Skagablaðið


Skagablaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 2

Skagablaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 2
Skagablaðið Til sölu Commodore tölva. Selst ódýrt. Uppl. í síma 12076. Til sölu fallegur eins árs gamall tvíbreiður svefnsófi. Selst á hálfvirði. Uppl. í síma 13398. Til sölu fólksbílakerra með Ijósum og loki. Uppl. í síma 12543. Til sölu skíðaskór, stærð 39. Uppl. í síma 12306 (Viktor) eftir kl. 20. Til sölu finnskur 150 sm breiður vefstóll með rakgrind. Lítið notaður. Selst á 50 þús. Uppl. í síma 12717. Þrílit læða með hvítar hosur og blátt hálsband tapaðist frá Höfðabraut 12 sl. fimmtudag. Þeir sem geta gefið upplýs- ingar um afdrif hennar vin- samlegast hringi í síma 13190. Til sölu rimlarúm, leikgrind og barnabílstóll fyrir 0-9 mánaða. Uppl. í síma 13168. Fjögurra til fimm herbergja íbúð eða einbýlishús óskast til leigu sem fyrst. Uppl. í síma 12120 eftir kl. 18. Til sölu Hammond raf- magnsorgel í góðu ástandi. Uppl. í síma 11008. Til sölu er sporöskjulagað stækkanlegt eldhúsborð og 4 stólar. Uppl. í síma 12018. Til sölu Toyota Corolla DX árg. ’80. Uppl. í síma 11907. Til leigu 3ja - 4ra herbegja íbúð í bríbýlishúsi. Laus strax. A sama stað er til sölu gömul Rafha-eldavél. Uppl. í síma 13224. Til sölu Silver Cross barna- vagnar, annar sem svala- vagn. Seljast ódýrt. Uppl. í síma 13115. Til sölu Puch skellinaðra á númeri og í mjög góðu standi. Uppl. í síma 12690. Til sölu tvenn skíði, 130 sm, ásamt skóm, bindingum og stöfum. Uppl. í síma 12612. Til leigu 3ja herbergja íbúð. Laus strax. Uppl. í síma 11705. Til sölu skíðaskór nr. 43 - 44. Uppl. í síma 12867. Vil kaupa snjódekk, 165 X 13. Uppl. í síma 12464. Til leigu 4-5 herb. íbúð á góðum stað. Uppl. í sima 11088 eða 91 - 676809. FjáhagsáæUun Akraneskaupstaðar fyrir árið 1991 lögð fram: Rekstrarafgangur áætt adur 110 milljónir kr. t vrri umræða um fjárhagsáætlun Akranesbæjar og stofnana hans fór fram í bæjarstjórn 29. janúar og seinni umræða mun fara fram 19. febrúar. Alltaf breytast einhverjar tölur á milli umræðna en meiri lík- ur eru nú en oft áður að full samstaða bæjarfulltrúa náist um aðal- atriði fjárhagsáætlunarinnar. Jafnframt er stefnt að því, að leggja fram við seinni umræðuna 3ja ára fjárhagsáætlun, sem er nýmæli. Góð samvinna hefur náðst meðal bæjarráðsmanna um gerð þessarar áætlunar og þakka ég þeim, svo og starfmönnum bæjarskrifstofu gott samstarf. Tekjur varlega metnar Tekjuliður áætlunarinnar er varlega metinn, vegna óvissu í atvinnumálum hér á Akranesi. Sameiginlegar tekjur 498,2 millj- ónir, sem er 6% hækkun á milli ára. Rekstrarútgjöld 389milljón- ir, sem er 9.8% hækkun á milli ára. Rekstrarafgangur er áætlað- ur 110 milljónir, sem er22.1% af tekjum, sem er nokkuð gott mið- að við árferði. Rekstur bæjarfélagsins mun ekki taka miklum breytingum á milli ára, nema að rekstur nýrrar dagvistunarstofnunar við Lerki- grund tekur til starfa á árinu og starf ferðamálafulltrúa er nýtt embætti. Verulegum fjármunum verður varið til endurbóta á húsnæði í eigu bæjarins eða um 15 milljónum króna og stærsti hluti þess fer í Bíóhöllina, Bjarnalaug og Iþróttahúsið við Vesturgötu. Stærstu framkvæmdir Stærstu framkvæmdaliðir á ár- inu 1991 verða: Dagheimilið við Lerkigrund, sem verður tekið í notkun l.september, um 34,5 milljónir, Tónlistarskóli 21,2 milljónir, Hvalfjarðargöng — Spölur hf. — 7,5 milljónir, Fjöl- brautaskóli Vesturlands 44 mill- jónir alls, en þar af 9 milljónir frá Akranesbæ, Heilsugæslustöðin, sem er áætlað að taka í notkun nú í sumar, 21,1 milljón, en þar af 3,2 milljónir frá Akranesbæ. Áætlað er að í framkvæmdir við götur, holræsi, lóðakaup, tækjakaup og fleira fari 35.0 mill- jónir króna. Helstu liðir þessa flokks útgjalda eru undirbygging fyrir varanlegt slitlag Þjóðbraut- ar og nýrrar aðkeyrslu Sjúkra- húss frá Vesturgötu, frágangur Garðabrautar, hvoru tveggja stofns og botnlanga, lagfæring holræsis í Jörundarholti, frá- gangur gangstétta við Heiðar- braut og í Jörundarholti. Frágangur aðalhafnargarðs Hafnarsjóður er eins og menn vita sjálfstæður sjóður innan bæjarkerfisins og eru áætlaðar heildartekjur hans á þessu ári 43,2 milljónir. Áætlað er að ljúka við frágang á aðalhafnar- garði fyrir 29 milljónir króna. Aðrar framkvæmdir við höfnina á þessu ári verða m.a. lagfæring löndunaraðstöðu fyrir smábáta við bátabryggju og endurnýjun raflagna á hafnasvæði. V atns veitufr amkvæmdir Áætlað hefur verið að leggja fjármagn í vatnsveitufram- kvæmdir á þessu ári og verður hafist handa við að reisa miðlun- argeymi til að tryggja góðan vatnsþrýsting á Niður-Skaga. Næstu mánuðir munu skera úr um hvort sá stöðugleiki í efna- hagsmálum þjóðarinnar og lækk- un verðbólgu, sem verið hefur undanfarandi mánuði, muni haldast. Ef svo verður ekki breytist margt í þessari áætlun. Hér hefur aðeins verið stiklað á því stærsta. En fjárhagsáætlun- in fyllir 66 vélritaðar blaðsíður. Það er full ástæða til að hvetja áhugamenn um að kynna sér innihald hennar, því allir stjórn- málaflokkar í bæjarstjórn munu, ef af líkum lætur, vera með kynningu og umræður um hana á sínum fundum fram að 19. fe- brúar. Leiðrétting Ranglega var sagt í frétt í síð- ustu viku, að Svanborg Ey- þórsdóttir í Blómahorninu hefði keypt húsið að Skólabraut 22, þar sem hún er að hefja rekstur. Hið rétta er að hún leigir versl- unarhúsnæðið af öðrum aðilum, sem keyptu eignina. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Tölvupappír frá Odda. Diskettur — blekbönd. II BÓKASKEMMAN Stekkjartiolti 8 -10 — Akranesi — Sími 1 28 40 TÆKJALEIGA Nýleg og öflug tæki. Opið alla daga frá kl. 13-22. TÆKJALEIGAN AKRANESI Kirkjubraut 11 8 12950 Múrverk — Flísalagnir ARNARFELL SMIÐJUVÖLLUM 7 — SÍMI 13044 Innréttingar — Málning Gólfefni — Búsáhölc^. BYGGINGAHÚSIEL) SMIÐJUVÖLLUM 7 - AKRANESI - SÍMI 93-13044 FERDAÞJÓNUSTA VESTURLANDS Skólabraut 30 — Sími 11940 ^ Einstaklingsferðir — Hópferðir _ ^ Öll almenn farseðlasala WMW 0U inúhiiiiBuninmi Vönduð vimia. Tmfevinna - tilboð. Láriis Guðiónssou , MALARAMMSTARI SIMI 12616 cftir kl. 19 á kvöldin — Myndir þú nota Hval- fjarðargöngin verði þau að veruleika? Jón Kunólfsson: — Ég mun örugglega nota göngin. Logi Guðjónsson: — Það held ég sé alveg öruggt. Þórhildur Þorleifsdóttir: — Að sjálfsögðu, því er fljót- svarað. Sigrún Gunnarsdóttir: — Ég nota þau alveg örugglega. Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson Ljósmyndir og auglýsingar: Árni S. Árnason ■ Lausráðnir greina- og dálkahöfundar: Sigþór Eiríksson, Gunnar Ársælsson, Kristín Steinsdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir (tónlist), Stefán Lárus Pálsson (sjávarútvegs- fréttir), Kristinn Reimarsson (Noregi) ■ Dreifing: Sigurður Sigurðsson ■ Innheimta: Ellen Blumenstein ■ Áskrift og bókhald: Steinunn Ólafsdóttir ■ Setning, umbrot og prentun: Prentverk Akraness hf. ■ Útlit: Skagablaðið ■ Ritstjórn: Skólabraut 21, 2. hæð. Opin alla virka daga frá kl. 10 - 17. ■ Símar 12261 og 11397 ■ Bréfasími (Fax): 13297 ■ Póstfang: Pósthólf 170, 300 Akranes. ■ Skagablaðið er aðili að Samtökum bæjar og héraðsfréttablaða

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.