Bæjarblaðið - 23.04.1982, Blaðsíða 2

Bæjarblaðið - 23.04.1982, Blaðsíða 2
Bœjorblodid Bœjorblodid 6. tbl.4. árg. 23. apríl 1982. Útgefandi: Bæjarblaðið sf., pósthólf 106,300 Akranes Ritstjóm: Haraldur Bjamason sími 2774 og Sigþór Eiríksson sími 1919 Blaðamaður: Adolf Friðriksson. Ljósmyndir: Ámi Ámason sími 2474. Útlit: Leturval sf. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Prentval. Ráðið í störf við sjúkrahúsið Stefán Lárus Pálsson: Ef grannt er skoðað Nýlega var auglýst eftir tveimur starfsmönnum við Sjúkrahús Akra- ness. Annars vegar var auglýst eftir læknaritara og hins vegar tré- smið. Um fyrra starfið sóttu fjórar konur og samþykkti stjóm Sjúkra- hússins að ráða Karenu E. Þor- steinsdóttur, Furugrund 1, í starf læknaritara. Auk hennar sóttu um starfið þær, Sæunn Njálsdóttir, Sigríður Pálsdóttir og Barbro Elisabet Glad, allar búsettar á SÍMI 2770 A S T G Mikið úrval fasteigna Akranesi. Á sama fundi stjórnar Sjúkra- hússins var samþykkt að ráða Braga Magnússon í starf trésmiðs við Sjúkrahúsið. Um það starf sóttu sjö menn, en auk Braga voru það: Valur Jónsson, Sverrir Þórð- arson, Ragnar Gunnarsson, Valdimar Hallgrímsson og Rafn Hjartarson, allir búsettir á Akra- nesi og Þórir Thorlacius búsettur í Búðardal. Nú er vetur senn á enda. Góður vet- ur á margan hátt. Margt hefur borið á góma í bæjarlífinu, en væntanlegar bæjarstjórnarkosningar og mál tengd þeim hafa verið ofarlega á baugi. Sameiginlegt prófkjör flokkanna hér á Akranesi var merk nýjung og úrslit þess mikið rædd. Fólk reyndi að spá í fylgi flokkanna eftir þeim tölum sem þama komu fram, og óneitanlega gefa þær vísbendingu. Allir þóttust að- standendur lista frá A-G hafa unnið sigur eða fylgi, og sumir réttilega eink- um þeir B og D, en það vafðist þó nokkuð fyrir G-listamönnum að finna út úr því góða útkomu, að annarhver kjósandi flokksins úr síðustu kosning- um skyldi snúa baki við öreigaflokkn- um og fylkja sé undir merki þeirra sem ekki kenna sig við eymd og volasði. Ætli foringjaskiptin hjá allaböllum og hin miklu smekklegu skrif Dögunar séu ekki bara að skila árangri þama? Jóhann Ársælsson ágætur bæjarfull- trúi dregur sig þar í hlé en í hans stað kemur pólskur framagosi með þing- mannsdrauma í kollinum. Annars vek- ur það mikla athygli að stétt kennara og menntafólks virðist allsráðandi í þeim flokki sem eitt sinn kenndi sig við verkafólk með réttu, en það er nú liðin tíð að sá flokkur sé brjóstvöm erfiðis- stétta þessa lands. BNBYLISHÚS Arnarholt - Steinhús á tveim hæðum. Tvær íbúðir. Bifreiðageymsla. Grenigrund - Gott og vandað hús.Laust fljótl. Bifreiðag. Grenigrund - Stórt og vandað hús. Tvöf. bifreiðag. Jörundarholt - Fokhelt 117 ferm. Bifreiðageymsla. Jörundarholt - Fokhelt raðhús 140 ferm. Bifreiðageymsla. Jörundarholt - Fokhelt raðhús á einni og hálfri hæð. Frág. utan. Heiðargerði - Lítið snoturt með góðri lóð. Ný viðbygging. Reynigrund -Vandað hús 130ferm. Bifreiðageymsla. Reynigrund - Timburhús, svo til fullbúið. 137ferm. Bifreiðag. Skagabraut - Steinhús á einni hæð, ný viðbygging (stofa). Víðigrund - Mjög vandað og fullbúið hús. Á eftirsóttum stað. Vesturgata - Lítið en hentugt steinhús á tveim hæðum. Stór lóð. Vesturgata - Steinhús á tveim hæðum Gott hús. Bifreiðageymsla. Presthúsabraut - Járnklætt timburhús..Gott verð og kjör. STÆRRIÍBÚÐIR Kirkjubraut - Efsta hæð í þriggja hæða húsi (stein). Suðurgata - Þriggja hæða steinhús. Mögul. sem verslunarhúsn. FJÖGURRA HERBERGJA Höfðabraut -Neðri hæð i þríbýlishúsi. 104 ferm. Sólrík íbúð. Heiðarbraut - Efri hæð í tvíbýlishúsi. Þarfnast lagfæringar. Gott verð. Akurgerði -Neðri hæð i tvíbýlishúsi. Laus fljótlega. 90 ferm. Bárugata - Neðri hæð í tvíbýlishúsi. Nýjar innréttingar. 100 ferm. Heiðargerði - Á efri hæð í tvíbýishúsi. 90 ferm. Brekkubraut - Á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Mjög góður staður. Skarðsbraut - Á þriðju hæð í fjölbýlishúsi. Stór geymsla í kjallara. Skólabraut - Björt og sólrík íbúö. Bifreiðageymsla. ÞRIGGJA HERBERGJA Einigrund -Á annarri hæð í fjölbýlishúsi. Tilb. okt. Krókatún - Neðri hæð í tvíbýlishúsi. 90 ferm. Vallarbraut - Á þriðju hæð í fjölbýlishúsi. Stór geymsla í kjallara. TVEGGJA HERBERGJA Bárugata - Á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Járnkl. timbur. Eignarl. Skagabraut - Á neðstu hæð í þríbýlishúsi. Vesturgata - Á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Einigrund - Á annarri hæð í fjölbýlishúsi. Geymsla í kjallara. Kirkjubraut - Á efstu hæð í tvíbýlishúsi (risíbúð). Vallarbraut - Á annarri hæð í fjölbýlishúsi. ATH.: Okkur vantar allar stærðir íbúða á skrá vegna mikillareftirspurnar. Einnig vantar okkur fiskibata af ýmsum stærðum. FASTEIGNA- OG SKIPASALA VESTURLANDS Kirkjubraut 11,2. hæð sími 2770. LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA Jón Sveinsson, hdl. nafnnr: 5192-1356. Þar ráða nú ferðinni svokallaðir „stofukommar” sem snobba niður á við í klæðaburði og lífsháttum. Þeirra hagsmunir og verkafólks fara ekki á neinn hátt saman nema þeir nota víst atkvæði verkafólksins sér til framdrátt- ar. Flest tekur þetta fólk sem til forystu velst hjá allaböllum laun sín og viður- væri frá fólkinu, það er, ríki, bæ og úr sjóðum stéttarsamtaka. Sú skipan er endanlega komin á hér, með brottför Jóhanns úr efsta sæti G-lista. Eftir- maður hans Engilbert varaskólameist- ari hefur lýst því yfir í Dögun að hann muni ekki ná með tær sínar jafn fram- arlega og hælar félaga Jóhanns hafi verið í starfi bæjarfulltrúa! Annars eru úrslit prófkjörsins hjá G-lista eitthvert best varðveitta leyndarmál sinnatíma. Enginn þar í flokki segist vita hvemig atkvæði féllu á fólk þeirra í prófkjörinu. Þrálátur orðrómur er á sveimi að röð í þrjú efstu sæti hafi verið ákveðin fyrir- fram og prófkjör hefði ekki breytt neinu þar um. Þetta er reyndar staðfest af Engilberg í Dögun seinna, svo þátt- taka þeirra fáu sem kusu G-lista í próf- kjöri var til lítils. Annars er talsverðra breytinga að vænta í bæjarstjóm í vor og er það vel. Nýtt fólk þarf að fá tæki- færi til að sýna getu sína, þó reynsla hinna eldri sé góð, þá kemur hún að síst verri notum í samvinnu við ungt og óþreyttara fólk. Hjá A-lista ern gamal- kunn andlit í efstu sætum. Þar er 1. sæti öruggt og möguleiki á öðru. Þar er karlaveldi. Hjá B-lista er nýtt fólk í efstu sætum, konur í 2. og 3. sæti. Þar eru tvö örugg sæti og góður möguleiki á þriðja full- trúanum. Hjá D-lista eru gamalkunnir jaxlar í þrem efstu. Jósef fer útog Guð- jón kennari kemur í staðinn, en hann hefur setið sem varamaður Jósefs sl. kjörtímabil. 14. sætinu er kona. Hún á möguleika á kjöri, en þrjú efstu eru örugg. Hjá G-lista fer Jóhann út en Engilbert fer í efsta sætið (að sjálf- sögðu) því hver er sjálfum sér næstur. Hann nær trúlega kosningu. I öðru sæti er kona, en möguleikar hennar að ná kjöri eru nánast engir, enda aug- Ijóst á málflutningi Berta í Dögun að þar er reiknað með honum einum í bæjarstjórn næsta kjörtímabil. Því er augljóst að slagurinn stendur um 2. fulltrúa A-lista. 4. manns hjá D-lista og 3. manns hjá B-lsita. ( og hugsanlega 1. sæti G-listall). Á listum G og D eru konur í baráttusætum, og fróðlegt að sjá hvort kvenþjóðin stendur nú við stóru orðin þegar hún hefur nú tæki- færi til að koma þrem konum í bæjar- stjórn. Samkvæmt úrslitum prófkjörs er Ragnheiður örugg inn sem 4. fulltrúi D-lista, en aðeins vantaði hársbreidd til þess að bæði Ingibjörg og Steinunn næðu kjöri. Því er nú tækifærifyrir kon- ur að sýna jafnréttishugann í verki. Mikill áróður er nú rekinn af nokkrum mönnum fyrir opnun útsölu áfengis á Akranesi og vilja þeir láta kjósa um það jafnframt sveitarstjómarmálum. Sjálfsagt er að fólk fái að taka afstöðu í þessu máli. Mér er illskiljanlegt það ofurkapp sem þessir einlægu „ríkis- sinnar” leggja á að fá kosið um áfeng- ið. Þessir sveinar tengjast flestir einum stjómmálaflokki hér, hvort sem það er nú tilviljun eður ei. Það á greinilega að innleiða „sprúttið” með leiftursókn. Helst mætti álíta að þeir héldu þetta vænlegt mál til atkvæðaveiða. Ekki er nú alveg víst að slíkt standist, því það er ekki öruggt að meirihluti sé fyrir út- sölu ÁTVR hér í bæ! Það eru nefnilega ekki allir sem finnst okkur skorta meira brennivín. Enginn af væntanlegum bæjarfulltrúum hefur því þorað að taka afstöðu opinberlega í málinu af ótta við að styggja burt atkvæði, því setja þessir „ríkissinnar” bara ekki hrein- lega eftirfarandi atriði inn í stefnuskrá: „Stuðla ber að auknum drykkjuskap bæjarbúa eftir föngum”. Það yrði tekið eftir því. Undirritaður mun greiða at- kvæði gegn útsölu áfengis á þeim for- sendum að vínneysla okkar Akumes- inga hafi nú þegar náð þeirri stærðar- gráðu, að við séum engir eftirbátar annarra byggðarlaga í drykkjuskap. Auk þess sem tala alkóhólista, heimila og fólks sem líður fyrir sitt eigið og annarra fyllerí, sé nú þegar orðin nógu há og meira en það. Það er líkast sefjun, þegar menn beita þeim rökum, að það muni auka verslun og efla atvinnu á Skaganum að fá hér „ríki”, og að lífsnauðsyn sé að verða á undan Borgnesingum með „ríki”, því annars fái allir í Borgamesi að versla um leið og þeir kaupi sér flösku. Þetta segja kaupmenn hér í bæ, og bæta gjaman við, að fólk versli svo mikið í Reykjavík því þar fáist brennivín. Þvílík speki eða rugl. Halda mætti að Skagamenn gengju bókstaf- lega fyrir brennivíni. Hér er vissulega til fólk sem ekki drekkur og verslar samt í Reykjavík. Ég vil benda versl- unareigendum og skoðanasystkinum þeirra á að skreppa suður í vikulok og fara í Hagkaup, því þangað fjölmenn- um við, en ekki í „ríkið” þó stundum sé litið við í leiðinni. í Hagkaup förum við til að versla vegna þess að lokunartími sölubúða á Akranesi er ekki sniðinn fyrir viðskiptavinina, heldur eigendur og starfsfólk. f Reykjavík og Borgar- nesi getum, við verslað á þeim tíma sem okkur hentar, auk þess sem verð- lag er oft langt fyrir neðan það sem okkur býðst hér heima. Okkur vantar vörumarkað í stíl við Hagkaup, með Hagkaupsverðlagi. Meðan verslanir hér eru ekki samkeppnisfærar með verðlag á matvöru o.fl. förum við út úr bænum til að versla, jafnvel þó hér væri útsala frá ÁTVR. Þökk sé góðum samgöngum! Og í lokin. Hver ætlaði að verða útsölustjóri? AKRANESKAUPSTAÐUR KJÖRSKRÁ BÆJARSTJÓRNARKOSNINGAR Á AKRANES11982 Kjörskrá til bæjarstjórnarkosninga í Akraneskaupstað hefur verið lögð fram. Kjörskráin mun liggja frammi á bæjar- skrifstofunni, Kirkjubraut 8, til 2. maínk. Aðfinnslum við kjörskrána skal koma á framfæri við forseta bæjarstjórnar eða bæjarstjóra eigi síðar en 2 vikum fyrir kjördag skv. ákvæðum 20. og 21. al- þingiskosningalaga nr. 52/1959 og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 10/ 1982. Bæjarritari.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.