Skagablaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Skagablaðið - 14.10.1988, Qupperneq 7

Skagablaðið - 14.10.1988, Qupperneq 7
6 Skagabladið Skaaablaðið 7 • Óhætt er að segja, að atvinnu- ástandið á Akranesi sé með verra móti þessar vikurnar. Skagamenn hafa reyndar séð það svart á þess- um vettvangi áður en ekki lagt árar í bát. Haukur í horni er þeirrar skoðun- ar, að ekki þýði að leggja árar í bát þótt hjólin snúist ekki eins hratt og áður. Landsmenn eru nú allir að súþa seyðið af of mikilli þenslu síð- ustu tveggja ára og þá er ekki annað að gera en herða sultarólina aðeins. Rætt hefur verið um offjárfestingu atvinnuveganna sem skýrinqu vandans. Svo mikið er áreiðanlega víst, að fyrirtæki landsbyggðarinnar verða seint sökuð um offjárfestingu! Það er frekar að fjár hafi verið vant til nauðsynlegrar uppbyggingar og endurbóta. Eyðsla almennings er aftur á móti allt annað og alvarlegra mál. Nægir þar að líta á bílaflota landsmanna, utanlandsferðir og annað í þeim dúr. Efnahagsmálin væru vafalítið í betri skorðum ef almenningur hefði lært að fara með fé. Óðaverðbólga í meira en áratug hefur innprentað landsmönnum, að ekki sé til neins að leggja fyrir fé held- ur sé best að eyða því sem allra skjótast. Þrátt fyrir stórbætt skilyrði til Sþarnaðar og almennrar velmegun- ar er langur vegur frá því að fólk hafi lagt eyðslusemi verðbólguáranna til hliðar. Afleiðingin er nú augljós. • Talandi um atvinnumál hefur Hauki í horni fundist það skjóta skökku við, að í þeim mikla útvegs- bæ sem Akranes er skuli vinnsla sjávarafurða ekki vera fjölbreyttari en raun ber vitni. Vissulega starfa frystihúsin á sama grunni og verið hefur og hér eru einnig fyrirtæki sem sérhæfa sig í niðurlagningu hrogna og rækju. Borgnesingar, sem eiga ekki einu sinni almennilega höfn, eru duglegir að bjarga sér. Þeir kaupa afla af trillusjómönnum á Akranesi og vinna hann í neytendaumbúðir fyrir innanlandsmarkað. í burðarliðn- um þar í bæ er nú fyrirtæki sem ber nafnið Eðalfiskurogáaðveitatugum manna atvinnu. Hætt er við að slíkt fyrirtæki hefði komið sér vel á Akra- nesi. Af hverju láta Akurnesingar Borgnesinga skjóta sér ref fyrir rass æ ofan í æ í atvinnumálum? Sefur atvinnumálanefnd á verðinum? • Þar sem sá er ritað hefur Haukur í horni síðustu mánuði ernú aðflytjast búferlum verður þetta síðasti pistill- inn úr penna hans að sinni. Skaga- blaðinu eru færðar þakkir fyrir að hafa veitt honum tækifæri fyrir að tjá sig á þessum vettvangi og bæjarbú- um öllum eru færðar bestu óskir um gæfuríka framtíð. Vonandi verður atvinnuleysisdraugurinn kveðinn í kútirin sem fyrst. Körfubolti: Tveir Skaga- menn í lands- liði drengja Tveir Skagamenn eiga sæti í drengjalandsliðinu í körfuknatt- leik og eru þetta fyrstu Akurnes- ingarnir til þess að brjótast til þessara metorða innan körfukn- attleiksins. Þetta eru þeir Jón Þór Þórðarson og Jóhannes Helga- son. Strákarnir taka nú þátt í undir- búningi drengjalandsliðsins fyrir Evrópumeistaramót þessa aldurs- flokks sem fram fer næsta vor. Liðið lék fyrir skömmu æfingaleik gegn A-liði Unglingaflokks ÍBK og tapaði með 67 stiga mun! Stór hiuti skýringarinnar á tapinu ligg- ur í því að Keflvíkingarnir voru flestir 2-3 árum eldri. Æfingatafla körfubolta- mannaívetur Æfíngar í körfuboltanum eru hafnar af fullum krafti og er æfi- ngatafla körfuboltamanna, sem eingöngu æfa í gamla íþróttahús- inu við Vesturgötu, sem hér segir: Unglingaflokkur Mánudagar kl. 19.15 Þriðjudagar kl. 21.30 kl. 20.00 kl. 12.00 20.00 22.30 20.45 13.00 Fimmtudagar Laugardagar Drengjaflokkur Mánudagar kl. 18.30 -19.15 Þriðjudagar kl. 20.15 - 21.30 Fimmtudagar kl. 19.15 - 20.00 Laugardagar kl. 11.00 -13.00 Yngri tlokkur Mánudagar kl. 17.45 -18.30 Fimmtudagar kl. 18.00 -19.15 Sunnudagar kl. 12.00 -14.00 Stúlknaflokkur Mánudagar kl. 18.30 - 20.00 Þriðjudagar kl. 20.15 - 21.30 Fimmtudagar kl. 17.00 -17.45 Laugardagar kl. 10.00 -12.00 Minni-bolti Mánudagar kl. 17.45 - Fimmtudagar kl. 17.00- Sunnudagar kl. 12.00 - 18.30 17.45 13.00 Hverjum bjargar það jfi næst^* Tíu þúsund áhangendur fylgja fúlskeggjuðum leikmönnum Brann á úrslitaleik bikarkeppninnar Séð yfir nýju spilduna sem Knattspyrnufélag ÍA hefur fengið úthlutað. Fjœr má sjá eldra svæðið og aðalvöllinn. Ekkert lát á uppbyggingu aðstöðu hjá Knattspymufélagi ÍA: Bæjarráð úthlutaði IA spildunni frá Krossvíkurvita inn ao Höfða Teitur Þórðarson, þjálfari Brann, og leikmenn hans eru nú allir orðnir fúlskeggjaðir en hyggjast ekki skerða skegghár sitt fyrr en að loknum bikarúrslitaleiknum gegn Rosenborg annan sunnudag, 23. október. Skeggsöfnun hefur gefist Skagamönnum vel í bikarkeppninni og hver veit nema Teitur og féagar hans í Brann nái að koma nýbökuð- um Noregsmeisturum Rosenborg á óvart og vinna bikarinn? Skagablaðið sló á þráðinn til „Kinnbeinsbrotið var sem betur Teits í fyrrakvöld og rabbaði við fer ekki mjög slæmt og Bjarni hann um úrslitaleikinn framund- virðist á góðum batavegi. Það má an og frammistöðu liðsins í hins vegarekkimikiðútafbregða sumar. Hann var þó fyrst inntur til þess að þetta taki sig upp.“ eftir því hvort líkur væru á að Uppselt er á úrslitaleik Brann Bjarni Sigurðsson stæði í marki og Rosenborg og það þýðir að Brann þrátt fyrir kinnbeinsbrot, 28.000 manns munu fylgjast með sem hann hlaut í Ieik fyrir leiknum. Að sögn Teits reiknaði skömmu. hann með að um 10.000 Björgvin- „Já, eins og staðan er í dag, arbúar taki sér ferð á hendur til reikna ég með því að Bjarni spili Oslóar til þess að styðja við bak úrslitaleikinn,“ sagði Teitur. sinnamanna. „Félagiðhefurverið ------------------------------- í vandræðum að útvega öllum stuðningsmönunum sem vilja sjá leikinn ferðir á hann,“ sagði Teit- ur. Hann sagði bikarkeppnina í raun stærra mót í Noregi en sjálfa deildakeppnina og að bikarúrs- litaleikurinn væri hápunktur knattspyrnuvertíðarinnar sem all- ir biðu eftir. Er Teitur var spurður út í fram- mistöðu liðsins á keppnistímabil- inu sem er að Ijúka sagðist hann ekki geta verið ánægður. „Það er að vísu stórléttir að hafa haldið sæti okkar í deildinni og kannski er það út af fyrir sig afrek að sitja Teitur Þórðarson og menn hans fá erfitt verkefni um aðra helgi. Liðið tapaði bikarúrslitaleiknum ífyrra en hvað gerist nú? enn í þjálfarastólnum í ljósi svipt- inga hér á síðustu árum. Ég er þó ekki ánægður með hversu lítið kom út úr þeim mannskap sem við höfum í sumar. Við höfum leikið fína knattspyrnu en ekki tekist að skora mörk. Bæði stjórn félagsins og áhangendur, sem verið hafa 9 - 10.000 að meðaltali á heimaleikj- um okkar, hafa verið ánægðir með leik liðsins en okkur hefur sárlega vantað að skora fleiri mörk.“ - Nú er ljóst að þú verður áfram með liðið næsta sumar, ertu farinn að svipast um eftir leik- mönnum? „Eins og staðan er nú bendir allt til þess að ég verði áfram með liðið og vissulega er ég farinn að huga að nýjum leikmönnum. Jú, það eru íslenskir leikmenn inn í myndinni hjá mér, en ég upplýsi ekki á þessari stundu hverjir það eru,“ sagði Teitur og gaf ekkert út á það hvort Ólafur, bróðir hans, sem orðaður var við Brann í fyrra, væri inni í dæminu. Ekkert lát er á „landvinningum“ Knattspyrnufélags ÍA. Á fundi bæjarráðs fyrir réttri viku var samþykkt að úthluta félaginu svæðinu á milli Höfða og Krossvíkurvita til uppgræðslu og afnota. Félagið hefur nú yfir að ráða mjög stóru svæði til æfinga og eftir viðbótina býr senni- lega ekkert félag á landinu við jafn góða æfingaaðstöðu. Hefur orðið alger bylting á þessu sviði hér á Akranesi á aðeins tveimur árum. Eins og knattspyrnuunnendur bæjarstjórnar á þriðjudag, m.a. ÍA hefði fengið umrætt svæði til afnota um aldur og ævi. Ef til þess kæmi, að bærinn þyrfti á því að halda síðar meir, fyndist sér eðli- legt að félaginu yrðu greiddar bætur vegna kostnaðar sem lagt hefði verið út í við ræktunina. Guðbjartur Hannesson, Alþýðubandalagi, kvað það fyrir sitt leyti með öllu óaðgengilegt að bærinn greiddi bætur fyrir lands- væðið færi svo að taka þyrfti spild- una undir aðra notkun. Bæjaryfir- völd hlytu að hafa endanlegt ákvörðunarvald yfir þessu svæði. og fleiri bæjarbúa rekur eflaust minni til tóku stórhuga velunnar- ar knattspyrnunnar, undir forystu þeirra Gunnars Sigurðssonar og Haraldar Sturlaugssonar, til í fyrravor og ruddu stórt landsvæði innan við gamla malarvöllinn. Var svæðið þökulagt og síðan not- að til æfinga. Þessir sömu aðilar hafa nú lýst sig fúsa til vinnu við frekari „landvinninga" og byggð- ist umsókn félagsins um ofan- greint svæði m.a. á því. Nokkrar umræður urðu um þessa úthlutun bæjarráðs á fundi Atlamótið í badminton haldið nú um helgina Hið árlega Atlamót í badminton fer fram um helgina. Mótið er ætlað fyrir keppendur 21 árs og yngri og er það nýlunda því hingað til hefur mótið verið einskorðað við meistaraflokk. Keppt verður í öllum greinum; einliða-, tvíliða- og tvenndarleik. Mótið hefst í íþróttahúsinu við Vesturgötu kl. 19 í kvöld og er aðgangur ókeypis. Atlamótið er haldið til minningar um Atla Þór Helgason, sem var lengi á meðal frammámanna innan Badmintonfélags Akra- ness. með tilliti til fundargerðar skipu- lagsnefndar frá því 4. október. Þar sagði m.a.: „Rætt um nýtingu innsta hluta svæðisins á milli vit- ans og Höfða. Samþykkt að svæð- ið verði merkt sem útivistar- og almenningsíþróttasvæði en ekk- ert sé því til fyrirstöðu, að svæðið verði jafnað og útbúnir þar vellir til almenningsnota meðan önnur landnotkun liggur ekki fyrir.“ Guðjón Guðmundsson, Sjálf- stæðisflokki, var ekki par hress með „afskiptasemi" skipulags- nefndar. „Henni kemur þetta bara ekkert við,“ sagði Guðjón. Hann sagði það væri hennar að draga meginlínur í skipulagi bæjarins en það væri alfarið bæjaryfirvalda að ákveða hvernig svæðum væri úthlutað. „Mér finnst það óviðurkvæmileg afskiptasemi að hafa horn í síðu svo jákvæðs famtaks,“ sagði Guðjón og bætti því við að bæn- um hefði verið rétt stórt ræktað svæði á silfurfati. Ingvar Ingvarsson, Alþýðu- flokki, kvaðst ekki sammála ummælum Guðjóns og auðvitað kæmi það skipulagsnefnd við hvernig svæðinu væri úthlutað. Ingvar sagði ekki rétt að fjalla um málið eins og Knattspyrnufélag Breytingar í körfuknattleiknum á Akranesi í vetur: Enginn meistaraflokkur Enginn meistaraflokkur verður meiri ábersla lögð á uppbyggingu Veruleg breyting hefur orðið á starfræktur á vegum Körfuknatt- yngri flokkanna að sögn Ragnars skipan yngri flokkanna í körfukn- leiksfélags í A í vetur en þeim mun Sigurðssonar, formanns félagsins. attleik og verður leikið samkvæmt nýju fyrirkomulagi í vetur. Fjögur Evrópumöik Karls - það fyrsta skorað 1975 Karl Þórðarson er næsta örugglega markahæsti íslensku knattspyrnumað- urinn í Evrópumótunum. Hann hefur skorað 4 mörk á þeim vettvangi. Ferill Karls er orðinn langur og hann skoraði fyrsta Evrópumark sitt gegn Omonia frá Kýpur 1975. Ári síðar skor- aði hann gegn Trabzonspor, þá gegn Beveren 1984 og loks gegn Ujpesti Doza. ÍA sendir nokkra flokka til keppni í vetur opg sá elsti heitir nú Unglingaflokkur og er fyrir stráka fædda 1968 - 70. Drengjaflokkur er fyrir árgangana 1971 og 1972 og síðan tekur við Yngri flokkur. Þá er um að ræða stúlknaflokk, fyrir stúlkur fæddar 1970 og síðar og loks Minni-bolta en það eru strák- ar fæddir 1975 og síðar. Heimilt er að senda fleiri en eitt lið til keppni í hverjum flokki og er það gert til þess að gefa fleiri unglingum tæki- færi til þess að keppa. Þjálfarar hafa verið ráðnir fyrir alla þessa flokka og annast Garð- ar Jónsson Unglinga- og Drengja- flokkinn. Heimir Gunnlaugsson þjálfar stúlkurnar, Einar Á. Páls- son Yngri flokkinn og Jóhannes Helgason Minni-boltann. • • SKEMMTIKY OLD Á LAUGARDAG Húsið opnar kl. 19 fyrir matargesti. 19.30 Fordrykkur. 20.15 Þríréttuð veislumáltíð. 21.45 Oktavía sér um skemmtiatriði. Dansað íram eftir nóttu við undirleik Rósarinnar. Miðapantanir frá föstudag eftir kl. 13. Miðaverð aðeins kr. 2.750, - Veislustjóri: Sigurður Ólafsson. BALL Dansleikur í kvöld, föstudag, Rósin skemmtir frákl. 23-03 NÆSTA HELGI Næsta föstudag verða kátir piltar fr á Hafiiaríirði með dansleik. Lokað vegna einkasamkvæmis á laugardag. STROMPURINN Létt og rómantískt. Opið alla daga. HOTEL Ai KRANESS — STAÐUK I SÓKiY

x

Skagablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.