Bæjarblaðið - 23.04.1982, Síða 4

Bæjarblaðið - 23.04.1982, Síða 4
4 Bœjorbladid Á ég að gæta bráður mins? Nú á útmánuðum fundu ein- hverjir þörf hjá sér að standa fyrir undirskriftasöfnun um opnun áfengisútsölu hér á Akranesi og trúlega telja þeir sér trú um að með þessu séu þeir að vinna Akurnesingum heill og hamingju. Einnig létu þeir þau boð út ganga að ef við hér á Akranesi hefðum ekki hraða á í þessum efnum myndu Borgnesingar verða á undan okkur að opna áfengisútsölu, því þar væri verið að huga að þessum málum. Hver er svo sannleikurinn í þessu máli? Og það held ég að þeir hafi vitað, en til þess að staður fái leyfi til áfengisútsölu þarf hann að hafa kaupstaðarréttindi, en eins og allir vita hefur Borgames það ekki og því er borin von fyrir þá að fá áfengisútsölu þó (óeir æski þess. 1. Á vegum Áfengisvarnarráðs hefur verið unnið að vísindalegum rannsóknum á áfengismálum frá 1967 undir stjórn Tómasar Helga- sonar prófessors. Neðanskráð er hluti niðurstaðna: TAFLA6 Áfengisneyslan sem persónulegt vandamál eftir búsetu. (i prósentum af þeim, sem neyta áfengis) Karlar Konur Reykjavík og nágrenni 12,5 1,8 Þéttbýli með áfengisútsölu 12,5 0,0 Þéttbýli án áfengisútsölu 8,3 2,4 Dreifbýli 8,4 0,6 Landið allt 11,3 2,4 TAFLA 7 Þeir, sem drekka áf ram daginn eftir mikla drykkju i prósentum af fjölda þeirra, sem neyta afengis eftir búsetu. Karlar Konur Reykjavik og nágrenni 5,0 0,4 Þéttbýli með áfengisútsölu 4,6 0,0 Þéttbýli án áfengisútsölu 2,1 0,0 Dreifbýli 2,3 0,6 Landið allt 4,1 0,3 (6.) Þama kemur í Ijós að það eru hlutfallslega fleiri karlar á svæðum með áfengisútsölu sem telja áfengisneyslu sína persónu- legt vandamál heldur en á svæð- um þar sem engin áfengisútsala er. Hins vegar eru konumar svo fáar að ekki verður lagt upp úr þeim tölum. (7) Á þessari töflu kemur einnig í Ijós að það eru hlutfallslega fleiri karlar á svæðum þar sem áfengis- útsala er sem halda áfram að drekka daginn eftir mikla drykkju heldur en á þeim svæðum þar sem engin áfengisútsala er. Þess- ar tvær síðast nefndu töflur benda eindregið til þess að máli skipti hvort áfengisútsala sé í næsta ná- grenni eða ekki”. (TH) 2. Staðreynd er að því auðveld- ara sem er að nálgast áfengi þeim Hörður Pálsson. mun meira er drukkið og því meira sem drukkið er þeim mun stór- kostlegra verður tjónið sem áfeng- isneysla veldur. Samkvæmt nýj- um vísindarannsóknum er Ijóst að tjón af völdum áfengisneyslu fjórfaldast ef neyslan tvöfaldast. Þrefaldist neyslan verðurtjónið ní- falt o.s.frv. 3. Heilbrigðisstofnun Sþ (WHO) hvatti á forfundi sínum 1979 aðild- arþjóðir til að snúast gegn áfeng- isböli með öllum tiltækum hömlum á dreyfingu og sölu. 4. í skýrslu heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna til þingsins nú í vetur er lagt til að dregið verði úr því gífurlega tjóni, er áfengis- neyslu fylgir, með að beita vissum hömlum. Meðal þess sem þar er bent á er, að fækka vínveitinga- húsum og áfengisútsölum. 5. Keflvíkingar sýndu í vetur að þeir fylgjast með tímanum og draga rökréttar ályktanir af nýjustu rannsóknum á vímuefnamálum þegar bæjarstjórn þeirra synjaði umsókn um stofnun vínveitinga- húss með sjö atkvæðum gegn einu. Slíkt hið sama má segja Sauðárkróksbúum til hróss; þeir felldu í almennum kosningum í vor tillögu um að áfengisútsala yrði opnuð í bænum. 6. Alls staðar þar sem vínveit- ingar eða áfengisútsala fer fram breytist svipmót staða til hins verra, löggæslu þarf að auka og áfengisneysla unglinga eykst og færist sífellt til yngri aldursflokka. Væri opnun nýrrar áfengisútsölu miður smekkleg gjöf til barna á bamaári. 7. Ríkjandi tíska veldur meiru um mótun og stefnu unglinga en fræðsla um staðreyndir. Ung- menni hafa það fremur eftir sem fyrir þeim er haft en þeim er sagt ef ekki fer saman. 8. Ein niðurstaðna rannsókna dr. Tómasar Helgasonar og fleiri er: Því fyrr sem farið er að neyta áfengis þeim mun hættara er við að verða ofdrykkju að bráð. 9. Staðreynd er að áfengi er ávana- og fíkniefni þó að neysla þess sé lögleg hérlendis. Öllu hugsandi fólki ber aö gera sér grein fyrir því að það er nokkur munur á hvort leyfi er veitt til dreif- ingarfíkniefnis, þótt löglegt sé, en venjulegs verslunarvarnings. Nýjustu staðreyndir tala þar skýrustu máli. Eins og ráða má af ofangreindri skýrslu má Ijóst vera að því auð- veldara sem er að ná í áfengi því meira er drukkið og áfengissíki og alkóhólismi í réttu hlutfalli við það. Því væri það meiriháttar slys, svo ég taki ekki dýpra í árinni, ef sú ógæfa ætti fyrir okkur Akumesing- um að liggja að hér yrði opnuð áfengisútsala. Menn tala um þau forréttindi sem aðrir hafi, þar sem áfengisút- sala er á staðnum. Ég myndi vilja snúa þessu hugtaki við að segja að það eru forréttindi okkar, sem erum foreldrar, að geta alið böm okkar upp á stað þar sem engin áfengisverslun er á staðnum. Það er þó frekar von til þess að þau verði ekki áfenginu að bráð. Með bestu óskum um bjarta framtíð fyrir Akranes Hörður Pálsson. Hestamannafélagið Dreyri: Fyrirhuguð mótsaðstaða í Barðanesi Föstud. 23. april kl. 21.00 Góðir dagar gleymast ei með Goldie Hawn. Föstud. 23. apríl kl. 23.15 Hryllingsþættir. Sunnud. 25. apríl kl. 14.00 Tinni og hákarlavatniö. Sunnud. 25. apríl kl. 21.00 Grænavítið. Mánud. 26. apríl kl. 21.00 Græna vítið. Þriðjud. 27. apríl kl. 21.00 Fame. Miðvikud. 28. apríl kl. 21.00 Fame. Næstu myndir: Á elleftu stundu. Bláa lónið. Sikileyjarkrossinn. Eins og fram kom í síðasta Bæjarblaði í viðtali við Finnboga Gunnlaugsson, formann hestamannafélagsins Dreyra, þá eru uppi hugmyndir um að koma upp góðri aðstöðu til mótahalds i Barðanesi fyrir innan Æðarodda. Þama í Barðanesi var áður skeiðvöllur hestamanna, síðan var þar flugbraut og þaðan jafnvel stundað áætlunarflug milli Akraness og Reykjavíkur um tíma. Meðfylgjandi teikning sýnir vel hve stórhuga hestamenn eru í hugmyndum sínum, en vonandi er að hægt verði að koma upp þessari aðstöðu, því hún mun þá án efa lífga upp á bæjarlífið hér á Skaga. Laust starf Sementsverksmiöjan óskar að ráða stúlku til símavörslu og fleiri starfa, frá l.júnítil 31. ágúst. Umsóknir berist verksmiðjunni fyrir 28. apríl nk. Sementsverksmiðja ríkisins. óskar lesendum URMaL Bæjarblaðsins GLEÐILEGS SUMflRS!

x

Bæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.