Skagablaðið - 10.08.1984, Blaðsíða 7
„Strákar, ég var búinn að segja ykkur að gera þetta ekki svona.
Hörður í hita bikarleiksins gegn Prótti.
sagði það reyndar í upphafi
móts, og miðaði þá út frá
mótinu í fyrra, að það þyrfti 34
stig til þess að vinna deildina.
Ég er þeirrar skoðunar nú, að
36 stig ættu að vera nóg.“
— Hvernig leggjast Evrópu-
leikirnir við Beveren í þig?
„Bara vel. Við sýndum það
í fyrra, að á góðum degi er
Akranesliðið til alls líklegt. Ég
hef allt eins trú á að okkur
takist hið óvænta að þessu
sinni. Það verður þó ekki nema
með samstilltu átaki allra
þeirra, sem í liðinu eru og að
því standa. Við erum með topp-
leikmenn og sterka heild. Að
baki því stendur gott knatt-
spyrnuráð og bestu áhorfendur
landsins og þó víðar væri leitað.
Ekki má heldur gleyma eigin-
konum leikmanna og fjölskyld-
um þeirra.“
„Rútína“
— Ertu hjátrúarfullur í
tengslum við knattspyrnuna?
„Ég veit ekki hvort ég á að
kalla þetta hjátrú, en ég fylgi
ákveðinni „rútínu“ fyrir
hvern leik. Er alltaf í sama
gallanum og sömu skónum þótt
þeir séu reyndar orðnir göt-
óttir. Margir leikmanna halda
fast í sínar venjur, Sveinbjörn
þarf t.d. alltaf að fara síðastur
út úr búningsklefanum. Margir,
flestir reyndar, hafa sína
ákveðnu fatasnaga jafnt hér
heima sem annars staðar.“
— Finnst þér eitthvað eitt
vera erfiðara en annað í þjálf-
arastöðunni?
„Ætli það erfiðasta sé ekki
þegar maður þarf að taka
mann, sem verið hefur fasta-
maður um langt skeið, úr lið-
inu. Maður veit að það er
erfitt fyrir leikmann, sem ver-
ið hefur fastamaður, að setj-
ast á varamannabekkinn."
— Heldurðu þig við þá reglu,
að breyta ekki sigurliði?
„Nei, alls ekki. Ég breyti
liðinu ef mér þykir ástæða til,
án tillits til þess hvort síðasti
leikur hefur unnist eða tap-
ast.“
— Hvað eru minnisstæðustu
leikirnir þínir sem þjálfari með
Akranesliðinu?
„Fyrir mig sem þjálfara eru
það tveir leikir, öllu heldur
tveir hálfleikir. Fyrst hálfleik-
urinn í framlengingunni í úr-
slitaleiknum gegn Vestmanna-
eyjum og síðan hálfleikurinn í
leiknum gegn Aberdeen í Skot-
landi. Stemmningin hjá strák-
unum var slík í báðum tilvikum
að ég hef ekki upplifað annað
eins. Ég var sannfærður um
það í báðum tilvikum, að þessir
leikir myndu ekki tapast.“
— Hvað finnst þér um þá
skoðun sumra, að það sé miklu
auðveldara að vera þjálfari hjá
góðu liði en lélegu?
„Ég er alveg sammála því,
að það hlýtur að vera erfiðara
að vera með lið, sem á í basli.
En mér hefur nú fundist þctta
nógu skrambi erfitt samt,“ segir
Hörður og hlær. „Kannski er ég
bara svona viðkvæmur.“
— Þú hlýtur þó að vera
meira en ánœgður með stöð-
una ídag?
„Jú, auðvitað er ég það.
Þótt hér á Akranesi sé flest
geysilega gott í sambandi við
knattspyrnuna vil ég benda á,
að nauðsynlegt er að lagfæra
tvö veigamikil atriði er lúta
að henni og það fyrr en síðar.
Það fyrsta er að laga æfinga-
aðstöðuna, sem er í hrópandi
ósamræmi við þann mikla
áhuga sem hér er og þann
árangur, sem náðst hefur. Ann-
að er að finna þeim strákum,
sem gengnir eru upp úr 2. flokki
og komast ekki í meistara-
flokksliðið, einhver verkefni.
Þetta finnst mér vera það brýn-
asta.“
—SSv.
Seljum allar gerðir bíla, ýmsir
möguleikar á kjörum og skiptum
Lítið við og kannið möguleikana
Bílasalan Bílás,
Þjóðbraut 1, sími 2622
Auglýsið f Skagablaðinu
% é
Verslið ódýrt
Matarbúð Sláturfélags
Suðurlands, Akranesi
Næst þegar þú kaupir bíl
þá hringirðu í síma 2000
eða kemur á Suðurgötu 62
Við tryggjum
fyrir þig
Sjóvá-umboðlð
Suðurgötu 62,
Akranesi Sími 2000
FRÁ INNHEIMTU
AKRANESKAUPSTAÐAR
Alagningu útsvars og aðstöðu-
gjalda 1984 er nú lokið. Fyrsti
gjalddagi var 1. ágúst sl.
Þeir aðilar sem ekki hafa gert
full skil á fyrirframgreiðslum
útsvars og aðstöðugjalda eru
alvarlega áminntir um að gera
skil nú þegar. Lögtök vegna
þeirra eru þegar hafin.
Einnig er skorað á þá sem eiga
eftir að greiða fasteignagjöld
ársins að greiða þau nú þegar.
Innheimta Akraneskaupstaðar
Um leið og við óskum
Skagablaðinu góðs gengis viljum
við minna á okkur
Bílasala Hinriks,
á horni Vesturgötu
og Vallholts
Sími 93-2602 og 93-1143.
7