Skagablaðið - 11.03.1987, Qupperneq 8
Nýkomin furusófasett a hag-
stæðu verði.
KJORSKRA
Kjörskrá til alþingiskosninga er fram eiga að fara 25. apríl n.k. liggur frammi almenn-
ingi til sýnis á bæjarskrifstofunni mánudaga til föstudaga frá 13. mars n.k. til 9. apríl.
Kjörskrárkærur skulu hafa borist undirrituðum eigi síðar en 6. apríl n.k. Menn eru
hvattir til að kynna sér hvort nafn þeirra er á kjörskránni.
Akranesi, 10. mars1987.
Bæjarritarinn á Akranesi.
TVÖ
NYÞREP
i/r beinhörðumpeningum
Kjörbókin hefur tryggt sparifjár
eigendum hæstu ávöxtun sem
fáanieg hefur verið af óbundnu
sparifé. Og nú bætum viö enn
um betur. Þegar innstæöa hefur
legið á Kjörbókinni í 16 mánuöi
hækka vextirnir allt frá innleggs-
degi og aftur aö loknum 24
mánuðum. Vaxtaþrepin gilda
frá 1. janúar 1987.
Við minnum á aðra helstu kosti Kjörbókar-
innar:
- Háir vextir. lagðir við höfuðstól tvisvar á
ári.
- Innstæöan er algjörlega óbundin.
- Arsfjóröungslegur samanburður við
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikn-
inga tryggir hagstæðustu kjör hvað svo
sem verðbólgunni líður. Ef ávöxtun
verðtryggðu reikninganna reynist hærri
er greidd uppbót sem nemur mis-
muninum. Uppbótin leggst við vaxta-
höfuðstólinn fjórum sinnum á ári og
tvisvar sinnum við höfuðstól bókarinnar.
- Vaxtaleiðrétting við
úttekt reiknast eingöngu
af úttektarupphæðinni, þó
ekki af vöxtum síðustu
tveggja vaxtatímabila.
- Uttektir lækka aldrei vextina
á þeirri fjárhæð sem eftir stendur.
- í Landsbankanum er stöðugt haft
auga með öllum hræringum á
vaxtamarkaðnum, því að Kjör-
bókinni er ætlað að vera í fararbroddi.
Arsávöxtun á Kjörbók árið 1986 varð
20,62%, sem jafngildir verðtryggðum
reikningi með 5,51% nafnvöxtum.
Þú færð nánari upplýsingar um Kjörbókina
þína í næstu sparisjóðsdeild bankans.
Taktu næstu tvö skref í beinhöröum
peningum.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
STILLHOLTI
-AKRANESI-N
hjú fróoleg fram-
söguenndi flutt
Ráðstefna um íþrótta- og æsku-
lýðsmál verður haldin næstkom-
andi mánudag, 16. mars og hefst
kl. 19.45 í Veitingahúsinu Still-
holti. Ráðstefnan er á vegum
íþróttaráðs og Æskulýðsnefndar
Akraneskaupstaðar. Ráðstefnu-
stjóri verður Ingibjörg Pálma-
dóttir og framsögumenn verða
Hermann Sigtryggsson,
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi
Akureyri, Gísli Árni Eggertsson,
Æskulýðsfulltrúi Reykjavíkur-
borgar, og Magnús Oddsson, for-
maður Iþróttabandalags Akra-
ness.
Hermann Sigtryggsson fjallar
um uppbyggingu og rekstur
íþrótta- og æskulýðsmannvirkja á
Akureyri, uppbyggingu félag-
anna, KA og Þórs, samvinnu við
bæjarfélagið, notkun bæjartækja,
styrki til frjálsu félaganna og
fleira.
Gísli Árni Eggertssn fjallar um
uppbyggingu og rekstur íþrótta-
og æskulýðsmannvirkja. Einnig
um tómstundanefnd sem áður var
þrískipt.
Magnús Oddsson fjallar um
byggingu íþróttamannvirkja ÍA
og rekstur þeirra sem og fyrirhug-
aða vallarbyggingu.
Á ráðstefnuna er boðið
Æskulýðsnefnd og varamönnum,
Iþróttanefnd og varamönnum,
bæjarstjórn og varamönnum,
framkvæmdastjórn ÍA, skátun-
um, KFUM og K, bæjarstjóra, -rit-
ara og -tæknifræðingi. Þá verður
öllum aðildarfélögum ÍA sent
boðsbréf.
Ráðstefnan er opin fyrir þá
bæjarbúa sem áhuga hafa á þess-
um málum en þeir verða að til-
kynna þátttöku sína í íþróttahúsið
í síma 2243 eða í Arnardal í síma
2785. Þátttaka er ókeypis á ráð-
stefnuna. Á ráðstefnunni verða
teknir fyrir allir þeir þættir sem
snerta íþrótta- og æskulýðsmál á
Akranesi og ætti hún því að verða
áhugaverð.
' 'Bárariýpih annað kvöld.■ fimmtudag. frá kl. 18-01. Föstudag
„ opið frákl. 18-03. Þá sk'emmjjrdlkeldubandið ásamt:
rjnuhnhörpusnillingnuiy Sigga í Centaur.
AthlÞeifsem koma fyrirkl. 23 frá fríttmn, hinirborga rúllu-
HljötnsveitFinnsEydal. ásamtþeimHeléiiuogAlla, bregð-
urr sér suðuryfir heiðar um helgina tílþess að skemmta .
Skagamönnum í Hótelinu frá 23-03 á laugardagskvöld.'
MUNIÐ NAFNSKÍfíTEINlN! _ >
.■ HOTEL AKRANES/BARAN . "
•• • • ~ . __J______<-• " ~___"•
SH
Akraneskaupstaður
- Vinnuskólinn
Lausar stöður
Æskulýðsnefnd Akraneskaupstaðar
óskar að ráða eftirtalda starfsmenn við
Vinnuskólann. Hér er um sumarstörf að
ræða.
1 staða vinnustjóra
1 staða verkstjóra
1 staða vélamanns
Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ár.
Allar nánari upplýsingar veitir Æskulýðs-
fulltrúi, í Arnardal, sími 2785. Umsóknar-
eyðublöð fást í Arnardal og þangað skal
þeim skilað fyrir 19. mars 1987.
Æskulýðsfulltrúi.
8