Fréttablaðið - 18.07.2019, Síða 19
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Reykjavík – Stjórnmál umheims-ins eru í uppnámi. Ég lýsti því hér fyrir viku hversu komið er
fyrir tveim sögufrægum flokkum,
bandaríska Repúblikanaflokknum
sem situr nú og stendur eins og víð-
ræmdur rasisti, hálfgildingsfasisti og
hreint fífl – „stabílt séní“ kallar hann
sjálfan sig – býður mönnum sínum og
einnig fyrir brezka Íhaldsflokknum
sem bíður þess að gera sams konar
trúð að forsætisráðherra Bretlands.
Við skulum nefna hlutina réttum
nöfnum. Skófla heitir skófla eins og
kaninn segir.
Eldfjallafegurð
Stuðningsmenn beggja flokka telja
öllu óhætt. Repúblikanar segja með
réttu að Dow-Jones vísitalan hafi
aldrei verið hærri en nú og atvinnu-
leysi sé með minnsta móti. Sagan
sýnir þó að efnahagslífið getur eins
og hendi sé veifað tekið allt aðra
stefnu ef út af ber. Sama á við um
Bretland þar sem íhaldsmenn mæra
mikla atvinnu án þess að athuga að
vanbúin útganga úr ESB getur valdið
miklum usla í bráð og lengd. Menn
skyldu varast að mæra fegurð eld-
fjalla sem eru í þann veginn að gjósa.
Bæði löndin hafa fyrir vanrækslu
stjórnvalda liðið fyrir dvínandi vel-
ferð í dreifðum byggðum og grófa
misskiptingu. Hvort tveggja hefur
mulið undir misindismenn sem ala á
fordómum og úlfúð og svífast einskis.
Panama, Viðreisn og þjóðremba
Vandi stjórnmálanna er ekki bund-
inn við Bandaríkin og Bretland
og ekki heldur við hægri f lokka.
Skemmdin er víðtækari en svo. Evr-
ópskir jafnaðarflokkar eru nú margir
líkt og flokkar frjálslyndra í miklum
vanda og fylgi þeirra hefur dalað eftir
því. Á sænska þinginu voru flokkarn-
ir lengi fimm og eru nú átta. Á þýzka
þinginu voru þeir þrír og eru nú sex.
Hér heima voru þingflokkarnir lengi
fjórir – fjórflokkurinn! – og eru nú
átta. Panama-skjölin klufu Framsókn
í tvennt.
Sjálfstæðismenn kipptu sér þó ekki
upp við Panama-skjölin, depluðu
ekki auga, heldur varð ágreiningur
um ESB til að kljúfa flokkinn þegar
Evrópusinnar stofnuðu Viðreisn.
Nú láta þjóðremblar flokksins ófrið-
lega. Þeir gera ágreining um orkumál
– menn sem hafa áratugum saman
sólundað sameignum þjóðarinnar til
sjós og lands í hendur glæpamanna
sem keyrðu bankana í kaf, útvegs-
manna og erlendra orkukaupenda
á kostnað réttra eigenda, fólksins í
landinu. Fari sem horfir mun Sjálf-
stæðisflokkurinn skiptast upp í enn
smærri og meðfærilegri einingar.
Með kveðju til Tortólu
Sjálfstæðisflokkurinn hefur látið á
sjá og hefur koltapað fyrir komm-
unum í hverju málinu á eftir öðru.
Þegar varnarliðið fór úr landi 2006
reyndust sjálfstæðismenn ekki hafa
gert neinar ráðstafanir til að tryggja
varnir landsins með öðrum hætti.
Kommarnir gátu sagt: Þarna sjáið
þið, varnarrökin fyrir veru hersins í
landinu voru einber fyrirsláttur, þið
voruð bara að hugsa um hermangið.
Ég segi „kommarnir“ því þannig tala
margir sjálfstæðismennn enn um
andstæðinga sína.
Sjálfstæðismenn stjórnuðu land-
inu samfleytt frá 1991 til 2009, fyrst
með Framsókn og síðan Samfylk-
ingu. Þeir sögðust einir hafa vald á
efnahagsmálum og keyrðu landið
lóðbeint í kaf. Það kom í hlut komm-
anna og AGS að reisa landið við.
Þriðji flokkurinn
Í miðju hruni reyndu sjálfstæðis-
menn að selja Ísland í hendur Rússa
til að komast hjá neyðarhjálp frá
AGS. Bandamenn Íslands í Nató – og
kommarnir! – supu hveljur. Af þeim
sjö mönnum sem Rannsóknarnefnd
Alþingis taldi hafa sýnt af sér van-
rækslu í skilningi laga voru fjórir hátt
settir sjálfstæðismenn. Enginn þeirra
var þó látinn sæta ábyrgð, öðru nær.
Sá þeirra sem keyrði Seðlabankann í
kaf heldur áfram að láta ljós sitt skína
í Morgunblaðinu, fjármagnaður af
útvegsmönnum. Sjálfstæðismenn
hafa reitt sig á réttarkerfi sem þeir
hafa mannað að miklu leyti sjálfir,
refsileysi og fyrningu brota, eins og
t.d. þegar álitlegur hluti gjaldeyris-
forða Seðlabankans var sendur til
Tortólu 6. október 2008 og bankinn
komst í þrot.
Mokum út
Steininn tók úr þegar Sjálfstæðis-
f lokkurinn beitti sér af alef li gegn
staðfestingu nýrrar stjórnarskrár á
Alþingi 2013-2017 til að tryggja eigin
hag og útvegsmanna gegn skýrum
vilja fólksins í landinu. Til að bregða
birtu á málið skulum við skoða tölur
frá 2006 því þær voru afhjúpaðar í
skýrslu RNA (8. bindi, bls. 164) en
hefðu ella farið leynt. Það ár tóku
stjórnmálaflokkarnir við 173 mkr. á
núvirði bara frá bönkunum og fékk
Sjálfstæðisflokkurinn helming fjár-
ins. Fjárhæðin jafngilti þá 2,3 millj-
ónum Bandaríkjadala sem gerir um
2,3 milljarða dala hér heima miðað
við fólksfjölda. Sama ár, 2006, nam
heildarkostnaður vegna þingkosninga
í Bandaríkjunum 2,8 milljörðum dala.
Af þessu má ráða að fjármokstur í
stjórnmálamenn og flokka hefur verið
svipaður á Íslandi og í Bandaríkjunum
þar sem auðmenn hafa í allra augsýn
tekið völdin af almenningi.
Nauðsyn ber til að nýrri rannsókn-
arnefnd verði falið að svipta hulunni
af stuðningi útvegsmanna og annarra
við stjórnmálamenn og flokka og inn-
lögnum á Panama-reikninga stjórn-
málamanna. Fjármokstur sem brýtur
gegn velsæmi, að ekki sé meira sagt,
verður að víkja fyrir mannréttindum
og lýðræði.
NÝTT
ÍSEY SKYR
VIÐBÆTTS SYKURS
OG SÆTUEFNA!
Ísey skyr kynnir til leiks tvær nýjar bragðtegundir
án viðbætts sykurs og sætuefna. Hvort sem þú kýst suðræna ávexti eða
perur og banana er alltaf rétta augnablikið fyrir Ísey skyr.
Laktósalaust
BLÁTT
LOK
BLÁR BOTN
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
1
-8
6
3
0
2
3
7
1
-8
4
F
4
2
3
7
1
-8
3
B
8
2
3
7
1
-8
2
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K