Skagablaðið - 25.02.1988, Side 6

Skagablaðið - 25.02.1988, Side 6
• Haukur í horni heyrði af því í gær, að rétt einaferðina hefði símtól- ið af almenningssímanum við stöð Pósts og síma við Kirkjubraut verið slitið af þannig að síminn væri nú engum til gagns. Ekki minnist Hauk- ur þess hve oft þessi atburður hefur gerst á síðustu misserum en skiptin eru orðin óteljandi. Virðist vera ger- samlega útilokað að koma fólki í skilning um að síminn er öryggistæki - ekki leiktæki. Væri óskandi að þessi molbúaháttur legðist af. Staðreyndin er nefnilega sú, að jafnvel í verstu fátækrahverfum erlendis fá almenn- ingssímar að standa óáreittir af því að fólk gerir sér grein fyrir því hve mífcilvægirþeireru. • Aðeins meira um símamál almennt. Haukur í horni hjó eftir því er hann var að hlusta á dægurmála- útvarp Rásar 2 einn morguninn er verið var að fjalla um símasamband til Akraness, sem reyndar er löngu orðið frægt að endemum. Sagði þátta- gerðarmaðurinn, að merkilegt væri hversu góð símalína væri til Japan (undirritaður heyrði samtal hans og þess er var í Japan og tekur undir þetta) en bætti svo við, að fyrr um morggninn hefði maður frá Akranesi verið í'símanum hjá þeim í útsend- ingu og sambandið þangað verið hreint og beint afleitt. Kannast nokk- ur við þessa lýsingu? Ætli ekki svo. Símamál Skagamanna eru í megn- aeta ólestri, hvað sem hver segir hjá pósti og síma. Haukur í horni hefur margsinnis lent í því sjálfurásíðustu vikum, að símtöl rofna fyrirvaralaust og dæmi eru um að fjórar atrennur þurfti til þess að Ijúka einu símtali. • Enn um símamál og aftur að því öryggi sem símtæki getur veitt. Kunningi Hauks í horni sem þarf eðl- is málsins vegna að hringja nokkuð oft í Sjúkrahús Akraness hefur sagt, að gífurlegur munur sé á því hvernig svarað er í síma á Sjúkrahúsinu. Vitnaði hann til þess einn daginn, að hann hefði látið hringja mjög lengi án þess að svarð væri og loks þegartól- ið var tekið upp var aðeins sagt: „Sjúkrahús . . . augnablik . . .“ Lengra var það ekki í fyrstu atrennu. „Hvað ef maður er nú að tilkynna slys?“ spurði kunningi Hauks. Hann vildi reyndar árétta, að þetta væri ekki allaf svona en samt allt of oft. Svo virtist sem konurnar á skipti- borðinu væru starfinu ákaflega mis- vel vaxnar. Öflug starfsemi íáratug Eins og fram kemur annars staðar á síðunni er Siifurtúnglið eitthvert umfangsnesta verkið sem Listaklúbbur NFFA hefur staðið að uppsetningu á á 10 ára ferli sínum og örugglega það dýrasta svo vitnað sé beint í orð formanns klúbbsins, Rafns Guðlaugssonar. Starfsemi Listaklúbbsins hefur verið með miklum blóma allt frá því hann var stofnaður og er gaman að renna yfir þau verk sem hann hefur sett á svið. Fyrsta verkefnið voru tveir einþáttungar, Bónorðið eftir Tschekov og Nakinn maður og annar í kjólfötum eftir farsahöf- undinn Dario Fo. Leikstjóri var Jón Júlíusson. Síðan fylgdu verkin Elsku Rut 1980, Músa- gildran 1981, ísjakinn 1982, Klerkar í klípu 1983 og 1984 voru tveir einþáttungar undir stjórn Hjalta Rögnvaldssonar aftur á dagskránni. Þetta voru Nakinn maður og annar í kjól- fötum og Sköllótta söngkonan. Grænjaxlar Péturs Gunnars- sonar voru næstir í röðinni árið 1985 og m.a. sýndi Listaklúbb- ur NFFA verkið á norrænu leiklistarmóti í Finnlandi við góðar undirtektir. Kitlur Stein- unnar Jóhannesdótur voru síð- an frumsýndar 1986 og Lísa í Undralandi var svo á dagskrá í fyrra. Ftmp nWUnimria Sáraj Fæðingardagur? 24 ~Tríar!T~l,*Ml4— — Fæðingarstaður? Stykkishólm- ur. Fjölskylduhagir? Ógift, á eina dóttur, Önnu Elínu. Bifreið? Mazda 323 GLX árg. 1988. Starf? Sérhæfður fiskvinnslu- maður. Fyrri störf? Vinna í mötuneyti. Helsti veikleiki þinn? Matur. Helsti kostur þinn? Pað verða aðrir að dæma. Uppáhaldsmatur þinn? Safarík nautasteik með öllu tilheyrandi. Uppáhaldsdrykkur? Bourbon- viský. Uppáhaldstónlist? Rokk. Hvert er uppáhaldsblaðið/-tíma- ritið/-bókin? Mogginn, Skinfaxi og Mótaskrá KSÍ. Hver er uppáhaldsíþróttamaður þinn? Daley Tompson. Hvaða stjórnmálamanni hefur þú mestar mætur á? Halldóri Ásgrímssyni. Hvert er eftirlætis sjónvarpsefn- ið þitt? íþróttaefni. Hvaða efni í sjónvarpi finnst þér leiðinlegast? Á tali hjá Hemma Gunn. Uppáhaldsútvarps- og sjón- varpsmaður? Hallgrímur Thor- steinsson (Bylgjan) og Ómar Valdimarsson (Stöð 2). Uppáhaldsleikari? Sigurður Sig- urjónsson og af erlendum Róbert de Niro. Hvaða kvikmynd telurðu þá bestu sem þú hefur séð? Educat- ing Rita. Hvað gerir þú í frístundum þínum? Fer í sveitina til pabba og mömmu. Hver er fallegasti staður á íslandi sem þú hefur komið á? Hval- fjörður að vetrarlagi. Hvað metur þú mest í fari ann- arra? Heilindi. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Sýndarmennska. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta og hvers vegna? Margaret Thatcher, því mér finnst hún sýna að konur standa karlmönnum ekki að baki. Hvaða námsefni líkaði þér verst við í skóla? Stærðfræði. Ef þú ynnir tvær milljónir í happ- drætti hvernig myndurðu eyða þeim? Fara á úrslit Evrópu- keppninnar í knattspyrnu í sum- ar og geyma afganginn til þess að komast á HM á Ítalíu 1990. Hvað myndir þú vilja fá í afmæl- isgjöf? Ferð á Old Trafford. Ef þú gætir orðið ósýnileg, hvar vildurðu helst vera? Á Sellu- fundi hjá VSÍ (Vinnuveitenda- sambandi íslands). Listaklúbbur NFFA sýnir SiKurtúnglið Listaklúbbur NFFA, sem um þessar mundir fagnar 10 ára afmæli sínu, frumsýnir Silfurtúnglið eftir Halldór Kiljan Laxness á sal Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi þann 11. mars næstkomandi undir leikstjórn Stefáns Sturlu Sigurjónssonar. Leikendur í verkinu eru alls 25 talsins, auk fjögurra manna hljómsveitar, sem hefur m.a. útsett tónlistina við verkið eftir eigin höfði. Eflaust mun suma reka í rogastans því tónlistin hefur fengið mun rokkaðra yfirbragð en í fyrri uppsetningum. Jóhanna Árnadóttir hefur samið dansa. Alls taka um 50 manns þátt í upp- setningu verksins. Æfingar á verkinu hafa staðið yfir í tvo mánuði. Aðalhlutverkið, hlutverk Lóu, er í höndum Huldu Gestsdóttur sem áður hefur m.a. farið með hlutverk í Kitlum og Lísu í Undralandi í uppsetningu Listaklúbbs NFFA. Önnur stór hlutverk eru í höndum Ársæls Más Arnarsonar, sem leikur eig- anda skemmtistaðarins sem níðist á fólki, Önnu Alexandersdóttur, sem leikur ísu - heimsfræga á íslenska vísu, Gunnars Krist- mannssonar, sem leikur Óal, eig- inmann Lóu, og Þórodds Bjarna- sonar, sem leikur stórlax frá útlöndum. „Þetta er með stærstu sýningum sem við höfum sett upp og örugg- lega sú dýrasta,“ sagði Rafn Guð- laugsson, formaður Listaklúbbs NFFA. Hann sagði sviðsmyndina vera dýra og mikla vinnu hafa far- ið í að útbúa hana. Verkið krefst þess, að allt sviðið sé svart og er því búið að mála salinn svartan eða klæða með svörtum dúk. Rétt Leikendur og aðstandendur Silfurtúnglsins á æfingufyrir skömmu. er að verkið verður Listaklúbbn- Sýningar á Silfurtúnglinu verða um dýrt í uppsetningu því þegar á sal Fjölbrautaskólans og sem hefur það kostað á fjórða hundr- fyrr segir verður frumsýningin 11. uð þúsund krónur og ekki eru öll mars. Taldi Rafn að Listaklúbb- kurl enn komin til grafar. urinn þyrfti að fá a.m.k. 700 manns á verkið til þess að hann bæri ekki fjárhagslegt tjón af upp- setningu þess. Stjórn Listaklúbbs NFFA skipa nú þessir: Rafn Guðlaugsson, for- maður, Sólrún Guðjónsdóttir, gjaldkeri, María Karen Sigurðar- dóttir og Ingibjörg Huldarsdóttir. Stjómin hefur beðið Skagablaðið að koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra aðila sem veitt hafa Listaklúbbnum aðstoð af einu eða öðru tagi. 6 „ÚTVARP AKRANES“ - FM 91.00 dagana 4.-6. mars næstkomandi FOSTUDAGUR 4. MARS: 13.00: Opnunarávarp. Sturlaugur Sturlaugsson, formaður Sundfélags Akraness. 13.10-15.30 „Fisléttur föstudagurBlandaður þáttur með skemmtilegri tónlist og ýmsum þjóð- legum fróðleik. Umsjón: Jón Ólafsson. 15.30—17.30 „ /deiglunni". Spjallað við Skagamenn um eitt og annað sem er að gerast í bæjar- lífinu. Fréttatengt efni. Umsjón: Bjarni Vestmann. 17.30: Fréttir. 17.40-19.00: „Karphúsið“. Þáttur um bæjarmál, þar sem skoðanir andstæðra póla fá að koma fram. Umsjón: Sigurður Sverrisson. 19.00-21.00: „Eftirmínu höfði". Tónlistarþáttur. Umsjón: Einar Skúlason. 21.00-22.00: „Staðið ágati“. Spurningaþáttur á milli kennara Grundaskóla og Brekkubæjar- skóla. Dómari: Gunnlaugur Haraldsson. 22.00-04.00: „Næturvakt". Óskalög og kveðjur. Umsjón Sigurður Sverrisson. LAUG ARDAGUR 5. M ARS: 09.00-10.00: „Góðandaginrí1. Léttog þægileg tónlist með einhverju fróðleiksívafi og morgun- leikfimi. Umsjón: Sigurbjörg Ragnarsdóttir. Leikfimi: Jensína Valdimarsdóttir. 10.00-11.00: „ Veistþú?11. Léttar spurningar lagðar fyrir hlustendur og þeim gefinn kostur á að svara þeim með því að mæta í útsend- inguna. Skemmtileg smáverðlaun. 11.00-12.00: „InnrastarfTónlistarskólans“. Þátturum Tónlistarskólann á Akranesi og starfsemi hans. Umsjón: Lárus Sighvatsson. Fréttir kl. 11.30. 12.00-13.00: „Músikogmaturí. Matreitt fyrir hlustendur undir dillandi tónlist. Umsjón: Magnús H. Ólafsson. 13.00-14.30: „Fólkið að bakinöfnunum". Elís Þór Sig- urðsson ræðir við Gísla Gíslason, bæjar- stjóra, og Hallberu Jóhannesdóttur, konu hans. 14.30- 17.30: íþróttaþáttur. Fréttir af líðandi stundu og viðtöl við íþróttafólk á Akranesi. Umsjón Sigurður Sverrisson. 17.30- 17.40: Fréttir. 17.40-19.00: Skemmtiþáttur: Umsjón: Skagaleikflokk- urinn og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi. 19.00-20.30: Tónlistarþáttur. 20.30- 22.00: „Með sínu nefi". Tónlistarþáttur að hætti þeirra Gísla Einarssonar og Guðbjarts Hannessonar. 22.00-04.00: „Næturvakt". Kveðjur og óskalög. Umsjón: Sigurður Sverrisson. SUNNUDAGUR 6. MARS: 09:00-10.40: „Góðan daginrí1. Þægileg tónlist í morg- unsárið. Einnig morgunleikfimi í umsjón Jensínu Valdimarsdóttur. 10.40- 11.30 „Fjallið sem skiptilitum“. Umsjón: Árni Ibsen. 11.30- 11.40 Fréttir. 11.40- 14.30: „Akurnesingarerlendis“. Spjallað við Skagamenn sem búa á erlendri grundu. Umsjón: Sigurður Sverrisson. 14.30- 15.30: „ Dagskrárstjóri í eina klukkustund“. Umsjón: Helgi Daníelsson. 15.30- 15.40: Fréttir. 15.40- 16.00: „Heimreiðirí'. Stuttur lokaþáttur, þar sem litið er yfir farinn veg. Umsjón: Sigurður Sverrisson. Aðstandendur „Útvarps Akraness“\ Sundfélag Akra- ness í samvinnu við Skagablaðið. Útvarpsstjórf. Sigurður Sverrisson. Tæknimát. Ólafur Gísli Baldursson og nemar á rafiðn- aðarbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands. SUNDFELAG AKRANESS 7

x

Skagablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.