Skagablaðið - 31.01.1991, Side 8

Skagablaðið - 31.01.1991, Side 8
Spölur hf. - Mutafélag um HvaHjarðargöng stofnað á föstudaginn: n Tímamót í samgöngumálum u Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra, sagði í ræðu sem hann flutti við stofnun hlutafélags um rannsóknir, fjármögnun og framkvæmd við fyrirhuguð Hvalfjarðargöng, að mörkuð væru tíma- mót í samgöngumálum á íslandi. Hlutafélagið hlaut nafnið Spölur hf. og er hlutafé þess 70 milljónir króna. Heimild er fyrir 30 milljóna króna aukningu hlutafjár. Jafnframt stofnun hlutafélags ins var undirritaður samning- ur á milli þess og ríkisins, þar sem Spölur hf. fékk heimild til að annast rannsóknir, fjármögnun og framkvæmd verksins. Alþingi þarf að staðfesta þann samning áður en hann öðlast gildi að fullu. Á stofnfundinum kom m.a. fram, að nokkrir aðilar hafa sýnt áhuga á kaupum á hlutafé í félag- inu. Á meðal þeirra má nefna Samtök sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu, Samtök sveitar- félaga á Vesturlandi og erlenda aðila. Hluthafar hins nýja félags eru alls tíu talsins. Sementsverk- smiðja ríkisins er stærsti einstaki hluthafinn með 15,1 milij. króna stofnframlag. Grundartangahöín leggur fram 13,2 millj. kr. og ís- lenska járnblendifélagið 12,6 millj. kr. Aðrir hluthafar eru Vegagerð ríkisins með 10 milij. kr. framlag, Akraneskaupstaður með 7,5 millj., Skilmannahrepp- ur með sömu upphæð, Krafttak með 2,3 millj., Istak með 1 millj. kr., Borgarnesbær með 500 þús- und og Kjalarneshreppur með 300 þús. Gylfi Þórðarson, annar fram- kvæmdastjóra Sementsverk- smiðju ríkisins, var kjörinn for- maður stjórnar hins nýja félags. Aðrir í stjórn eru: Gísli Gísla- son, bæjarstjóri, varaformaður, Jón Hálfdanarson, bæjarfulltrúi og deildarstjóri rannsóknar- og þróunarverkefna Islenska járn- blendifélagsins, ritari og með- stjórnendur þeir Óli Jón Gunn- arsson, bæjarstjóri í Borgarnesi, og Stefán Reynir Kristinsson, fjármálastjóri íslenska járn- blendifélagsins. „Hgfjum vinnslu á rækju í fébrúaí“ - segir Ásgeir Eríksson hjá Is-Arctic „Undirbúningur fyrir vinnslu á rækju er nú að nálgast lokastig hjá okkur og við reiknum með að geta hafið framleiðsluna um miðjan febrúar." sagði Ásgeir Faþegum Akraborgar fjölgadi um 1% á síðasta ári: Vantar enn 12.5% til þess að ná fjlda metársins ’86 Farþegum Akraborgar fjölg- aði um 1% á síðasta ári borið saman við árið 1989. Þrátt fyrir þessa fjölgun er fjöldi farþega 12,5% minni en hann var metár- ið 1986. Það ár ferðuðust 274.858 farþegar með ferjunni. Að sögn Helga Ibsen, fram- kvæmdastjóra Hf. Skalla- gríms, voru farþegar Akraborgar 244.201 í fyrra. Árið 1989 voru þeir 241.947. Alls flutti Akra- borgin 70.107 bíla í fyrra en 69.599 árið áður. Fjöldi farþega og bíla dróst saman ár frá ári frá 1986 fram til Ráðherrarnir Ólafur R. Grímsson og Steingrímur J. Sigfússon skrifa undir samninginn. Eiríksson, framkvæmdastjóri ís- Arctic, í samtali við Skagablaðið. Við verðum með tvenns konar framleiðslu. Annars vegar er það niðursuða á rækju og hins vegar niðurlagning. Þá er rækjan sett í fötur í ákveðnum legi og seld þannig á neytendamarkað. Framleiðslan hjá okkur fór heldur hægar af stað á síðasta ári en gert var ráð fyrir í upphafi. Við vildum gefa okkur góðan tíma til undirbúnings, ekki flana að neinu, og hefja ekki fram- leiðsluna fyrr en allt væri til reiðu. Við hófum starfsemina með niðurlagningu hrogna í nóv- ember og desember og einnig verður unnið við hana í næsta rnánuði," sagði Ásgeir. Ásgeir sagði Is-Arctic verða með 12 - 15 manns í vinnu þegar vinnsla rækjunnar hæfist um miðjan febrúar. Aðallega væri um að ræða fólk sem hefði unnið hjá fyrirtækinu áður. Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri SR, og Gísli Gíslason, bæjar- stjóri, undirrita samninginn. ársins 1989. í fyrra varð aukning í fyrsta sinn frá 1986. Meðalfjöldi bifreiða í ferð var 24,63 í fyrra en 24,34 árið 1989. Metárið 1986 var meðalfjöldi bifreiða í ferð hins vegar 28,04. Árin 1985 og 1987 voru einnig góð í þessu tilliti. Árið 1985 var meðaltalið 27,20 og 28,01 1987. Idur í báti Talsverðar skemmdir urðu er eldur kom upp í litlum báti, Marvin AK 220, þar sem hann lá við bryggju í Akraneshöfn á föstudagsmorgun. Báturinn var mannlaus. Slökkviliðið var kallað út um kl. 10.30 og tókst að slökkva eld- inn á skömmum tíma. Að sögn lögreglu varð talsvert tjón í lúkar af völdum eldsins. Talið er að kviknað hafi í út frá kabyssu.

x

Skagablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.