Bæjarblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 3
Stangaveiðifélagið bætir við sig ám
- Rœtt við Benedikt Jónmundsson formann S.V.F.A.
„Verðbólgan kemur þar við
sem annarsstaðar", sagði Bene-
dikt Jónmundsson, formaður
Stangaveiðifélags Akraness, er
hann var inntur eftir hinu ört
hækkandi verði á ieigu Laxveiði-
áa. „Það má segja að verðbólg-
an sé að gera stangaveiði að
munaði. Einnig á þar stóran þátt
í hin mikla samkeppni íslenskra
aðila um sömu árnar. Hér á
Vesturlandi veiddust um 39% af
þeim laxi er kom á land 1979.
Hér er bæði átt við laxa veidda
í net og á stöng. Stærstu og afla-
mestu árnar eru leigðar útlend-
ingum eða umboðsaðilum þeirra.
Skapar þetta þrengri markað fyr-
ir íslendinga og um leið hættu
á því að þeir yfirbjóði hver ann-
an þar til í óefni er komið, til
að fá eitthvað til að renna í,
fyrir sína félagsmenn".
Ofangreint kom fram er Bæjar-
blaðið lagði leíð sína til Bene-
dikts, fyrr í vikunni, tii að fá
hjá honum fréttir af síðast veiði-
ári og hvað framundan væri. En
eins og fyrr sagði er Benedikt
formaður Stangaveiðifélagsins,
með honum í stjórn eru: Ársæll
Valdimarsson, varaformaður, Ár-
sæll Jónsson, ritari, Tómas Run-
ólfsson, gjaldkeri og Rórður
Árnason, meðstjórnandi.
Þá kom fram hjá Benedikt, að
starfi stjórnar mætti skipta í
fjögur höfuðatriði: 1. Að taka á
Þessi mynd er tekin þegar verið var að reisa nýja veiðihúsið við
Flekkudalsá. Hús þetta var keypt erlendis frá, en félagsmenn sáu
síðan um að reisa húsið í sjálfboðavinnu. Á myndinni eru, talið frá
vinstri: Ársæll Jónsson, Engilbert Guðjónsson, Guðni Eyjólfsson
og Benedikt Jónmundsson.
AKRANESKAUPSTAÐUR
Prjónavélar
Til sölu eru prjónavélar Jacquards Mask-
iner Boras.
1 stk. BORE 14 W-35 breidd 140 cm 3.5
1 stk. BORE 2 K-18-35 breidd 178 cm 3.5
1 stk. BORE 2 K-18-P25 breidd 178 cm 2.5
1 stk. BORE breidd 120 cm. 2.5
Auk þess 2 stk. NOVA gufustraujárn með
gufukút.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í
síma 1211, eða á skrifstofunni Kirkju-
braut 2.
Bæ j artæknif ræðingur
leigu veiðiár til afnota fyrir fé-
lagsmenn, eða framleigja, ef
veiðivötn eru ekki fullnotuð.
2. Vinna á móti því að notaðar
séu veiðiaðferðir sem eru ólög-
legar, eða líklegar til að spilla
stangaveiði. 3. Að auka félags-
lyndi og samvinnu þeirra manna
er áhuga hafa á stangaveiði.
4. Að veita félagsmönnum sínum
fræðslu um lax- og silungsveið-
ar eftir því sem við verður kom-
ið.
Starfandi er nefnd í félaginu,
svonefnd „Flugukastnefnd". Hún
annast kennslu í fluguköstum, en
með tilkomu íþróttahússins varð
aðstaða flugukastæfinga mun
betri. Nefndin mun hugsa sér til
hreyfings með vorinu, en for-
maður hennar er Ólafur Ólafs-
son.
Stangaveiðifélagið var með
tvær ár á Ieigu á síðasta ári.
Það voru Andakílsá og Flekku-
dalsá á Fellsströnd. Alls veidd-
ust 650 laxar í þeim á síðast-
liðnu ári. Veitt var á flugu og
maðk. Úr Flekkudalsá komu 510
laxar, en Andakílsánni hrakaði
aftur á móti, en þar komu aðeins
139 laxar á land.
Á hverju ári eru veitt verðlaun
fyrir stærstu veiddu laxana.
Þessi verðlaun hlutu, fyrir árið
1979, Bjarni Kristófersson fyrir
stærsta laxinn, Bjarni fékk einn-
ig verðlaun fyrir stærsta laxinn
veiddan á flugu. Tengdadóttir
Bjarna, Sigurlína Guðmundsdóttir
hlaut verðlaun fyrir stærsta lax-
inn veiddan af félagskonu.
Á þessu ári verður félags-
mönnum boðið upp á þrjár ár,
en stjórnin hefur alltaf vakandi
Gamla húsið, sem var við Flekku-
dalsá var flutt að Andakilsá.
Hér er húsið komið á vörubíl við
Flekkudalsá. Á myndinni má
greina þá, Ólaf Ólafsson, Ólaf
Guðjónsson, Guðjón Jónsson og
Ársæl Valdimarsson. Upp á hús-
inu er svo Helgi Guðnason.
auga með ef eitthvað fleira
býðst, að sögn formanns. Þessar
ár eru Andakílsá og Flekkudalsá
sem fyrr, og Víkurrá, en sú bæt-
ist nú við. Sú á er rétt hjá Guð-
laugsvík í -leiðinni norður á
Strandir. í þeirri á verða leyfðar
2 stangir. í fyrra veiddust um
220 laxar í henni.
Að lokum spurðum við Bene-
dikt hvenær fyrirhugað væri að
selja veiðileyfin? „Þau verða
seld fimmtudaginn 3. apríl, þ.e.
á Skírdag.
Bæjarblaðið þakkar Benedikt
fyrir fróðlegt spjall.
Frá flngakastnefnd S.V.F.A.
Áhugamenn um stangaveiði og þeir sem hafa áhuga
á að læra flugukast, eru beðnir að fylgjast með til-
kynningu sem væntanlega birtist í næsta tölublaði
Bæjarblaðsins. Þar mun verða sagt írá æfingadögum.
Flugukastnefnd
Tíl sölu
Til sölu er húseignin Skólabraut 21, 2. hæð
sem er 168 fermetrar að stærð.-
Hentugt sem skrifstofuhúsnæði og fyrir
félagasamtök.
Upplýsingar veitir Örlygur Stefánsson í
síma 2007 og eftir kl. 18 í síma 2566.
3