kom út í fyrra kemur glögglega fram að Akranes er langt á eftir sambærilegum bæjarfélögum hvað snertir húsnæði fyrir heilsu- gæslu. Staðir á borð við Vest- mannaeyjar, Garðabæ, Keflavík og Seltjarnarnes sem við miðum gjarnan við hafa allir yfir að ráða margfalt stærri heilsugæslustöðv- um en Akranes. í Garðabæ er heilsugæslustöðin 240 m2, í Eyj- um 400 m2, í Keflavík 600 m2 og á Seltjarnarnesi 1000 m2. Sú minnsta þessara er sem sagt þrisvar sinnum stærri en stöðin hér á Akranesi. Ingibjörg Pálmadóttir, forseti bæj arstjórnar, sagði að þess dag- ana væri verið að vinna að fjár- veitingabeiðni til Alþingis fyrir næsta ár og væri farið fram á hálfa tuttugustu milljón króna til framkvæmda við væntanlega heilsugæslustöð. Samkvæmt skýrslu Heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytis- ins eru stöðugildi við heilsu- gæslustöðina á Akranesi 5,8. Stöðugildi í Borgarnesi eru 5,75. Þar er heilsugæslustöðin hins vegar 980 fermetrar. Fjöldi íbúa í umdæmi Borgarness er skv. skýrslunni 3.619 en hér á Akra- nesi 5.886. Var einhver að tala um mismunandi aðstöðu? I'ærður til yhrheyrslu. < leikur á að hann örlvaður undir stýri. Báði arnir í hildarleiknum skem ust nokkuö. Haraldarbúð rifin Sögufrægt hús hér á Skaga, Haraldarbúð, var rifið á mánudag og er nú lítið annað en grunnurinn eftir. Haraldarbúð, sem rekin var af HB & CO, var á sínum tíma ein af stærstu verslunum bæjarins er hún hóf rekstur 1933. Upphaflega var húsið einlyft og notað undir nýlenduvöruverslun en síðar var byggð við það tveggja hæða álma. Var vörugeymslan á neðri hæðinni en skrifstofuhúsnæðið á þeirri efri. Hugmyndin er að þar sem Haraldarbúð stóð rísi húsnæði sem hentar þörfum nútímans betur. Myndirnar hér á síðunni sýna hvernig húsið leit út áður en hróflað var við því (stóra myndin) en hinar hvernig það varð smám saman undan að láta. l li-sUiui er kunnugt um hinar iiru framfarir sem orðið liafa í beitt til þess að kalla fram hagstæðar breytingar á erfða- venjum plantnanna. fiý Einhver hugtnyndarík ur hér á Skaga sló sennilega öil met í kynbótatilraunum ámatjurtum pm helgina er hann reif upp velflest kaitollugrös í blómleg- urn gttrði (þó ekki hans etgin, enda eflaust verið tunglsjúkur eins og fleiri þessa hclgina) og setti njólastöngla i staö gtas- Eigandi garðsins, sem varð fyrir barðinu a þessari óvæntu tilraunastarfsemi, beinir þeim tilmælum til viðkomandi að hann fái sct sjálfur garðholu og geri tilraunir sínar þar eða kynni sér betur hvernig menn bera síg að. Þetta er ekki rétta KÍIRÐ3 lagið í bana- stuði í Hótelinu Sjá bls. 6-7

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.