Skagablaðið - 11.03.1987, Síða 10
Reynir Þorsteinsson, form. Goffklúbbsins Leynis:
„Langþreyttir
á kæmleysi
hesteigenda11
„Ég verð nú að segja hreint
út að fréttin ykkar um
skemmdir á golfvellinum af
völdum hesta í síðustu viku
vakti ekki eins mikla kátínu
hjá okkur Leynismönnum
eins og hún virtist gera hjá
ykkur,“ sagði Reynir Þor-
steinsson, formaður golf-
klúbbsins Leynis, er hann
kom að máli við blaðið.
„Staðreyndin er sú, að
atburðir sem þessir gerast
orðið á hverju ári og við erum
orðnir langþreyttir á kæru-
Ieysi hestaeigenda í nágrenni
við okkur.“
Reynir sagði, að í þetta skiptið
hefðu skemmdir ekki orðið eins
miklar og stundum áður en það
breytti ekki þeirri staðreynd, að
sífelldur ágangur hrossa væri
þeim Leynismönnum áhyggju-
efni. Oftlega væri erfitt að græða
upp sár á flötum vallarins, sem
hestar ynnu, og þess væru dæmi
að það tæki heilt sumar fyrir völl-
inn að ná sér. Flatirnar væru við-
kvæmasti hluti vallarins og mikil
vinna væri lögð í að gera þær eins
vel úr garði og kostur er. Það væri
því sárt að horfa upp á þá vinnu
eyðilagða af ferfætlingum sem
sloppið hefðu úr girðingu.“
Sagði Reynir að endingu, að
það væri rétt eins og hestaeigend-
ur gerðu sér ekki grein fyrir þeirri
staðreynd, að þeir væru ábyrgir
fyrir skemmdum sem hross þeirra
yllu. Komið hefði til kærumáls
vegna ágangs hrossa á Garðavelli
þeirra en hins vegar væri þetta til-
tekna atvik enn óupplýst.
Útvarpsstöð sett á stofn
innan Fjölbrautaskólans
w
Eins og við skýrum frá hér á baksíðunni er fyrirhuguð Hátíð rís-
andi sólar á vegum nemenda Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þá var
minnst á að útvarpsstöð, Fjölrás mun hún heita, yrði starfandi á
meðan á hátíðinni stæði.
Við höfum frétt að sent verði út á FM bylgju 104. Sent verður út
í dag til kl. 24, á morgun frá kl. 10 til 15 og aftur frá kl. 19 til 24 og á
föstudaginn frá kl. 10 til 15.
EinSTAKIega gaman
Það var feikilegt fjör á árshátíð starfsmanna Akraneskaupstaðar
á laugardagskvöld. Eitt besta atriði kvöldsins var hljómsveitin
„Mundi og moðkálfarnir" þar sem fyrrum meðlimur Beatnicks,
sjálfur bæjarstjóri, fór á kostum. Hann er á neðri myndinni en
bæjarritarinn á þeirri efri.
Fjör í Fjöfbraut:
la Rio“
Hátíð rísandi sólar hófst ■
morgun með pompi og pragt
innan veggja Fjölbrautaskól-
ans eins og við skýrðum frá að
stæði til í síðustu viku. Dagur-
inn var notaður til fyrirlestra-
halds og áttu nemendur von á
fjórum góðum gestum, þar af
einunt frá Ghana með fyrirlest-
ur umland og þjóð.
Ætlunin var að nú síðdegis
færi fram heljarmikill gjörning-
ur á skólalóðinni með þátttöku
tveggja fyrirlesaranna, Gunn-
ars Kristinssonar, tónlistarsál-
fræðings, og Abou Dhor. dans-
ara og ásláttarsérfræðings, og
3-400 nemenda skólans. Von-
andi er að vel hafi tekist til.
Morgundagurinn verður að
mestu notaður tíl undirbúnings
fyrir lokahnykkinn á föstudag.
Þann dag mega bæjarbúar híns
vegar eiga von á meiri háttar
uppákomu því nemendur skól-
ans ætla sér þá að setja allt á
annan endann með heljarmik-
illi skrúðgöngu „a la Rio“.
Verður gengið fylktu liði frá
skólahum að „Sóla-hringnum“
fræga við innkeyrsluna í bæinn
og þaðan tekið beint strik niður
á Akratorg, þar sem einhver
stóruppákoma verður.
Hátíð rísandi sólar, sem
leysir hina hefðbundnu „opnu
viku“ nemendanna af hólmi
þar sem hún var orðin úr sér
gengin og höfðaði lítt til
nemenda, lýkur að Hlöðun á
föstudagskvöld, þar sem
nemendur Fjölbrautaskólans
snæða kvöldverð og skemmta
sér við ásláttarleik og fleira.
Ætla að eyða jól-
unum í háloftunum
Skátar frá Akranesi munu
heldur betur leggja land undir
fót í lok þessa árs, en þá mun 16
manna hópur fara á Jamboree
skátamót sem haldið verður í
Ástralíu. Einn þeirra sem ætlar
að leggja hálfann hnöttinn að
baki sér er Hjörtur Hróðmars-
son. Skagablaðið hitti hann að
máli nú á dögunum og spurði
hann frekar út í þessa ferð.
Hjörtur sagði okkur að hópur-
inn héðan væri sá næst stærsti
sem færi á mótið héðan frá ís-
landi, en Kópavogsbúar hafa
vinninginn en þaðan fara 17
manns. Hjörtursagði aðbrottför
héðan frá íslandi yrði á Þorláks-
messu og þá flogið til London og
þaðan á Aðfangadag, þannig að
hópurinn frá Islandi héldi jólin í
háloftunum á leið til Ástralíu.
Hjörtur sagði að mótið yrði
haldið í bæ sem heitir Cataract
og er um 60 kílómetra sunnan
við Sydney og á þeim tíma væri
meðalhitinn á þessum slóðum 38
gráður á Celsíus. Jamboree
skátamót eru haldin á fjögurra
ára fresti og síðast var mótið
haldið í Kanada og fóru þá tveir
þátttakendur frá Akranesi.
Hjörtur sagði að nú með vorinu
og í sumar ætlaði hópurinn að
vera með fjáraflanir til styrktar
ferðinni.
Ljósastikur eknar
niður í tugatali
Það er undarlegt hvað menn
geta tekið sér fyrir hendur til þess
að drepa tímann og eyðileggja
almannaeigur um leið. Gott dæmi
þessa má nú sjá á Akranes-
afleggjaranum, þar sem ljósastik-
ur í vegarkantinum hafa verið
brotnar á alllöngum kafla.
Að sögn lögreglu hafa á milli 70
og 100 stikur verið brotnar og leik-
ur enginn vafi á því að þarna hefur
verið skipulega staðið að verki.
Líklegast er talið að einhver ofsa-
kátur jeppaeigandi hafi þrætt veg-
kantinn og brotið stikurnar.
Framferði sem þetta er auðvit-
að með öllu óþolandi auk þess
sem tilgangurinn er vandséður.
Ekki aðeins kostar sitt að setja
upp nýjar stikur heldur eru þetta
mjög þörf öryggistæki, sem koma
í góðar þarfir þegar skyggja tekur.
Hafi einhver séð til þeirra eða
þess, sem þennan hvimleiða
verknað unnu, eru það tilmæli
lögreglunnar að hugsanlegir sjón-
arvottar gefi sig fram hið fyrsta.