Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.07.2019, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 18.07.2019, Qupperneq 48
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *GERIR KRAFTAVERK* / Fyrir DAGLEGT BRAUÐ / Sóma salat & Sóma hummus ÓDÝRASTA ELDSNEYTI LANDSINS Á DALVEGI OG REYKJA VÍKURVEGI SKILYRÐISLAUST 990 KR/KG 1.990 Verð áður: Þorbjargar Gunnlaugsdóttur BAKÞANKAR Ég hef lengi haft efasemdir um tölvuna og reyndar ekki síður internetið. Ég þykist samt vita að tölvan sé komin til að vera. En afstaða mín og efasemdir eru vaxandi og tengjast áföllum á netinu. Áfallasagan er í grunn- inn sú að á netinu hef ég verið að nálgast fólk án þess að ætla mér það. Mitt fyrsta áfall stafaði held ég af vírus sem varð þess valdandi að ég sendi út nokkur hundruð vinabeiðnir á Facebook, til dæmis nokkuð víða um réttarkerfið. Að 13 árum liðnum get ég séð jákvæðar hliðar, Facebook-síðan mín varð jú talsvert betur skreytt frægum vinum í kjölfarið. Annað áfall var fundarboð sent á hálft stjórnkerfi Íslands og starfsmenn Reykjavíkurborgar. Man enn kvíðann þegar tugir tölvupósta tóku að berast um mætingu á minn eigin litla þjóðfund. Og í sumar gerði ég ákveðinn tæknifeil og sendi brúðhjónum ald- arinnar á Balí skilaboð. Dóttir mín hafði sent mér fallegar myndir úr brúðkaupsferðinni og nefnt hversu skemmtilegt væri að brúðkaups- ferðin væri á sömu slóðum og við vorum á. Auðvitað fannst mér það líka og svaraði dótturinni, að ég taldi, og benti á að við hefðum nú verið mættar til Balí á undan þeim með orðunum: Hermikrákurnar :) Skilaboðin fóru auðvitað beint til nýgiftu konunnar sem hefur kannski legið á strönd á Balí með bóndanum þegar miðaldra kona í Smáíbúðahverfinu sendi nokkuð mislukkaðan brandara í ranga átt. Viðleitni minni til að biðjast afsökunar, sem var jafn hallærisleg, var hins vegar óskaplega vel tekið. Vaxandi hræðslan er veruleiki miðaldra og netblinda fólksins. Faxtækið, borðsíminn og dvd- og geislaspilarinn, okkar tækni, er fortíðin ein og við blasir hin svo- kallaða framtíð. Netblinda kynslóðin 1 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 1 -4 F E 0 2 3 7 1 -4 E A 4 2 3 7 1 -4 D 6 8 2 3 7 1 -4 C 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.