Skagablaðið


Skagablaðið - 10.08.1984, Blaðsíða 1

Skagablaðið - 10.08.1984, Blaðsíða 1
1. TBL. 1. ÁRG. FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1984 VERÐ KR. 25,- Tollver&irnir komust í feitt — Tóku 542 flöskur áfengis og 67 kassa af bjór er flutningaskipið Svanur kom til hafnar á Akranesi Tollgæslan komst heldur bctur í feitt þegar vöruflutningaskipið Svanur frá Grundarfirði lagðist að bryggju í Akraneshöfn um kl. 18 á mánudag. Skipverjum hefur vafalítið brugðið í brún við kom- una til hafnar því eigi færri en 4 tollverðir, þar af 3 úr höfuðborg- inni, biðu þess að komast um borð til að leita að tollvarningi. Þeir höfðu erindi sem erfiði því eftir leitina stóðu þeir uppi með eitthvert mesta smygl sem sögur fara af á Akranesi í langan tíma. íslandS' meistarar Akurnesingar urðu í gærkvöldi Islandsmeistarar „öldunga“ í knattspyrnu er þeir unnu Víking, 1:0, eftir hörkuleik í Kaplakirka í Hafnarfirði. Það var ekki fyrr en 10 mín. fyrir leikslok, að sigur- markið var skorað og var Matt- hías Hallgrímsson þar á ferð. Til hamingju strákar! Alls fundust 542 áfengisflöskur, 67 kassar af bjór og 42 vindlinga- lengjur. Sú saga gekk hér í bænum, að tollstjóraembættinu í Reykjavík hefðu borist njósnir af innkaup- um skipverja í Svíþjóð og því setið fyrir þeim við komuna til Akraness. Fulltrúi tollgæslu- stjóra vildi ekki staðfesta þetta í samtali við Skagablaðið en sagði það hins vegar gerast alloft, að þeir fengju fregnir af því ef eftir því væri tekið erlendis að óvenju mikill varningur væri fluttur um borð í skip. Aðrar heimildir blaðsins herma, að þetta sé mjög algengt, a.m.k. í höfnun V-Evr- ópu. Svanur hafði komið við í Frakk- landi og V-Þýskalandi áður en skipið hafði viðdvöl í Svíþjóð, þar sem meginhluti smyglsins mun hafa verið keyptur. Sam- kvæmt heimildum Skagablaðsins hefur meirihluti áhafnarinnar ját- að á sig hlutdeild í smyglinu. Fyrstu íslandsmeistarar sumarsins hjá ÍA og vonandi ekki þeir síðustu. A myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Hörður Jóhannesson, liðsstjóri, EyjólfurHarðarson, MatthíasHallgrímsson, Leó Jóhannes- son, Þröstur Stefánsson, Einar Jónsson, Björn Lárusson, Sigurvin Sveinsson, Jón Gunnlaugsson og Sigurjón Skúlason. í fremri röð frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Rúnar Hjálmarsson, Davíð Kristjáns- son, Andrés Ólafsson og Gunnlaugur Þórðarson. Á litlu myndinni hampar Þröstur Stefánsson, fyrirliði, bikarnum. Að baki honum er formaður KSÍ, Ellert Schram. L A MJ 5 ÍJ w n A b A - 'i 387002 Hluti smyglgóssins, sem fannst við leitina í Svaninum. „Þá hætti ég aðhlæja og fékk í magann“ — Skagablaðið ræðir við Hörð Helgason Óðum styttist nú í að keppni í 1. deild íslands- mótsins hefjist af fullum krafti á ný. Skagablaðið heimsótti Hörð Helgason, þjálfara íslands- og bikar- meistara Akraness, og rabb- aði við hann um velgengni liðsins í sumar og í fyrra. Flettið upp á viðtalinu við Hörð á bls. 6-7 og kynnist þessum hógværa þjálfara nánar. Sjónvarps- dagskráin fastur liður í blaðinu — sjá bls. 5 Hræringur, þáttur með ýmis konar afþreyingu — sjá bls. 2 /i

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.