Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.07.2019, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 18.07.2019, Qupperneq 14
Hvernig má nýta það sem til er í eldhúsinu? TILVERAN Naglasúpa Súpur eru saðsam ur og ódýr matur sem upplag t er að matreiða þegar tekið er til í ísskápnum. Steiktu það grænm eti sem til er í íssk ápn- um í potti, til dæm is lauk, sellerí, pap riku og hvítlauk. Bættu sv o við vatni og græ nmetis- eða kjötkrafti, hö kkuðum tómötum , pasta, baunum eða hver ju því sem leynist í skáp- unum. Láttu malla í pottinum og úr v erður dýrindis súpa. Ein nig er upplagt að b æta við afgangi af kjöt i eða kjúklingi, rjó ma- slettu eða hverju því sem ísskápur- inn hefur upp á að bjóða. Hreinsimaski:Hrærðu eitt egg út í matskeið af hreinni jógúrt og örlitlu af mjólk. Berðu á andlit og háls og láttu standa í tíu til tuttugu mínútur. Hreinsaðu af með köldu vatni. Anditsmaskar Auðvelt er að útbú a ýmiss konar andlitsmaska úr m atvælum. Hvort sem um er a ð ræða raka- maska, hreinsima ska eða skrúbb. Tilvalið er að nota þau mat- væli sem ekki er s éð að verði borðuð. KaffiskrúbburBlandaðu saman tveimur hlutum af kókos- eða ólífuolíu, einum hluta af kaffikorg (nýjum eða notuðum) og einum hluta af púðursykri. Berðu á andlit og líkama og skolaðu svo af undir vatni. Skrúbburinn geymist vel við stofuhita í lokuðu íláti. Mikið magn matvæla fer til spillis í eldhúsum Íslendinga og er nýting afganga stór þáttur í minni mat- arsóun. Fréttablaðið tók saman nokkrar hugmyndir um hvernig má nýta afgangsmat og það sem til er í skápunum fyrir þá sem vilja nýta meira og henda minna. Uppskrift að pitsudeigi 250 g spelt 3 tsk. vín steins lyfti duft ½ tsk. salt 2 msk. olía 130-140 ml heitt vatn Þurrefnunum er blandað saman í skál, því næst vatninu og að lokum olíunni. Hnoðið saman í deig. Þegar deigið hefur verið flatt út er bæði gómsætt að setja pitsusósu á deigið eða pensla það með hvítlauks- olíu. Auðvelt er að útbúa dýrindis pitsu- sósu með því að blanda saman í jöfnum hlutföllum tómatpúrru og tómatsósu og krydda með salti, pipar og basilíku. Því næst er um að gera að nýta ost sem til er; brauðost, kryddosta, jurtaost, rjómaost, mozzarella og svo framvegis. Á toppinn má svo raða því grænmeti, kjöti og ávöxtum sem til eru á heimilinu. Hugmyndir að áleggi geta verið skinka, pepperóní, kjúklings- afgangur, paprika, eggaldin, bananar, chili, ólífur og rauðlaukur. Pitsan er svo bökuð við 220°C í miðjum ofni í 10-15 mínútur eða þar til hún er bökuð í gegn og osturinn orðinn gullinn. Þegar pitsan er tekin úr ofninum má sáldra yfir hana olíum af ýmsu tagi og bæta við fersku salati. Ef salatið í ísskápnum er ekki splunkunýtt má skola það upp úr ísköldu vatni svo það verði stökkt að nýju. Vefjur Vefjur er bráðsniðugt að eiga til á heimilinu og í þær er auðvelt að nýta afganga. Grænmeti, kjöt, osta, hummus, sósur, súkkulaði og ávexti má nota til að reiða fram dýrindis vefju. Hefðbundin vefja er til að mynda frábær til að nýta afganga í nesti. Tillaga að dýrindis fyllingu er að smyrja vefjuna með hummus, leggja því næst það grænmeti sem til er yfir, svo sem kál, agúrku, tómata og púrrulauk. Því næst má setja ost og sósu. Salsa-sósa, ýmsar kaldar sósur og majónes passar vel með. Vefjur er einnig vel hægt að nýta til að útbúa eftirrétti úr því sem til er í eld- húsinu. Góð leið er að smyrja vefjuna með súkkulaðihnetusmjöri og leggja skorna ávexti eða ber yfir helming vefj- unnar. Gott er að nota banana, jarðarber eða bláber. Lokið svo vefjunni svo hún myndi hálfhring og hitið á pönnu við meðalhita í stutta stund á hvorri hlið. Dásamlegt er að bera fram með ís eða rjóma. 1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 1 -5 E B 0 2 3 7 1 -5 D 7 4 2 3 7 1 -5 C 3 8 2 3 7 1 -5 A F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.