Skagablaðið


Skagablaðið - 31.01.1991, Síða 1

Skagablaðið - 31.01.1991, Síða 1
Raggasópar aðsér verð- launagripum Ragnheiður Kunóll'sdóttir, sundkonan snjalla, hefur ver- ið í miklum ham á mótum vestanhafs að undanförnu. Um helgina átti hún sinn þátt í sigri Alabamaháskólans á Auburn háskólanum en á milli þeirra hefur jafnan ríkt mikill rígur. Ragnheiður sigraði bæði í 200 jarda bringusundi og fjórsundi á góðum tímum. Þá synti Ragnheiður 100 jarda bringusundssprettinn í 4 X 100 m fjórsundi kvenna og sigraði. Kvennalið Alabamaháskóla sigraði stúlkurnar frá Aub- urn með 123 stigum gegn 120 en í karlaflokki vann Al- abama 121 : 120. Helgina áður keppti Ragn- heiður með skólaliðinu gegn Vanderbilt-háskólanum. Þar vann hún 100 jarda bringu- sund og 200 jarda fjórsund en varð síðan í 3. sæti í 100 jarda skriðsundi. Tímarnir sem Ragnheiður hefur verið að synda á að undanförnu benda til þess að hún sé í betra formi en nokkru sinni og því líkleg tii frekari afreka. Genrigras innan 3ja ára? - „Ekki frálertt,“ segja Gytfi Þórðarson og Gunnar Sigurðsson hjá Knattspynufélagi ÍA „Ef við ætlum okkur að hafa alla aðstöðu hér hjá okkur í hæsta gæðaflokki, sem við stefnum að sjálfsögðu að, er alls ekki fráleitt að ætla að gervigras verði komið í notkun hér innan tveggja til þriggja ára,“ sagði Gylfi Þórðarson, formaður Mannvirkjanefndar Knatt- spyrnufélags IA, í samtali við Skagablaðið. Umræður um gervigras hafa mars. Danskir umboðsaðilar 1 Megið niðri um nokkurra ára skeið en eru nú að komast upp á yfirborðið að nýju. Skagablaðið skýrði frá því haustið 1984 að verið væri að kanna möguleikana á lagningu gervigrass. Síðan hef- ur lítið heyrst af þeim þreifingum á opinberum vettvangi. Við höfum nú þegar fengið til- boð í lagningu á gervigrasi frá þýsku fyrirtæki, sem gildir út þessa fyrirtækis komu hingað í nóvember sl. ásamt íslenskum umboðsmanni og kynntu okkur áætlanir þeirra. Það er komin mikil reynsla á gervigras frá þessu fyrirtæki og það þykir fyrsta flokks.“ „Strax og bæjarfélagið er til- búið að taka þátt í þessu með okkur þá eru við tilbúnir," sagði Gunnar Sigurðsson, formaður knattspyrnufélags IA. „Það hafa engar viðræður farið fram á milli okkar og bæjarfélagsins enn sem komið er, því erum við enn að skoða þessi mál innan félagsins.“ Gunnar sagði ennfremur að besta staðsetningin á slíkum knattspyrnuvelli væri þar sem malarvöllurinn er nú. Skoðanakönnun á Sjúkrahúsi Akraness: Reykingar leyfðar í Iqallarahemergi Reykingar starfsmanna Sjúkrahúss Akraness verða ekki bannaðar. Reykingafólki verður hins vegar gert skylt að reykja í sérstöku herbergi. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar, sem framkvæind var á meðal starfsfólks sjúkrahússins fyrir stuttu um hvort leyfa ætti reyk- ingar eða ekki. Sigríður Lister, hjúkrunarfor- stjóri, sagði í samtali við Skagablaðið að í kjölfar niður- stöðunnar kæmi helst til greina að úthluta reykingafólki aðstöðu í kjallara hússins. Yrði þá útbúin vistleg aðstaða með góðri loft- ræstingu. Sigríður sagði tak- markið að koma þessari aðstöðu upp fyrir svokallaðan árlegan reyklausan dag, sem verður í byrjun apríl. Hvað varðaði reykingar sjúkl- inga sagði Sgiríður það ótengt mál og að það yrði að skoða sér- staklega og án samhengis við niðurstöðu könnunarinnar. Mjög harður árekshr Mjög harður árekstur varð á gatnamótum Stillholts og Kirkju- brautar/Kalmansbrautar laust fyrir hádegi á þriðjudag. Þar ráust saman bifreið, sem var að aka upp Stillholt og önnur, sem talið er að hafi farið yfir á rauðu ljósi á Kalmans- braut. Önnur bifreiðin var óökufær eftir áreksturinn og er jafnvel tal- in ónýt. Hin skemmdist minna en tjón á henni varð engu að síður talsvert. Lionessur gefa Lionessuklúbbur Akraness afhenti í gær Sjúkrahúsi Akraness að gjöf sex útvarps- og snældutæki með heyrnartækjum. Tækin voru keypt fyrir ágóða af árlegri plastpokasölu Lionessa. Tækin eru ætluð til notkunar fyrir sjúklinga, þannig að þeir geti t.d. hlustað á sögur, leikrit og fleira, sem boðið er upp á hljóðsnældum. Tækin, sem eru af Sanyo-gerð, voru valin í samráði við Blind- rafélagið, sem m.a hefur lagt áherslu á að auka framboð efnis á hljóðsnældum. Myndin hér að ofan var tekin í gær þegar gjöfin var afhent. Á henni eru Sigurður Ólafsson, forstöðumaður Sjúkrahúss Akra- ness, Ásta Björg Gísladóttir, formaður Lionessuklúbbs Akraness og þær Sigríður Árnadóttir og Margrét Guðbrandsdóttir úr líkn- arnefnd Lionessa. Bakmeiðsli Sigurðar Jónssonar úr sögunni? Er hjá sérfræðingi vegna bnóskloss Sigurður Jónsson, knatt- spyrnumaður hjá Arsenal, dvel- ur um þessar mundir hjá bak- meiðslasérfræðingi í Dússeldorf til þess að freista þess að fá sig góðan af þeim. Sérfræðingurinn hefur kveðið upp þann úrskurð að meiðsli Sigurðar, sem hann hefur átt í meira og minna í heilt ár, stafi af brjósklosi í baki. Eftir því sem Skagablaðið hefur fregnað undr- aðist hann mjög hvers vegna sér- fræðingar Arsenal komust ekki að orsökinni. Sigurður fór til Þýskalands í síðustu viku og verður þar fram yfir helgina. Sérfræðingurinn, sem m.a. meðhöndlaði Atla Eð- valdsson vegna sambærilegra meiðsla, hefðu gefið Sigurði góð- ar vonir um að hann nái sér að fullu. Sigurður Jónsson — verða meiðslin loks að baki?

x

Skagablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.