Fréttablaðið - 18.07.2019, Qupperneq 32
Ætlum okkur að breyta nálguninni
Arnar Þór Viðarsson hefur verið í tvo og hálfan mánuð í starfi sem yfirmaður knattspyrnusviðs hjá KSí og hefur á þeim tíma mótað breytt fyrirkomulag landsliðsæfinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Arnar Þór Viðarsson er þjálfari U-21 árs landsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Arnar Þór viðraði pæl-
ingar sínar um breytta nálgun
á því hvernig utanumhald og fyrir-
komulag yrði við æfingar hjá yngri
landsliðum Íslands í útvarpsþætti
Fótbolta.net á X-inu 977 um síðustu
helgi.
Knattspyrnuáhugamenn og þá
kannski aðallega þeir sem lifa og
hrærast í knattspyrnu og starfa í
félögunum hafa rætt og skipst á
skoðunum um vangaveltur Arnars
Þórs. Fréttablaðið fékk Arnar Þór
til þess að útskýra á nánari hátt
hugmyndafræði sína og samstarfs-
manna sinna en honum gafst ráð-
rúm til þess að gera í fyrrgreindum
útvarpsþætti.
„Það sem er mikill kostur að
mínu mati við það að ég hafi verið
ráðinn í þetta starf er að ég hef
starfað í Belgíu undanfarna tvo
áratugi um það bil. Af þeim sökum
þekki ég knattspyrnuumhverfið hér
heima ekkert og þekki ekki náið þá
sem starfa innan knattspyrnu-
hreyfingarinnar á Íslandi. Af þeim
sökum kem ég með ferskan koll til
leiks og hugmyndir sem eru mögu-
lega öðruvísi en hjá þeim sem hafa
stýrt málum hér síðustu árin,“ segir
Arnar Þór í samtali við Fréttablaðið.
Erum aftarlega á merinni á
ýmsum sviðum í þjálfun
„Ég hef tekið fyrstu tvo mánuðina
rúma í það að skoða landslagið,
kynna mér hlutina og skoða það
hvernig félögin starfa. Það sem
kemur mér mest á óvart er hversu
lítið hefur breyst þessa tvo ára-
tugi um það bil sem ég hef verið í
burtu og hversu aftarlega við erum
á vissum sviðum við þjálfun knatt-
spyrnu. Belgarnir fóru í ákveðna
naflaskoðun með alla sína þjálfun
og mótamál fyrir 20 árum og mér
finnst við þurfa að gera það sama
núna,“ segir þessi fyrrverandi lands-
liðsmaður enn fremur.
„Það sem ég á við þar er að við
þurfum að auka tempóið á æfingum
félagsliða á öllum aldursstigum og
þá sérstaklega eftir 13-14 ára aldur
og allra yngri landsliðanna. Mér
finnst að það eigi að spila án þess
að taka innköst með höndunum,
markvörður megi rekja boltann frá
marki sínu þegar spilað er og f leiri
atriði í þeim dúr sem auka hraða
og ákefð í leikjum,“ segir hann til
nánari útskýringar.
„Þá finnst mér að leikmenn í
öllum f lokkum eigi að spila með
reglulegra millibili, það er alla jafna
einn leik í hverri viku yfir allt árið
með hæfilega löngum fríum um
hátíðir og á sumrin. Leikmenn læra
mest og hafa mest gaman af því að
spila við önnur lið.
Þá spila Belgar til dæmis í aldurs-
flokknum sem samsvarar 5. f lokki
hér heima 3x25 á meðan við spilum
2x20. Með því að spila í f leiri leik-
hlutum gefur það þjálfurum í
fyrsta lagi f leiri tækifæri til þess
að hrósa fyrir það sem vel er gert
og laga það sem af laga fer. Þá fá
leikmenn lengri tíma til þess að
þróa sinn leik og bæta sig meira í
hverjum leik fyrir sig,“ segir hann.
Ekki að fara að skipa félögum
fyrir um það hvernig þau starfa
„Það er samt mikilvægt að hafa í
huga að þetta er bara mín skoðun á
því hvernig gera eigi hlutina og ég
get ekki þvingað félögin til þess á
vinna á þennan hátt. Það eina sem
KSÍ getur gert er að leiðbeina um að
þetta sé góð leið til þess að ná fram-
förum á þjálfaranámskeiðum. Svo
get ég viðrað þessa skoðun mína
ef hennar er óskað hjá þjálfurum
félaganna. Markmið mitt er ekki að
stýra því hvernig félög starfa heldur
frekar gefa ráð sem ég tel heillavæn-
leg,“ segir Arnar sem auk þess að
vera yfirmaður knattspyrnu sviðs
er þjálfari U-21 árs landsliðsins.
Hann vill breyta nálgun, vinnu-
umhverfi og verklagi við æfingar
yngri landsliðanna og ákveðið
hefur verið að hrinda vangaveltum
hans og samstarfsmanna hans í
framkvæmd í október á næsta ári.
„Við erum með margar hug-
myndir í kollinum sem hafa það
að leiðarljósi að bæta umhverfið.
Einni af þeim sem eru komnar á
teikniborðið og verður hrint í fram-
kvæmd er að breyta því hvernig
yngri landsliðin æfa.
Fyrir það fyrsta ætlum við að
fjölga æfingum á árinu úr 15 í 25
án þess að fjölga þeim gluggum þar
sem leikmenn koma á landsliðsæf-
ingar. Yngri landsliðin munu æfa í
tveimur gluggum á hverju skóla-
misseri og æfa á virkum dögum
í stað þess að æfa um helgar. Við
munum vinna í samstarfi við skóla-
kerfið og það er skilyrði af okkar
hálfu að leikmenn séu að standa í
stykkinu í skólanum ætli þeir að
vera valdir,“ segir Arnar Þór.
Æfa á öðrum tímum en áður
„Kvennalandsliðin æfa á þeim
tímum þar sem A-landsliðin eru að
spila fyrir keppnistímabilið og af
þeim sökum þarf ekki að fresta
leikjum í meistaraf lokki vegna
landsliðsæfinga. Liðin æfa í tvo til
þrjá daga í senn og taka um það
bil fimm æfingar á þeim tíma sem
við erum saman.
Þannig væri til dæmis týpískur
dagur með einni tempóæfingu
um morguninn, hádegismat og
mögulega fyrirlestri og svo rólegri
æfingu síðdegis. Með þessu fá
leikmenn meira út úr hverri
æfingu fyrir sig og þurfa ekki
að sleppa leikjum með félags-
liðum sínum,“ segir hann um fyrir-
komulag landsliðsæfinganna.
„Það er svo þannig að hugmyndin
er hvorki að umbylta kerfinu eða
fara í stríð við félögin um leikmenn
þeirra. Við erum einfaldlega að færa
æfingarnar, skerpa á því hvernig er
æft og bæta æfingarnar sjálfar.
Þjálfarar fá að vita það fyrir fram
hvenær þessir fimm gluggar og
önnur verkefni landsliðanna fara
fram og meti þjálfarar meistara-
f lokksliða það sem svo að það sé
betra að leikmenn séu hjá sér og
spili leiki með félagsliðum í stað
landsliða þá þvingum við ekki
félögin til þess að láta leikmennina
af hendi. Við vinnum þetta í nánu
og góðu samstarfi og það hefur
gengið vel hingað til og mun gera
það áfram trúi ég,“ segir Arnar sem
vill slá á áhyggjuraddir félagsliða-
þjálfaranna ef einhverjar eru.
hjorvaro@frettabladid.is
Arnar Þór Viðarsson
var ráðinn yfirmaður
knattspyrnusviðs
hjá Knattspyrnusam-
bandi Íslands, KSÍ, um
mánaðamótin apríl og
maí fyrr á þessu ári.
Arnar Þór hefur hug-
myndir um að breyta
starfinu hjá yngri lands-
liðum Íslands í karla- og
kvennaflokki sem hann
hyggst hrinda í fram-
kvæmd næsta haust.
Við erum með
margar hugmyndir
í kollinum sem eru með það
að leiðarljósi að bæta
umhverfið. Einni af þeim
sem eru á teikniborðinu
verður hrint í framkvæmd í
haust.
1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
1
-8
1
4
0
2
3
7
1
-8
0
0
4
2
3
7
1
-7
E
C
8
2
3
7
1
-7
D
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K