Fréttablaðið - 18.07.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 18.07.2019, Síða 12
Í viðhorfskönnun sem fram­kvæmd var í fyrra kom fram að algengasta ástæða þess að fólk henti mat var að maturinn væri útrunninn, eða um 67,3 prósent. Næst­ algengasta ástæða matarsóunar er skemmdur matur eða gæði matar ónóg, eða 56,3 prósent. Of mikill matur gerður eða of stór skammtur er þriðja veigamesta ástæðan, eða 42,4 prósent. Dóra segir í samtali við Frétta­ blaðið að gott sé að hafa matar­ sóunina í huga þegar ferðalög eru í vændum. Bæði sé gott að undirbúa sig með því að borða það sem er til og jafnvel elda súpur og kássur úr því sem til er og frysta. Þá sé gott að nýta það sem er til fyrir, þegar farið er í bústað eða útilegu. Þá geti einnig skipt verulegu máli að passa skammtastærðir. „Þegar fólk fer í sumarfrí þá fer rútínan út um gluggann og þá fer að myndast öðruvísi sóun,“ segir Dóra. Hún segir að í fyrsta lagi sé mikil­ vægt að fara vel yfir ísskápinn áður en farið er í ferðalag. „Nokkrum dögum áður er gott að byrja markvisst að borða úr honum þannig að það sé ekkert skilið eftir sem skemmist. Eins er gott að tala við nágranna, ættingja og vini hvort þau séu ekki til í aukamjólkurfernu eða eitthvað slíkt sem maður tekur ekki með sér í fríið,“ segir Dóra. Hún mælir með því að nýta græn­ meti í súpur eða kássur daginn áður en farið er til útlanda og frysta svo afganginn. „Þá er maður líka búinn að vinna sér inn fyrstu dagana þegar maður kemur til baka,“ segir Dóra og hlær. Hún mælir með því að þegar farið er í sumarbústað og útilegu sé tekið með það sem er til, eins og sinnep og kokteilsósa og annað sem yfirleitt er til á f lestum heimilum og oft notað í bústaðnum. „Taka það með í bústaðinn, og heim aftur. Ekki skilja það eftir í leigubústað vegna þess að því er hent. Þegar maður kemur í bústað og finnur matvöru sem maður kannski veit ekki hversu gömul er eða hvernig var geymd þá notar maður hana ekki,“ segir Dóra. Hún segir að í útilegunni sé auð­ vitað skortur á góðu geymslu­ og kæliplássi og því sé mikilvægt að gæta að skammtastærðum. „Ekki vera með of stórar einingar og vera með plan. Það getur hrein­ lega borgað sig að áætla hversu oft þið borðið morgunmat og hádegis­ mat og svo kannski hvort eða hve­ nær það er farið út að borða. Þannig að maður sé ekki að taka of mikið með sér,“ segir Dóra. Hún segir einnig mikilvægt þegar maður er á ferðalagi að muna að kaupa vörur sem lokast vel og geymast vel. „Það er gott að vera með box með sér,“ segir Dóra. Hún segir að hún reyni að nýta það sem til er og sé ekkert endilega að kaupa ný box. Það sé vel hægt að endurnýta mikið af plast­ og glerumbúðum sem maturinn er seldur í. „Það borgar sig að kíkja á merk­ ingar á plastboxum. Þau eru merkt með hnífapörum séu þau ætluð matvælum og snjókorni ef þau mega fara í frysti, því ekki þolir allt plast frost,“ segir Dóra. Hún segir mikilvægt að hafa hug­ fast að sama hversu lítið það er, þá skipti allt sem við gerum máli. „Allt sem við gerum skiptir máli, lítið og stórt, og allt sem er gert er betra en ekkert. En það er gott að vera meðvitaður þegar maður er á ferðalagi að henda ekki öllu. Vissu­ lega er þetta oft f lóknara. Maður er á nýjum stað og veit ekki alveg hvernig hlutirnir virka. Fyrst og fremst snýst þetta um að vera ekki að kaupa of mikið, vera með plan og nota heilbrigða skynsemi. Svo er þetta líka svo gott fyrir budduna, það kostar að sóa mat,“ segir Dóra. Öðruvísi matarsóun á sér stað í sumarfríinu Dóra Svavarsdóttir mat- reiðslumeistari hefur látið sig matarsóun varða um árabil og hef- ur sem dæmi gert fjölda myndskeiða og haldið matreiðslunámskeið þar sem hún fer yfir ýmis atriði til að koma í veg fyrir matarsóun. Endingartími 2-5 dagar n Sveppir n Jarðarber n Hindber 5-7 dagar n Aspas n Spínat n Vínber n Brokkolí n Blómkál n Paprika 10-12 dagar n Gulrætur n Rófur n Rauðkál Í í ss ká p 14 + dagar n Sætar kartöflur n Kartöflur 7-10 dagar n Tómatar n Laukur 2-5 dagar n Plómur n Perur n Hvítlaukur n Lárpera n Bananar V ið st of uh ita Þegar fólk fer í sumarfrí þá fer rútínan út um gluggann og þá fer að myndast öðruvísi sóun Dóra Svavarsdóttir matreiðslu- meistari Uppeldi barna er mikil áskorun fyrir alla sem að því verkefni koma og er um margt að hugsa í því sam­hengi. Það er mikilvægt að horfa á sem flesta þætti í þeirri viðleitni að hjálpa börnum að þroskast og eldast með eðlilegum hætti og verða að fullorðn­ um einstaklingum. Við vitum mætavel að ýmsar venjur foreldranna smitast yfir á börnin, sama gildir um skoðanir og skoðanaskipti á heimili þar sem börnin hlusta. Alla jafna líta þau upp til for­ eldra sinna og taka þá upp bæði ósiði sem og góðar venjur bæði meðvitað og ómeðvitað. Eitt af því sem er mjög áhugavert að skoða eru matarvenjur barna, hver hefur ekki heyrt frasann „kláraðu nú matinn þinn svo þú verðir stór og sterk/ur“? Það er auðvitað góð og gild regla að skammta sér hóflega á diskinn og reyna að leifa ekki, hið minnsta hérlendis. Víða erlendis er það merki um að þú hafir ekki fengið magafylli ef diskurinn er tómur. Þannig er það merki um vondan gestgjafa svo dæmi sé tekið. Almennt má segja að börn hafi ekki sömu reynslu og fullorðnir og geti illa skilið á milli reynsluheima þeirra svo sem við getum. Börn fela ekki tilfinningar sínar og láta í ljós óánægju eða ánægju beint við viðkomandi líkt og þau gera ef þeim finnst matur vondur eða ólystugur. Það verður þá ærin kúnst að fá þau til að sporðrenna því sem ekki stendur áhugi til. Gildir þá einu hversu hollt og gott það er sem um ræðir. Eitt af lykilatriðum varðandi það að þróa með börnum góðar venjur er að vera fyrirmynd þeirra. Þess vegna ætti fæðuval að vera fjölbreytt og hollt, sértu í vafa eru fjölmargar leiðir til þess að átta sig á því hvað er skynsamlegt í því efni. Kurteisi og almennir borðsiðir eru hluti af þessu sama, en sérstaklega skiptir máli að gefa sér tíma og njóta matarins og samverunnar með börnunum á mat­ málstíma. Kvöldmatur þar sem fjölskyldan kemur saman er mikilvægur hluti dagsins og þá ekki síður að leyfa börnunum eða hvetja þau öllu heldur til þátttöku í matarundirbúningi og eldamennsku. Það getur verið áhugavert að leyfa börnum eftir því sem þau eldast að taka þátt í innkaupum og nota þá tækifærið til að benda á hollari úrræði, fjölbreytileika matvæla og ekki síst að þau fái ein­ hverja tilfinningu fyrir kostnaði þó það sé líklega síst mikilvægt af þessum atriðum sem ég taldi upp. Börn þróa með sér góðar venjur sé þeim leið­ beint um þær, hins vegar eru börn einnig talsvert þrjósk á stundum og ef það er of mikill þrýstingur eða spenna í kringum mat og hvað skal borða þá getur myndast talsverð togstreita á heimili sem aftur leiðir til vanlíðunar og spennu. Slíkt ástand getur ekki leitt til neins nema frekari vandræða almennt og getur verið mikilvægt að leita allra leiða til að bæta úr með aðstoð ef þurfa þykir. Munum að börn borða þegar þau eru svöng, við þurfum að stýra að einhverju leyti millimálum svo það sé til staðar áhugi á mat á matmálstíma. Magn skiptir máli og magafylli barna segir til sín, ekki þvinga mat ofan í þau að ástæðulausu. Traust og góð samskipti og vellíðan í tengslum við mat og samveru tengda inntöku hans eru líklega lykil­ atriði og hindra matarsóun. Matarvenjur barna og sóun Eitt af lykil­ atriðum varðandi það að þróa með börnum góðar venjur er að vera fyrirmynd þeirra. Teitur Guðmundsson læknir TILVERAN 1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 1 -4 F E 0 2 3 7 1 -4 E A 4 2 3 7 1 -4 D 6 8 2 3 7 1 -4 C 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.