Bæjarblaðið - 23.04.1982, Page 1

Bæjarblaðið - 23.04.1982, Page 1
1109 kjósendur skrifuðu á undirskriflalista Á fundi bæjarstjómar sl. þriðjudag var samþykkt að láta fara fram atkvæðagreiðslu um hvort opna skuli áfengisútsölu á Akranesi. Kosningin mun fara fram samhliða bæjarstjómar- kosningunum þann 22. maí n.k. Bæjarráð hafði áður samþykkt atkvæðagreiðsluna á fundi sín- um. Bæjarstjóm samþykkti síð- an að fela yfirkjörstjóm fram- kvæmd þessara atkvæða- greiðslu, með 7 atkvæðum en tveir bæjarfulltrúar sátu hjá, þeir Hörður Pálsson, Sjálfstæðis- flokki og Ríkharður Jónsson Al- þýðuflokki. Á undirskriftalistanum sem bæjarstjórn barst voru nöfn 1109 kjósenda á Akranesi en það er rúmlega þriðjungur kosninga- bærra manna hér í bæ. Sam- kvæmt lögum nr. 82/1969 skal atkvæðagreiðsla fara fram ef 1 /3 hluti atkvæðisbærra manna fer fram á það. Það má því segja að fárra kosta völ hafi verið hjá bæj- arstjórn þar sem mikill hluti kjós- enda skrifaði á undirskriftarlist- ann. BRÁÐSNJÖLL LAUSN Eins og fram kom í síðasta Bæjarblaði mótmælfu íbúar við Dalbraut, slæmu ástandi götunnar, til bæjarstjómar fyrir skömmu. í rigningunni í síðustu viku settu íbúamir síðart upp for- láta kassa fyrir vegfarendur til að geyma stígvél á meðan skroppið er í bæinn. Þannig getur fólk nú öslað drulluna á Dalbrautinni í stígvélum sínum að homi Stillholts og Eins og komið hefur fram í Bæj- arblaðinu er fyrirhuguð dagheimil- isbygging við hús Leikskólans við Skarðsbraut í sumar. Fyrir skömmu voru opnuð tilboð í bygg- ingu þessa og höfðu þrjú tilboð borist. Eftirtaldir aðilar buðu í verk- ið: Trésm. Fjölnir Kr. 1.718.594.55 Dalbrautar, tekið þau af sér og farið í betri skófatnað, en skilið stígvéiin eftir í kass- anum. Þama virðist vera á ferðinni bráðsnjöll lausn á hinum sígilda forarvanda- máli sem jafnan fylgir mal- argötum bæjarins. Nú er það bara spumingin hvort bæjaryfirvöld sjái sér ekki þama leik á borði og komi upp svona kössum við hverja malargötu í bænum. Tréhúsið Kr. 1.771.504.00 Trésmiðjan Jaðar Kr. 1.895.587.00 Bæjarráð samþykkti áfundi sín- um að fela tæknideild bæjarins að undirbúa samningsgerð við lægst- bjóðanda, Trésmiðjuna Fjölni. Þess má geta að kostnaðaráætlun vegna byggingar dagheimilisins hijóðaði upp á kr. 1.629.553.00. vertíðarafli en á sama tíma ð fyrra - sjá bls. 8 Athyglisverö rál: m á Akranesi: Tölvur og skóli - sjá bls. 6 Sóðaleg- asta lóðin í eigu bæjarirts - sjá bls. 6 Vorkveðja frá Bamble - sjá bls. 3 Velheppnað íslandsmót fatlaðra - sjá bls. 5 Áégaðgæta bróður mins -HörfturPáis- sonskrifarum áfengismál - s já bls. 4 Tilboð opnuð í byggingu dagheimilis Selja herðatré! Nýstárleg f járöf Bun Lions- klúbbs Akraness Lionsklúbbur Akraness er um þessar mundir að taka upp nokk- uð nýstárlega fjáröflun, því nk. föstudag, 30 apríl, mun klúbburinn gangast fyrir herðatrjáasölu til fjár- öflunar fyrir klúbbinn. Söluaðilar verða Unglinga- knattspyrnuráð og 4. flokkur í knattspyrnu, en strákarnir í þeim flokki eru að safna fyrir utanlands- ferð. Seld verða fjögur herðatré í pakka og kostar pakkinn 50 krón- ur. Eins og ávallt hjá Lionsklúbbn- um mun aliur ágóði af sölunni renna til líknarmála. Bæjarbúar eru hvattir til að taka vel á móti sölubörnum Lionsklúbbsins nú sem endranær. VERULE6 HREYFING A SUNDLAU6ARMÁLUIH - almenn ánægja með tillögu um staðsetningu Sundlaugarmálið er nú komið á fulla ferð og hefur nú verið gerð tillaga um staðsetningu hinnar nýju sundlaugar. Und- irbúningsnefnd sundlaugar hefur lýst ánægju sinni með þá tillögu, sem unnin er af Magnúsi Ólafssyni, arkitekt hjá Verkfræði- og teiknistof- unni sf. Þá hefur stjórn íþróttabandalags Akraness lýst yfir ánægju sinni með þessa tillögu. Talsverðar umræður urðu um þetta mál á síðasta bæjar- stjórnarfundi, en bæjarfulltrú- ar virtust þó nokkuð sammála um þetta allt saman, helsti ágreiningurinn var um forms- atriði. Samkvæmt tillögu Magnús- ar Ólafssonar er staðsetning laugarinnar milli Garðabrautar og grasvallar, ofan við efstu blokkir á Garðabraut. Það er ánægjulegt að skrið- ur virðist kominn á þetta draumamál okkar Akumes- inga í fjölda ára. Að lokum sakar ekki að geta þess, að nú hefur verið tekinn í notkun glæsilegur heitur pottur við gömlu góðu Bjarnalaug, og hefur aðsókn að honum verið góð, það sem af er. Bæjarblaðíð óskar lesendum sínum GLEÐILEGS SUMARS!

x

Bæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.