Fréttablaðið - 29.07.2019, Síða 2

Fréttablaðið - 29.07.2019, Síða 2
Veður Austlæg átt 5-10 í dag. Líkur á skúrum sunnan- og vestanlands og möguleiki á þrumuveðri síðdegis. Annars skýjað með köflum og yfir- leitt þurrt, en þokubakkar austan til á landinu og við Húnaflóa. SJÁ SÍÐU 16 Þoka á Straumnesfjalli Það er heldur draugalegt um að litast við gömlu herstöðina á Straumnesfjalli í Aðalvík á Hornströndum. Bandaríkjaher starfrækti þarna ratsjár- stöð á árunum 1957-1961 en nú er staðurinn helst viðkomustaður göngufólks sem notar meðal annars veg frá hernum. MYND/GARPUR I. ELÍSABETARSON HAFNARFJÖRÐUR „Það er að verða til þarna mjög sérstakt og skemmtilegt samfélag með tilkomu Lífsgæða- seturs. Það er dásamlegt að sjá líf færast aftur í húsið,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafn- arfjarðar, um nýtt hlutverk St. Jós- efsspítala. Að undanförnu hefur verið unnið að endurbótum á spítalanum sem staðið hefur auður frá því að hann hætti rekstri 2011. Hafnarfjarðarbær eignaðist húsnæðið árið 2017 og var í framhaldinu ákveðið að þar yrði starfrækt Lífsgæðasetur en undir- búningur verkefnisins hefur staðið yfir frá því í byrjun síðasta árs. „Það var auglýst eftir áhugasöm- um aðilum til að taka rými á leigu. Það hefur gengið mjög vel og færri sem komust að en vildu í fyrstu atrennu,“ segir Rósa. Ákveðið var að vinna að endur- bótunum í áföngum og byrja á einni hæð. „Fyrstu aðilarnir eru komnir þarna inn, þetta er að verða tilbúið. Í byrjun september er ætlunin að þessi fyrsti áfangi í uppgerð húss- ins verði tilbúinn og þá verði opnað með formlegum hætti.“ Bæjarbúum gefist þá tækifæri til að skoða húsið sem þeim sé svo annt um og sjá hvernig til hafi tekist við endurbæturnar. „Við gerðum líka nýverið samn- ing við Leikfélag Hafnarfjarðar sem hefur verið á hrakhólum með hús- næði í mörg ár um að það fái tíma- bundin afnot af kapellunni. Þannig að það mun færast mikið líf og fjör í húsið en fyrst og fremst er verið að hefja það aftur til vegs og virðingar.“ Þá auglýstu Ríkiskaup í síð- ustu  viku húseignina Suðurgötu 44 til sölu. Húsið, sem áður hýsti meðal annars skóla St. Jósefssystra og læknastofur, stendur gegnt spítalanum. Samkvæmt breyttu deiliskipulagi er gert ráð fyrir að húsnæðinu verði breytt í íbúðarhús með allt að tólf íbúðum í því skyni að stuðla að þéttingu byggðar. „Íbúðir þarna hljóta að verða mjög spennandi kostur því þessi reitur er að gjörbreytast frá því að hafa verið sögufræg hús sem voru farin að drabbast niður í það að þarna byggist upp skemmtilegt samfélag og íbúðir alveg í miðbæ Hafnarfjarðar.“ Samkvæmt auglýsingu er húsið nokkuð illa farið og þarfnast tölu- verðra lagfæringa. Húsið er alls um 885 fermetrar og er ásett verð 145 milljónir króna. Í úttekt sem Minjastofnun gerði á húsinu árið 2015 segir að það hafi gildi vegna menningarsögu og byggingarlistar. Var mælt með því að gert yrði við húsið og því fundið verðugt hlut- verk. sighvatur@frettabladid.is Segir dásamlegt að sjá líf færast í húsið á ný Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir skemmtilegt samfélag vera að myndast í St. Jósefsspítala sem hefur staðið auður frá 2011. Lífsgæðasetur mun taka þar til starfa í haust. Gert er ráð fyrir íbúðum í gömlu skólahúsi gegnt spítalanum. Unnið hefur verið að endurbótum á húsnæði St. Jósefsspítala að undan- förnu og styttist í að Lífsgæðasetur hefji þar starfsemi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Samkvæmt skipulagi á að breyta gamla skólahúsinu í íbúðarhúsnæði. Rósa Guðbjartsdóttir. UMHVERFISMÁL Einar Bárðarson hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Votlendissjóðs. Einar hefur að undanförnu starfað við ferða- þjónustu og almannatengsl. Á árunum 2012-2015 var hann for- stöðumaður Höfuðborgarstofu. Einar er með meistaragráðu í við- skiptum og stjórnun frá Háskóla Íslands. Markmið Votlendissjóðs, sem var stofnaður á síðasta ári, er að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda úr náttúru Íslands með endurheimt votlendis. Talið er að um tveir þriðju af allri losun gróð- urhúsalofttegunda hérlendis séu til komnir frá framræstu votlendi. „Ég er stoltur yfir því trausti sem stjórn sjóðsins sýnir mér með því að fela mér þetta verkefni. Það er magnað að fá vettvang og erindi til þess að leggjast á árar með vís- inda- og baráttufólki um allan heim í baráttunni gegn hlýnun jarðar,“ er haft eftir Einari í til- kynningu. – sar Einar ráðinn til Votlendissjóðs FLUGSLYS Maðurinn sem lést í f lug- slysi á Haukadalsf lugvelli á laugar- daginn hét Sigurvin Bjarnason. Hann var 64 ára og lætur eftir sig eiginkonu, þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn. Flug vél sem Sig ur vin f laug hlekktist á í f lugtaki á Haukadals- f lugvelli á Rangárvöllum. Lögreglu á Suðurlandi barst tilkynning um slysið kl. 14.23 á laugardag og að- stoðuðu björgunarsveitir meðal annars á vettvangi. Flugmaðurinn var einn í vélinni og var úrskurð- aður látinn á vettvangi. Vettvangsrannsókn Rannsókn- arnefndar samgönguslysa lauk seint aðfaranótt sunnudags. „Það er mjög lítið að segja núna. Vett vangs rann sókn var lokið seint í nótt og f lakið f lutt í geymslu sem rann sóknar nefndin hefur,“ sagði Ragnar Guð munds son, f lugvéla- verkfræðingur og rann sakandi á f lugs viði Rann sóknar nefndar sam- göngu slysa, í gær. Ragnar gat ekki sagt til um hversu langan tíma rann sóknin muni taka. Hann segir að það sem helst geti tafið rann sókn þessa slyss sé fjöldi f lug slysa undan farið sem séu til rann sóknar hjá nefnd- inni. Síðastliðinn f immtudag varð óhapp á sama stað þegar eins hrey f ils f lug vél hlek ktist á í lendingu. Snerist vélin með þeim afleiðingum að henni hvolfdi. Flug- maðurinn, sem var einn í vélinni, slapp ómeiddur. – la Lést í flugslysi Sigurvin Bjarnason. 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 C -E 3 9 C 2 3 7 C -E 2 6 0 2 3 7 C -E 1 2 4 2 3 7 C -D F E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 2 8 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.